„Sýnir hvað þau eru þakklát fyrir það sem ég gaf klúbbnum“ Sindri Sverrisson skrifar 14. september 2026 15:00 Dagný Brynjarsdóttir var leikmaður West Ham í fjögur og hálft ár eftir að hafa verið stuðningsmaður liðsins síðan í æsku. West Ham United „Þetta er bara ótrúlega mikill heiður, skemmtilegt og spennandi,“ segir Dagný Brynjarsdóttir sem á dögunum var gerð að sendiherra enska knattspyrnufélagsins West Ham, fyrst kvenna utan Engalnds.
Dagný er aðeins önnur konan sem að West Ham fær til þess að gegna hlutverki sendiherra, á eftir Kate Longhurst. Hún hefur verið stuðningsmaður liðsins síðan hún var barn heima á Hellu og lék með liðinu árin 2021-2025, áður en hún varð ólétt að sínum þriðja syni sem fæddist 1. apríl síðastliðinn. „Ég vissi alltaf þegar ég fór frá Englandi að við myndum gera þetta einn daginn. Þegar ég sagði þeim að ég ætlaði ekki að spila fyrir þau áfram var ég ólétt og ekki ljóst hvað yrði næsta skref. Þá buðu þau mér vinnu í London en ég sagði við þau að næsta skref væri alltaf að flytja heim til Íslands, sérstaklega fyrir börnin auk þess sem maðurinn minn er með vinnu hérna á Íslandi. Og þá kom þessi möguleiki til tals,“ segir Dagný í samtali við Vísi. Klippa: Dagný stolt af sendiherrahlutverkinu Fjölskyldan er flutt á Selfoss, og Dagný þegar byrjuð að spila fótbolta að nýju, nú sem þriggja barna móðir. Hún er stolt af sínu nýja hlutverki sem sendiherra: „Það er fullt af körlum í þessu hjá West Ham en þetta hafði ekki verið gert kvennamegin þar til fyrrum liðsfélagi minn fékk þetta hlutverk fyrir hálfu ári. Það var svo verið að bíða eftir að ég væri búin að fæða og yrði tilbúin að gera þetta. Þetta er ógeðslega gaman, skemmtileg aukavinna og gaman að geta haldið tengingu við klúbbinn,“ segir Dagný sem eins og fyrr segir hefur alltaf stutt West Ham. „Það var alveg sérstakt að fara til liðsins sem maður hefur einhvern veginn haldið með alla ævi og kynnast einhvern veginn öllu dýpra. Elsti sonur minn er alinn upp þarna í fjögur og hálft ár, þannig að það er líka gaman hans vegna að fara reglulega í heimsókn til London og leyfa honum að sjá umhverfið og hitta vini sína,“ segir Dagný. Ýmis verkefni á könnu sendiherra En hvað gerir sendiherra West Ham? Í sinni fyrstu heimsókn mátti sjá Dagnýju ræða við yngri leikmenn West Ham sem nú er komið með U21-lið kvenna auk aðalliðsins. „En svo getur þetta verið ýmislegt. Til dæmis eitthvað fyrir hjálparsamtökin þeirra, eitthvað karlamegin, með yngri akademíunum og fleira. West Ham er líka eina kvennaliðið sem ekki hefur enn spilað á karlavelli félagsins, London Stadium, og vonandi breytist það í vor. Þá grunar mig að ég myndi fljúga út og gera eitthvað í kringum þann leik.“ Dagný Brynjarsdóttir hóf störf sem sendiherra West Ham í síðasta mánuði og miðlaði meðal annars af reysnlu sinni til yngri leikmanna.West Ham United Greinilegt er að West Ham er ekki síður ánægt með Dagnýju en hún með félagið: „Já, þetta er bara gagnkvæm ást. Þetta kannski sýnir hvað þau eru þakklát fyrir það sem ég gaf klúbbnum. Ég er kannski ekki þekkt fyrir að sitja á skoðunum mínum og veit alveg að ég náði að gera margt gott fyrir klúbbinn og kvennaliðið. Longhurst er eins og ég, bara harðkjarna West Ham-stuðningsmaður, og er alin upp í London en mér finnst gaman að þau gefi mér líka traustið og trúna þar sem ég er útlendingur Það er mikill heiður að fá hlutverkið og mér fannst það spennandi bara um leið og þeir ræddu það við mig. Svo flutti maður til Íslands og vissi aldrei hvað yrði úr þessu því þá var ekkert svona byrjað kvennamegin. Þetta er bara ótrúlega mikill heiður, skemmtilegt og spennandi.“
Enski boltinn West Ham United Fótbolti Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Sjá meira