Íslenski boltinn

Læti í göngunum eftir leik

Valur Páll Eiríksson skrifar
Það var töluverður hiti í leik dagsins. Einnig utan hans í KR-heimilinu eftir leik.
Það var töluverður hiti í leik dagsins. Einnig utan hans í KR-heimilinu eftir leik. Vísir/Anton Brink

Upp úr sauð milli starfsmanna KR og Víkings auk leikmanna eftir leik liðanna á Meistaravöllum í Vesturbæ Reykjavíkur í dag.

Hegðun stjórnarmanns Víkings þótti fara fyrir brjóstið á starfsmanni KR á göngunum í KR-heimilinu eftir leik. Úr urðu stimpingar og töluverð læti þar sem bæði þjálfarar og leikmenn blönduðu sér í málið.

Mikill hiti var í leik dagsins og heil fimm rauð spjöld fóru á loft. Tveir leikmenn Víkinga, þeir Daníel Hafsteinsson og Sveinn Margeir Hauksson, fengu rautt auk tveggja starfsmanna, Aron Baldvin Þórðarson og Harudin Cardaklija fengu rautt. Svo fékk Hrafn Tómasson í liði KR einnig reisupassann.

Þegar fréttamaður Sýnar leitaðist eftir viðtali voru töluverð öskur og köll og stimpingar í leikmannagöngunum. Menn skildu svo að lokum allt að því sáttir.

Víkingur vann leik dagsins 2-1 og tryggði sér þar með Íslandsmeistaratitilinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×