Sport

Dag­skráin í dag: Ná FH-ingar að halda í við Blika?

Andri Broddason skrifar
FH þarf að ná sigri til þess að halda í við Breiðablik í efsta sæti Bestu deildar kvenna.
FH þarf að ná sigri til þess að halda í við Breiðablik í efsta sæti Bestu deildar kvenna. Anton/Vísir

Það er góður sunnudagur á dagskrá á þessu fína hausti á sportrásum Sýnar. Besta deild kvenna, NFL og golf eru í boði ásamt fleira vel völdu íþróttaefni.

Tveir leikir fara fram í Bestu deild kvenna þar sem Þróttur tekur á móti Stjörnunni og Grindavík/Njarðvík tekur á móti FH. Hafnfirðingarnir þurfa á sigri að halda ef liðið ætlar að halda í við Breiðablik sem vann í gær. Stjarnan og Þróttur hafa lítið til að keppa upp á en geta þó endað í nokkrum sætum ofar í deildinni. 

Leikirnir verða sýndir í beinni útsendingu klukkan 14:00 en leikur Þróttar og Stjörnunnar verður sýndur á Sýn Sport Ísland en leikur Grindavíkur/Njarðvíkur og FH verður á Sýn Sport Ísland 2. Að leikjum loknum munu svo Bestu Mörkin fara yfir alla umferðina og verður þátturinn sýndur klukkan 16:00 á Sýn Sport Ísland.

Fyrir þá sem fá ekki nóg af landsleikjafótbolta heldur Þjóðadeildin áfram og þar er sýndur leikur Hollands og Serbíu klukkan 16:00 á Sýn Sport Viaplay. Á sömu stöð fer svo fram stórleikur Noregs og Portúgal en sá leikur hefst klukkan 18:35.

NFL-deildin verður svo á sínum stað þar sem leikur Jaguars og Patriots verður sýndur klukkan 17:00 á Sýn Sport og á sömu stöð verður leikur 49ers og Cardinals klukkan 20:20. Fyrir þá sem vilja vita hvað er að gerast í öllum leikjum dagsins þá hefst NFL Red Zone klukkan 17:00 á Sýn Sport 3.

Nú fer golftímabilið á Íslandi að syngja sitt síðasta og hver fer að vera síðastur að spila á meðan vellirnir eru enn í toppstandi. Fyrir þá sem komast ekki í golf í dag er nóg af mótum til að horfa á í sjónvarpinu. Lokahringur FedEx Open de France mótsins á DP World- mótaröðinni er sýndur á Sýn Sport 4 og hefst útsending klukkan 10:30. Á LPGA-mótaröðinni er sýnt frá Walmart NW Arkansas Championship-mótinu á Sýn Sport 5 og hefst útsending klukkan 18:00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×