Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar 20. september 2026 17:30 „Þessir tónleikar eru enn staður þar sem allir eru velkomnir og geta staðið við hlið þeirra sem hafa andstæðar skoðanir.“ Þetta var eitt af því sem Ed Sheeran sagði á tónleikum sínum í Fíladelfíu í gær. Ef þessi setning er sönn, þá passar ekki að Macklemore, upphitarinn sem var rekinn af túrnum fyrir skoðanir sínar, sé ekki enn þarna. Tónlistarmaður sem Sheeran valdi sjálfur að stilla fram, m.a. vegna skoðana hans á Gaza-málum!? Aldrei hefur viðkvæðið „þú getur ekki bæði átt kökuna og borðað hana“ átt betur við en hér. Því miður var yfirlýsing Sheeran í gær (19. sept.), í kjölfar hasar síðustu daga, eins og við mátti búast. Enginn var styggður, byrjað á að lýsa hörmungum Gyðinga (sem ég geri ekki lítið úr) og svo farið í að tala um Gaza, þar sem m.a. hið fáranlega orð „disproportionate“ eða „úr hófi fram“ er notað yfir þjóðarmorðið, eins og Ísrael hafi rétt á því að bregðast við 7. október með þessum hætti að einhverju leyti. Og að sjálfsögðu var ekki vikið að allri forsögunni. Svo ég segi það skýrlega: Það eru engin átök í Gaza. „Ef þú vilt vita hver stjórnar þér, finndu þá þann sem þú mátt ekki gagnrýna.“ Þessari setningu hefur ótt og títt verið fleygt undanfarna daga og hún á vel við hér. Sheeran las af skjávél og allur textinn er að sjálfsögðu frá Robert Kraft og hans fólki. Förum ekki í óþarfa þykjustuleiki. Sheeran beygði sig undir valdsmanninn og ekkert að því, hann gerir eins og allir í raun. Ég hef verið harður á því í viðtölum undanfarið vegna þessara mála að Sheeran er ekki vandamálið, það er valdabyggingin, kerfið sem hann starfar innan sem er vandamálið. Sheeran vill ekkert fremur en að halda í „gúddí gæ“ ímyndina og það gerir þú með því að segja ekkert, taka ekki afstöðu en í þessu tilfelli virkaði það einfaldlega ekki. Með því að taka ekki afstöðu ertu samt að taka afstöðu. Ef þú horfðir á hrekkjusvínin lemja minni máttar á skólalóðinni varstu að taka afstöðu með þeim. Það er skýrt. Og þessi vandlega unna PR-yfirlýsing er nottulega ekkert nema bullandi pólitík, ætlað að halda hlutum í horfinu og fæla aðra frá því að tjá sig. Það sem er alvarlegast í þessu öllu er málfrelsið, ritskoðunin, ný-McCarthyisminn og að það, að mótmæla augljósum mannúðarbrotum geti kostað þig feril, æru o.s.frv. Það er stóra málið hér. Höfundur er félags- og tónlistarfræðingur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Palestína Arnar Eggert Thoroddsen Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Skoðun Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Sjá meira
„
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar