„Blikarnir geta sleppt sér lausum“ Henry Birgir Gunnarsson skrifar 15. september 2026 12:46 Rúnar Kristinsson hefur verið að gera frábæra hluti með Framara og ætlar sér að minnsta kosti annað sætið í Bestu deildinni. vísir/Anton Það fer einn leikur fram í Bestu deild karla í kvöld er Fram tekur á móti nýkrýndum bikarmeisturum Breiðabliks í Úlfarsárdalnum. „
Þetta leggst vel í mig. Úrslitakeppnin að hefjast og að miklu að keppa fyrir okkur. Það er einhver von um að ná Víkingum en annars er þetta barátta við KR um annað sætið,“ segir Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, og bætir við að liðið sé með augun á Íslandsmeistaratitlinum á meðan það sé enn tölfræðilegur möguleiki að ná honum. Blikar urðu bikarmeistarar síðastliðinn föstudag og hafa að engu að keppa í deildinni lengur. Rúnar er þó ekki að gera ráð fyrir neinni bikarþynnku hjá Blikum. Blikar lausir við pressuna „Það má setja þetta upp eins og það sé ekki að neinu að keppa fyrir Blika en það má líka setja dæmið upp þannig að það sé þungu fargi létt af Blikunum. Komnir með titil og öruggir í Evrópukeppni. Þá geta menn sleppt sér lausum því það er búið að vera erfitt hjá þeim síðustu vikur,“ segir Rúnar og bætir við. „Það er búin að vera pressa á liðinu að ná árangri sem hefur ekki verið að ganga upp í deildinni. Bikarinn var þeim afar mikilvægur. Kannski koma leikmenn mjög afslappaðir og rólegir inn í leikinn. Þeir eru með fullt af góðum leikmönnum og ef þeir spila með axlirnar aðeins niðri í stað þess að vera stífar upp í loftið af stressi og álagi að þá held ég að þeir geti sleppt sér lausum í kvöld og notið þess að spila fótbolta.“ Ekkert að hugsa um vera ofar en KR Rúnar er KR-ingur eins og allir þekkja og var að þjálfa KR-liðið í mörg ár áður en hann tók við Fram-liðinu. Undir hans stjórn hefur Fram verið á stöðugri uppleið. Rúnar þvertekur fyrir að það skipti sig persónulega einhverju sérstöku máli að enda fyrir ofan KR í deildinni. „Fyrir Fram skiptir það miklu máli en fyrir mig persónulega skiptir það engu máli. Ég vil ná sem bestum árangri fyrir Fram og auðvitað fyrir sjálfan mig. Maður er í þessu til þess að ná árangri og vinna fótboltaleiki. Það gæti verið betra að fjárhagslega að lenda í öðru sæti út af Evrópukeppni til að mynda. Það er því að miklu að keppa fyrir okkur og KR.“
Besta deild karla Fram Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira