Sport

„Þær héldu að þær myndu labba yfir okkur“

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Guðni var gríðarlega sáttur með frammistöðu FH liðsins í dag.
Guðni var gríðarlega sáttur með frammistöðu FH liðsins í dag. Vísir/Hulda Margrét

FH er 0-1 undir í annarri umferð umspils Evrópubikars kvenna eftir tap gegn stórliðinu Eintracht Frankfurt í dag. Guðni Eiríksson, þjálfari FH, er vongóður fyrir síðari leik liðanna sem fer fram í Þýskalandi eftir viku.

„Ég er bara stoltur af liðinu mínu, stoltur af FH-liðinu, leikmönnum liðsins og frammistöðunni í dag á móti gríðarlega sterku liði Frankfurt,“ sagði Guðni Eiríksson, þjálfari FH, eftir naumt tap gegn stórliði Frankfurt í dag.

Guðni sagði þýska liðið ekki hafa komið sér neitt á óvart.

„Nei, við vorum búnar að skoða þær vel og vissum að þær væru með hörkuleikmenn í öllum stöðum í landsliðsklassa. Þannig að þetta var ærið verkefni og þá er best að gera þetta bara á okkar hátt og spila okkar leik.“

FH-ingar vörðust vel og voru óhræddar að sækja á þýska liðið.

„Það var margt sem gekk upp í dag. Varnarleikurinn var sterkur og bara ákefðin sem við lögðum upp með var mjög góð. Við keyrðum á þær og lokuðum á pressuna og við höfum örugglega komið þeim á óvart. Þær hafa örugglega haldið það fyrir fram að þær væru að mæta kornungu áhugamannaliði sem þær myndu labba yfir. Þær gerðu það ekki.“

Guðni er vongóður með seinni leik liðanna sem fer fram í Frankfurt eftir viku.

„Þetta er bara fyrri hálfleikur og hérna, staðan er bara 1-0, gleymum því ekki. Þannig að við munum ekki breyta neinu og keyra á þær í seinni leik líka.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×