Innlent

Fella niður 26 flug­ferðir

Agnar Már Másson skrifar
Flugvirkjar boða ótímabundið verkfall frá og með deginum í dag, 23. september. 
Flugvirkjar boða ótímabundið verkfall frá og með deginum í dag, 23. september.  Vilhelm

Icelandair hefur aflýst öllum brottförum frá Keflavík og Reykjavík um miðvikudagsmorgun, í dag, eftir að verkfall flugvirkja hófst á miðnætti. Um er að ræða 26 flugferðir frá Keflavík til Evrópu og til baka auk fimm flugferða innanlands frá Reykjavík og til baka.

Icelandair greinir frá þessu í tilkynningu en Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, staðfestir við Vísi að verkfallsaðgerðir flugvirkja séu hafnar.

Flugfélagið hafði þegar boðað aflýsingar ef af verkfallinu yrði.

„Samtals hefur þessi aðgerð áhrif á hátt í 5.500 farþega. Félagið vinnur nú hörðum höndum að því að endurbóka farþega og hvetur fólk til að fylgjast vel með og tryggja að samskiptaupplýsingar séu réttar,“ segir í tilkynningu flugfélagsins.

„Í kjölfarið verða ákvarðanir teknar skref fyrir skref eftir því sem fram vindur, en alltaf með nægilegum fyrirvara þannig að farþegum sé ekki stefnt út á flugvöll að tilefnislausu, þ.e. með að minnsta kosti 4-6 klst. fyrirvara. Að sama skapi verður tímabil sveigjanlegra endurbókana uppfært eftir því sem staðan þróast,“ segir enn fremur í tilkynningu Icelandair.

Kjaraviðræðum Icelandair við flugvirkja hefur lítið sem ekkert miðað fram í dag en þeir hafa hótað ótímabundnu verkfalli. Óformleg samtöl hafa verið í gangi í kjaradeilu flugvirkja og Icelandair í dag þó að engir formlegir samningafundir hafi verið boðaðir.

Icelandair hafnaði í gær boði Flugvirkjafélags Íslands um að fresta verkfallinu um sjö sólarhringa. Flugvirkjafélagið sagði frestinn eiga að gefa aðilum tíma til að vinna með innanhústillögu ríkissáttasemjara, tillögu að samkomulagi sem hann hafi lagt fram um helgina. Flugfélagið sagði aftur á móti of seint að afstýra því tjóni sem verkfallsboðunin hefði þegar valdið enda hefðu þrjú þúsund manns þegar fært bókanir sínar vegna boðaðra aðgerða.

Þegar fréttastofa ræddi við ríkissáttasemjara fyrr í kvöld höfðu samtölin ekkert þokast fram. „Nei, það er ekkert sem hægt er að greina frá,“ sagði Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari upp úr klukkan 21 í kvöld.

Flugvirkjafélag Íslands vill meina að félagsmenn sínir hafi dregist aftur úr sambærilegum stéttum í launum eftir kjaraskerðingu í heimsfaraldrinum. Þeir hafa sagt deiluna við Icelandair snúast einnig um vaktir, verktöku og framtíð starfa hér á landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×