Héldu slysinu leyndu: „Ég er fegin að vera á lífi“ Sindri Sverrisson skrifar 17. september 2026 10:01 Julia og Wilma Nielsen eru tvíburasystur og báðar öflugar hlaupakonur. @julianiielsen Sænska frjálsíþróttakonan Julia Nielsen var að hjóla framhjá hringtorgi þegar bíll ók á hana með þeim afleiðingum að hún kastaðist upp í loft og á malbikið. Hún braut mörg bein og varð að gangast undir sjö klukkustunda aðgerð.
Sænska blaðið Expressen segir það hafa verið sjokk fyrir marga þegar Nielsen greindi frá slysinu á þriðjudaginn. Slysið átti sér stað í ágúst en Nielsen og fjölskylda hennar kusu að tala ekki um það opinberlega strax enda voru þau öll í miklu uppnámi. Systirin vann hrædd og sorgmædd Þetta setti Wilmu, tvíburasystir Juliu, í óvenjulega stöðu því aðeins tveimur dögum eftir slysið átti hún að keppa fyrir hönd Svíþjóðar í árlegri frjálsíþróttakeppni gegn Finnum, sem hún og gerði og vann 1.500 metra hlaupið. „Mér finnst ekki skrýtið að Wilma reyni að æfa og keppa á lokakafla tímabilsins. Ég er bara ánægð að hún skyldi geta keppt og hlaupið svona vel þó að hún hafi auðvitað verið mjög hrædd og sorgmædd,“ sagði Julia við Expressen. Eins og fyrr segir meiddist Julia alvarlega í slysinu og þó að hún sé komin heim til foreldra sinna, eftir langa dvöl á spítala, getur hún ekki sinnt hversdagslegum hlutum og hvað þá byrjað strax að æfa að nýju. View this post on Instagram A post shared by Julia Nielsen (@julianiielsen) „Ég er þakklát fyrir að hlutirnir eru að þróast í rétta átt en mér líður alls ekki vel og finn enn mikinn sársauka. Ég má ekki setja neinn þunga á fæturna svo að ég eyði dögunum bara heima. Ég get ekki gert neitt. Ég get ekki eldað. Svo ég hvíli mig bara, reyni að lágmarka sársaukann og komast í gegnum endurhæfingarferlið skref fyrir skref,“ sagði Julia sem nú þarf að sleppa haustönninni í Chalmers-háskólanum þar sem hún stundar mastersnám. Hún stefnir á að hlaupa að nýju en „fyrst mun ég einbeita mér að því sem læknar og sjúkraþjálfarar segja svo að ég geti gert hversdagslegu hlutina sjálf. Ég veit að ég á langt í land en eftir þetta allt saman er ég fegin að vera á lífi.“
Frjálsar íþróttir Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Tímabilinu lokið hjá Viktori Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu Finnar neita að spila við Rússland á HM Haukur um slæma stöðu Löwen: „Góður tími til að snúa þessu við“ LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Líkir Dallas Cowboys við ræningjana tvo í Home Alone West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Dagskráin í dag: Meistaradeildin og risa leikur í körfunni hér heima Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sara Rún öflug í sigri KR Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Sjá meira