Ráða nýjan forstjóra þvert á ósk framkvæmdastjóra Eiður Þór Árnason skrifar 16. september 2026 16:07 Baldvina Ýr Hafsteinsdóttir er nýr forstjóri SÁÁ. Aðsend/samsett Baldvina Ýr Hafsteinsdóttir hefur verið ráðin nýr forstjóri SÁÁ. Ráðningin kemur í kjölfar þess að starfslokasamningur var gerður við Ragnheiði Huldu Friðriksdóttur, fráfarandi forstjóra.
Óánægja er með þá ákvörðun meðal starfsfólks á meðferðarsviði SÁÁ og sögðu framkvæmdastjóri lækninga og fagstjóri á Vík upp störfum í kjölfarið. Báðar hafa farið fram á að Ragnheiður verði fengin aftur í forstjórastöðuna. Greint er frá ráðningunni í tilkynningu frá SÁÁ. Baldvina Ýr er hjúkrunarfræðingur með meistaragráðu í hjúkrunarfræði og diplómanám í opinberri stjórnsýslu. Hún kemur til SÁÁ frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands þar sem hún er framkvæmdastjóri heilsugæslu- og forvarnasviðs. „Baldvina Ýr hefur 16 ára reynslu af stjórnun í heilbrigðisþjónustu. Í núverandi starfi ber hún rekstrarlega ábyrgð á sviði sem nær yfir tíu starfsstöðvar og rúmlega 500 starfsmenn. Sviðið þjónar rúmlega 35.000 íbúum á Suðurlandi,“ segir í tilkynningunni. Markmiðið að skapa stöðugleika „Við erum virkilega ánægð með að fá Baldvinu Ýr til starfa hjá SÁÁ á þessum tímamótum. Hún býr yfir reynslu af stjórnun, sterkum faglegum bakgrunni og þekkingu á flóknum rekstri í heilbrigðisþjónustu. Ráðning hennar er mikilvægt skref í því að skapa stöðugleika, byggja upp traust og styrkja samstarfið innan samtakanna,“ er haft eftir Önnu Hildi Hildibrandsdóttur, formanni SÁÁ. Baldvina Ýr er sögð hafa starfað í tíu ár sem deildarstjóri hjúkrunar á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði. Þar áður hafi hún starfað hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands, fyrst sem hjúkrunarfræðingur og síðar sem deildarstjóri á hand- og lyflækningadeild. Þá hafi hún jafnframt setið í stjórnum Landssambands heilbrigðisstofnana og Félags stjórnenda í öldrunarþjónustu. „Ég tek við starfi forstjóra SÁÁ af virðingu fyrir því mikilvæga starfi sem unnið er innan samtakanna. Fyrstu verkefni mín verða að hlusta, kynnast starfseminni og eiga samtal við starfsfólk og aðra lykilaðila. Markmiðið er að skapa stöðugleika, styrkja samstarfið og byggja áfram á þeirri miklu þekkingu og reynslu sem býr innan SÁÁ,“ er haft eftir Baldvinu Ýr í tilkynningunni. Hafnar ásökunum um óeðlileg afskipti Þóra Björk Ingólfsdóttir, fráfarandi fagstjóri á meðferðarstöðinni Vík, og Valgerður Rúnarsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri lækninga, hafa sakað stjórn SÁÁ um óeðlileg afskipti af faglegu meðferðarstarfi og fullyrt að hún hafi gert Ragnheiði ómögulegt að sinna sínum forstjórastörfum áfram með fullnægjandi hætti. Valgerður hefur gefið til kynna að hún sé tilbúin að snúa aftur til starfa ef aðstæður breytast. Formaður SÁÁ hefur hafnað ásökunum um óeðlileg afskipti stjórnar. Landlæknir hefur lýst yfir áhyggjum af stöðu mála hjá SÁÁ. Valgerður, fráfarandi framkvæmdastjóri lækninga, sakar stjórn SÁÁ um að hafa viljað koma síðasta forstjóra úr starfi í nokkurn tíma. Þetta sagði hún í Kastljósi RÚV í gær. Hún sagði stjórnina hafa haft ákveðnar hugmyndir um starfsemi SÁÁ og viljað að forstjórinn fylgdi þeim eftir. Ragnheiður hafi verið þeim ósammála, sett fagleg mörk og þurft að forgangsraða verkefnum út frá heilbrigðisþjónustunni. „Það var bara það mikil pressa á forstjórann að gera hluti eftir forskrift hjá þeim, og ég hef séð fyrirmæli í bréfi frá þeim þar sem það er algjörlega óviðeigandi hvað þau eru í raun og veru að skipa henni fyrir að gera,“ sagði Valgerður í Kastljósi. Fréttin er í vinnslu.
SÁÁ Mest lesið Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Innlent Uppnám í Dettifossmálinu vegna óvænts gagns Innlent „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Innlent Kannast ekkert við málið og segir lögreglu hafa komið fíkniefnum fyrir Innlent Sævar las upp yfirlýsingu: „Ég treysti ákæruvaldinu ekki“ Innlent Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Erlent Fréttir af dagsleyfi kynferðisbrotamanns slógu ráðherra illa Innlent Húsnæði fundið undir brottfararstöð Innlent „Ég myndi segja að ég væri burðardýr“ Innlent Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Erlent Fleiri fréttir Tekjur Bílastæðasjóðs 258 milljónum yfir áætlun með hjálp skannbílsins Ráða nýjan forstjóra þvert á ósk framkvæmdastjóra Fimm aukaíbúðir þar sem aðeins mátti vera ein Kannast ekkert við málið og segir lögreglu hafa komið fíkniefnum fyrir Blindfullum unglingum fækkar Blendnar tilfinningar á Degi íslenskrar náttúru Margir telji húsnæði brottfararstöðvar of nærri íbúabyggð Sævar las upp yfirlýsingu: „Ég treysti ákæruvaldinu ekki“ Höfnuðu ráðgjöf um að göng undir Klettsháls yrðu í forgangi Fréttir af dagsleyfi kynferðisbrotamanns slógu ráðherra illa Blóðtaka úr hryssum telst tilraun á dýrum Þögull sem gröfin um Sævar Ók of hratt í hálku þegar banaslys varð á Fjarðarheiði Húsnæði fundið undir brottfararstöð Óvænt gagn og afleikur ríkisstjórnarinnar „Ég myndi segja að ég væri burðardýr“ Vilja færa fjögur þingsæti í Suðvesturkjördæmi Uppnám í Dettifossmálinu vegna óvænts gagns Sleppt að lokinni yfirheyrslu vegna hótelbruna Ráðin aðstoðarmaður framkvæmdastjóra Rauða krossins Aðalmeðferð hafin í Dettifossmálinu Telur ekki tímabært að leggja fram miðlunartillögu Skjálftahrina suðvestur af Eldey Tafir við gönguljós á Hringbraut ekki vegna bilunar Réðst á ökumann með slökkvitæki Ingólfur leysir Baldur af Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Tvö alvarleg atvik hjá dagforeldri skráð „Það kom babb í bátinn í Hafnarfjarðarhöfn“ „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Sjá meira