Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Birgir Olgeirsson skrifar 23. september 2026 14:42 Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir miklar launahækkanir ofan í kólnandi hagkerfi og háa vexti geta orðið upptaktur að harðri lendingu. Vísir/Einar Stýrivextir gætu hækkað frekar ef næstu kjarasamningar leiða til meiri launahækkana, segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Hann varar við því að miklar launahækkanir ofan í kólnandi hagkerfi og háa vexti geti orðið upphafið að harðri lendingu.
Ásgeir ræddi við Vísi eftir kynningu Seðlabankans á fjármálastöðugleika í morgun. Hann var spurður hvort mjúk lending væri að takast og hvort hagkerfið væri að kólna hraðar en bankinn hefði búist við. „Við höfum ekki séð samdrátt í kerfinu enn þá en það er að hægja á því. Það sem skiptir mjög miklu máli núna eru óvissuþættir eins og kjarasamningar, fjárlögin og fleira sem ráða því hvernig hagkerfið mun þróast þegar kemur fram á næsta ár.“ Getur orðið upphafið að harðri lendingu Ásgeir var spurður hvort þrálát verðbólga eða afleiðingar hárra vaxta væru meiri hætta. „Það er alveg ljóst að við erum með háa vexti til þess að kæla kerfið og ná fram lækkun verðbólgu. Það væri náttúrulega miklu betra ef vinnumarkaðurinn myndi vinna með okkur í því. Eins og staðan er núna hafa laun á Íslandi hækkað verulega. Við erum komin með ein hæstu laun í Evrópu. Það er mjög erfitt að sjá að hægt sé að fá meiri kaupmátt með því að fara fram á meiri nafnlaunahækkanir.“ „Versta staðan af öllu væri náttúrulega sú að við myndum áfram sjá miklar launahækkanir ofan í kólnandi kerfi og háa vexti. Það myndi í rauninni koma í veg fyrir að við gætum lækkað vexti og gæti verið einhver upptaktur að harðri lendingu. En eins og staðan er núna tel ég að það geti alveg verið mjög góður möguleiki að við næðum mjúkri lendingu, ef við leggjumst öll saman á eitt í þessu máli.“ Ásgeir útilokar ekki að hækka þurfi vexti frekar verði samið um meiri launahækkanir í næstu kjarasamningumVísir/Einar Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi mældist 6,8 prósent í ágúst og voru 15.900 manns atvinnulausir. Atvinnuleysið jókst um 0,2 prósentustig frá júlí. Án árstíðaleiðréttingar var hlutfall starfandi 75,2 prósent, 3,6 prósentustigum lægra en ári áður. Í síðustu spá Seðlabankans var gert ráð fyrir 5,9 prósenta atvinnuleysi að meðaltali á árinu. Spáin gildir fyrir árið í heild en nýjasta talan aðeins um ágúst. Tölurnar eru því ekki fyllilega sambærilegar. Spurður hvort atvinnuleysið væri eðlileg kólnun eða viðvörunarmerki um að niðursveiflan væri að verða dýpri svaraði Ásgeir: „Bæði. Það er að einhverju leyti eðlileg kólnun í ljósi þess að við höfum verið að reka harða peningastefnu og hagvaxtarhorfur almennt í heiminum eru að versna. Þessi mikli hagvöxtur er að hægja á sér í hagkerfinu og nú reynir á það. Auðvitað væri best að við gætum brugðist við kólnandi kerfi með því að lækka vexti. Þannig náum við að halda atvinnuleysi í skefjum, örva kerfið og koma í veg fyrir að fólk gangi hér um götur Reykjavíkur með enga atvinnu. En þá verður vinnumarkaðurinn að koma með og það verður að vera skilningur á því að við erum ekki ein í heiminum þegar kemur að launum og samkeppnisstöðu.“ Ásgeir var einnig spurður hvort frekari launahækkanir gætu leitt til meira atvinnuleysis. „Mér sýnist það, já. Atvinnuleysi fer vaxandi. Við sjáum í tölunum að það hafa ekki ný störf verið að skapast, ekki nettó. Við erum að sjá hagkerfið kólna og það er líka í samræmi við það að horfur erlendis eru ekki góðar. Það er mjög erfitt að sjá hvernig við getum fengið meiri kaupmátt þegar ekki er endilega mikið meiri verðmætasköpun að eiga sér stað. Núna er eiginlega kominn tími til þess að hægja aðeins á, ná jafnvægi og þá vonandi getum við séð lækkun vaxta.“ Harðari leið hefði kostað samfélagið meira Ásgeir var spurður út í ummæli hagfræðingsins Lars Christensen frá síðustu viku. Lars sagðist þá myndu taka mun harðar á málum væri hann seðlabankastjóri og láta vinnumarkaðinn og atvinnulífið finna fyrir afleiðingum ákvarðana sinna. „Nú hefur verðbólgan verið of há og mögulega hefðum við átt að hækka vexti meira. Það hefði falið í sér miklu meiri kostnað fyrir samfélagið. En við höfum að miklu leyti álitið að við værum í þessu saman. Það var verið að tala um þessar þrjár stoðir, annars vegar vinnumarkaðinn og hins vegar ríkisvaldið varðandi fjárlögin. Það væri betra ef við gætum náð þessum árangri með skynsemi á vinnumarkaði og þeim skilningi að það þýðir ekki að heimta nafnlaunahækkanir sem leiða til verðbólgu eða eru ekki í samræmi við verðmætasköpunina, og að ríkissjóður beiti sínu aðhaldi. Ég hef fulla trú á því að það takist.“ Hann var þá spurður um næstu umferð kjarasamninga: „Mögulega kann það að vera rangt mat. Ef það verður endursamið með hærri launahækkunum í þessari nýju umferð kjarasamninga gæti það alveg þýtt að við þyrftum að endurmeta þetta mat og hækka vexti meira. Við ætlum ekki að útiloka það. Við erum með peningastefnunefnd sem tekur ákvörðun um vexti og verðbólgumarkmið sem er 2,5%. En við erum líka með mat á þeim þjóðhagslega kostnaði sem fylgir því að ná markmiðinu. Þess vegna er oft talað um að ná því innan ásættanlegs tíma.“ Nefndi ekkert ákveðið atvinnuleysisstig Ásgeir var spurður hvenær atvinnuleysið yrði orðið svo mikið að kostnaðurinn af háum vöxtum yrði meiri en hættan af áframhaldandi verðbólgu. Hann nefndi ekkert ákveðið atvinnuleysisstig. Ásgeir telur góðan möguleika á mjúkri lendingu ef ríkissjóður sýnir aðhald og sátt næst á vinnumarkaði.Vísir/Einar „Hvað varðar peningastefnuna er það þannig að það er aldrei lausn að búa til verðbólgu. Verðbólga leysir engan vanda. Það má síðan velta fyrir sér hversu hratt á að gera þetta. Vextir eru 8%. Við hefðum getað hækkað vexti miklu hærra til þess að ná hraðari árangri og ná verðbólgu niður, en það hefði náttúrulega kostað töluvert framleiðslutap fyrir kerfið. Peningaskammturinn sem við höfum valið, sem er 8% núna, teljum við nægilegan til þess að ná fram ásættanlegri kólnun án þess að það valdi miklum þjóðhagslegum kostnaði. Auðvitað gæti það mat breyst.“ Fagnar aðhaldi en vill að gjaldskrár fylgi verðbólgumarkmiðinu Ásgeir var spurður hvaða áhættuþætti hann sæi í fjárlagafrumvarpinu. „Það sem við erum mjög ánægð með er að fjárlögin sýna aukið aðhald. Við teljum að þessi fjárlög, samhliða því að við náum sæmilegri sátt á vinnumarkaði, geti vonandi leitt til þess að verðbólga gangi niður þegar kemur fram á næsta ár.“ Hann var þá spurður út í fyrirhugaðar krónutöluhækkanir á opinberum gjaldskrám. „Eðlilega myndi Seðlabankinn kjósa að hækkanir á gjaldskrám væru í samræmi við verðbólgumarkmið okkar, sem er 2,5%.“ Spurður hvort Alþingi ætti þá að lækka hækkanir umfram markmiðið svaraði hann: „Við gefum þinginu svo sem ekki skipanir, en já. Við höfum viljað sjá að allt opinbera kerfið sé með hækkanir á gjaldskrám í samræmi við verðbólgumarkmiðið.“ Ásgeir var loks spurður hvort hann teldi engu að síður hægt að ná jafnvægi á næsta ári. „Ég tel það, ef fjárlögin ganga eftir eins og þau eru lögð fram. Það er náttúrulega þunginn, þetta aðhald sem þau boða. Núna erum við að sjá ýmsa þætti fara í gegn, eins og hækkanir á olíuverði sem stafa af stríðinu í Miðausturlöndum. Við bindum vonir við að það komi fram á næsta ári, að við sjáum verðbólgu lækka, hagkerfið kólna og getum þá brugðist við með því að lækka vexti.“ Erlenda áhættan ekki sambærileg við árið 2008 Þróunin erlendis leiddi til alvarlegs efnahagsáfalls hér á landi árið 2008. Ásgeir var spurður hvaða áhrif versnandi horfur erlendis gætu haft nú. „Það eru nokkrir áhættuþættir úti. Í fyrsta lagi hækkun á olíuverði og gasi sem hefur mikil áhrif þar sem verðbólga er að hækka. Verðbólga er tiltölulega há úti miðað við markmið og helstu seðlabankar heimsins hafa verið að hækka vexti eins og við höfum verið að gera til þess að bregðast við því. Á sama tíma eru áhyggjur af ríkisfjármálum, fjármögnun ríkisins og auknum útgjöldum til varnarmála, auk spennu í alþjóðaviðskiptum. Í ljósi þess líta hagvaxtarhorfur ekki endilega vel út. Það getur haft áhrif hér. En núna erum við kannski miklu meira að tala um raunhagkerfisáhrif, það er að segja að fólk erlendis kaupi minna af vörum og þjónustu af okkur og ferðist minna til landsins. Við erum ekki að tala um beina fjárhagslega áhættu eins og var hér í aðdraganda 2008.“ Vanskil aukast hjá byggingarfyrirtækjum Seðlabankinn segir í ritinu Fjármálastöðugleiki 2026/2, sem birt var í morgun, að íslenska fjármálakerfið sé vel í stakk búið til að þola áföll. Fjármálastöðugleikanefnd hélt sveiflujöfnunaraukanum óbreyttum í 2,5 prósentum. Sveiflujöfnunaraukinn er viðbótarkrafa um eigið fé bankanna. Honum er ætlað að auka svigrúm þeirra til að halda útlánum áfram þótt áfall verði í hagkerfinu. Íbúðum í byggingu fækkar.Vísir/Anton Brink Vanskil byggingarfyrirtækja hafa þó aukist. Útlán lánastofnana til greinarinnar voru komin yfir 450 milljarða króna í ágúst og höfðu aukist um 25 prósent að raunvirði á einu ári. Þegar tekið er tillit til endurflokkunar lána var aukningin 17 prósent. Nærri sex prósent útlána til byggingarfyrirtækja voru í vanskilum í lok ágúst, samanborið við rúm þrjú prósent um síðustu áramót. Vanskilin tengjast þó að mestu fáum stórum verkefnum. Segir nú of mikið af íbúðum á markaði Tæplega 6.700 íbúðir voru auglýstar til sölu um miðjan september. Raunverð íbúða á höfuðborgarsvæðinu hafði lækkað um þrjú prósent á einu ári og um átta prósent frá hápunktinum um mitt ár 2022. Viðskipti á höfuðborgarsvæðinu voru 15 prósentum færri fyrstu sjö mánuði ársins en á sama tíma í fyrra. Á núverandi söluhraða tæki um sjö mánuði að selja allar íbúðir á skrá en fjóra mánuði fyrir ári. Á sama söluhraða tæki nítján mánuði að selja allar nýbyggingar á skrá. Talning HMS, sem birt var í gær, sýnir að verulega hefur hægt á uppbyggingu. Alls voru 6.216 íbúðir í byggingu í september, ellefu prósentum færri en í mars. Framkvæmdir hófust við 772 íbúðir á sex mánuðum, 56 prósentum færri en hálfu ári áður og það minnsta frá því HMS hóf talningarnar árið 2021. Á sama tíma voru 1.855 íbúðir fullbúnar en ekki teknar í notkun, 85 prósentum fleiri en fyrir ári. HMS spáir því að um 2.300 íbúðir verði fullgerðar árið 2027 en í eldri spá var gert ráð fyrir 2.800 til 3.700. Ásgeir var spurður hvort sami vítahringur væri að endurtaka sig: Hátt fasteignaverð ýti undir verðbólgu, vextir hækki, framkvæmdir dragist saman og framboðið nái síðan ekki að halda í við eftirspurn þegar vextir lækka á ný. „Það er bara kerfiseinkenni á fasteignamörkuðum alls staðar. Þú ert með eftirspurn sem er kvik en framboð sem tekur langan tíma. Það var skortur á eignum, framboðið brást við og núna er of mikið af eignum. Á endanum verður framboðið að mæta eftirspurn þannig að þetta verður einhver aðlögun. Það veltur á ýmsu. Ef við erum ekki að sjá verðbólguna fara niður, heldur mögulega samdrátt og háa vexti fara saman, gæti það haft alvarleg áhrif á markaðinn. Ef verðbólga lækkar og við náum að lækka vexti gæti þetta alveg verið vinnandi vegur. En það sem skiptir öllu máli í samhengi við fjármálakerfið og stærð markaðarins er að þetta er kannski ekki vandamál sem er að fara að hafa gríðarlega mikil kerfisáhrif í för með sér.“ Bjartsýnn en hefur áhyggjur Í lok viðtalsins var Ásgeir spurður hvort hann væri bjartsýnn en hefði um leið talsverðar áhyggjur og væri að biðja fólk um að vanda sig á komandi misserum. „Já, ég held það. Við erum ekki sérstaklega fjölmenn þjóð hérna á þessu landi þannig að við ættum að geta rætt okkur saman um einhverja niðurstöðu. Það er ekki hægt að greiða laun nema skapa verðmæti. Verðmætin verða náttúrulega til í atvinnulífinu. Það hefur gengið vel hjá okkur að mörgu leyti. Það hefur verið uppgangur, mikill hagvöxtur og kaupmáttur að aukast, sem er bara mjög gott. En nú er komið að þeim tíma að hagkerfið er að kólna. Við erum að sjá hærra atvinnuleysi og fólk missa vinnuna. Nú er komið að því að takast á við stöðuna í alvöru og átta sig á því að við getum ekki verið að hækka launin okkar miklu hraðar en aðrar þjóðir. Við getum ekki haldið sama takti áfram, 6–8% eða jafnvel hærra á hverju ári eins og hefur verið. Ég tel að við hljótum að gera það.“
Seðlabankinn Fasteignamarkaður Kjaramál Vinnumarkaður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Viðskipti innlent Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Viðskipti innlent Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðslega fokking erfitt og það má vera það“ Atvinnulíf Segja aldrei jafn marga hafa stoppað stutt í „ræningjarennunni“ Neytendur Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Viðskipti innlent Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Viðskipti innlent Frá löngum gátlista yfir í flennigír og fögnuð Framúrskarandi fyrirtæki Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga Viðskipti innlent Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna Viðskipti innlent Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Viðskipti innlent Fleiri fréttir Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna Horfur á húsnæðismarkaði versna Íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna Bein útsending: Kynna niðurstöður septembertalningar HMS Ráðin fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu Verkfallið skaði orðspor Íslands Ágúst til ADVEL Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Kristinn Örn tekur við Teya á Íslandi Nauðasamningur Rammagerðarinnar samþykktur: Bjóða 25 aura á krónuna Þreifingar um lausn en framhaldið óákveðið Bændur æfir vegna pitsaostsins Breytt fyrirkomulag og samskiptastjórinn kveður Jóhanna tekur við sem forstjóri Hafi ekki aðhafst nóg vegna bílastæðagjalda Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Ungir fatasalar möluðu gull Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Sjá meira