Fimm nýir í stjórn Ungs jafnaðarfólks Lovísa Arnardóttir skrifar 20. september 2026 10:36 Nýkjörin stjórn Ungs jafnaðarfólks. Á myndina vantar Lilju Hrönn Önnudóttir Hrannarsdóttir. Aðsend Ný stjórn Ungs jafnaðarfólks var kjörin á landsþingi þeirra um helgina. Jóhannes Óli Sveinsson, forseti samtakanna, var kjörinn til tveggja ára á síðasta landsþingi og þurfti því ekki að endurnýja umboð sitt. Fimm nýir fulltrúar voru kjörnir í stjórn samtakanna.
Í stjórn sitja nú þau Jóhannes Óli Sveinsson, forseti Ungs jafnaðarfólks, Egill Ö. Hermannsson, stjórnmálafræðingur, Jakob Beck, forseti Framtíðarinnar í MR, Kjartan Helgi Guðmundsson, varaforseti SHÍ, Lilja Hrönn Önnudóttir Hrannarsdóttir, laganemi, Orri Thor Eggertsson, varaforseti SFHR, Sif Káradóttir, lögfræðinemi, og Soffía Svanhvít Árnadóttir, nemi í félagsráðgjöf og leikskólastarfsmaður. Í tilkynningu frá Ungu jafnaðarfólki kemur fram að á landsþingi þess hafi það kallað eftir því að ríkisstjórnin leiddi þjóðarátak í velferð barna og ungmenna. Meirihlutinn í Reykjavíkurborg var einnig hvattur til að afturkalla niðurskurð í þjónustu við börn og ungmenni og leggja sitt af mörkum til að bæta lýðheilsu. „Á síðasta þingvetri hófst vinna við fyrstu ungmennastefnu Íslands, það er stórt skref en henni verða líka að fylgja aðgerðir. Ungt jafnaðarfólk hvetur ríkisstjórnina til að klára þá stefnu og á grundvelli hennar leiða samtal um þjóðarátak í lýðheilsu barna,“ segir í ályktun sem samþykkt var á fundinum. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra sátu fyrir svörum í ráðherragrilli og hélt Ragna Sigurðardóttir, fyrrum forseti UJ og þingmaður Samfylkingarinnar, hátíðarræðu þingsins. Jóhannes Óli veitti Kára Sigurðssyni félagshyggjuverðlaun Ungs jafnaðarfólks 2026 fyrir hans framlag í þágu félagsmiðstöðvastarfs og lýðheilsu ungmenna.
Samfylkingin Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ Sjá meira