Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kristján Már Unnarsson skrifar 29. september 2026 16:00 Fyrirhuguð stálbogabrú yfir Djúpafjörð við norðanverðan Breiðafjörð. Ofarlega til vinstri opnast Þorskafjörður. Vegagerðin Lokaáfangi vegagerðar um Gufudalssveit er í uppnámi eftir að tilboð reyndust himinhátt yfir áætluðum verktakakostnaði. Aðeins tvö tilboð bárust, það lægra frá ÞG-verktökum upp á liðlega 3.888 milljónir króna. Það er um sextíu prósentum yfir kostnaðaráætlun, sem var upp á tæplega 2.432 milljónir króna. Lægra boðið er þannig nærri 1.457 milljónum króna yfir áætluðum kostnaði. „
Þetta eru auðvitað vonbrigði,“ voru fyrstu viðbrögð Bergþóru Þorkelsdóttur vegamálastjóra en tilboðin voru opnuð hjá Vegagerðinni klukkan 14 í dag. Hærra tilboðið barst frá Ístaki, upp á 5.992 milljónir króna. Það var 2.104 milljónum króna yfir áætluðum verktakakostnaði. Brúin sýnd að vetrarlagi.Vegagerðin Þegar slík staða kemur upp, að tilboð reynast verulega yfir kostnaðaráætlun, hefur það stundum gerst að öllum tilboðum sé hafnað og verkið boðið út að nýju. En gæti það gerst núna? „Ég veit það ekki. Við eigum eftir að fara yfir þetta og einnig ræða við lægstbjóðanda og sjá á hverju þetta byggir,“ sagði Bergþóra en tók fram að hún væri bara rétt búin að sjá tölurnar. Bergþóra Þorkelsdóttir vegamálastjóri.Arnar Halldórsson „Þetta er hrikalega hátt yfir og ekki það sem við áttum von á,“ sagði hún. Þessi lokaáfangi endurnýjunar Vestfjarðavegar um Gufudalssveit felst í byggingu 210 metra langrar stálbogabrúar yfir Djúpafjörð sem og lagningu 4,6 kílómetra vegarkafla yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. Áður er búið að leggja vegfyllingar út í firðina og hefja smíði tveggja annarra brúa yfir firðina. Samkvæmt útboðsauglýsingu Vegagerðarinnar eru verklok áætluð þann 1. október 2028, eftir tvö ár. Opnun tilboða var hins vegar þrívegis seinkað. Hér má sjá örstutt myndskeið Vegagerðarinnar af brúnni: Vegagerðin tekur fram að opnunarskýrsla feli ekki í sér niðurstöðu útboðs. Í opnunarskýrslu sé einungis birt heildartilboðsfjárhæð en endanlegt val geti ráðist af fleiri valforsendum samkvæmt útboðsgögnum. Framsetning opnunarskýrslu sé með fyrirvara um hugsanlega reiknivillu og að ekki sé búið að meta gildi tilboða. Komi í ljós að fjárhæðir í opnunarskýrslu séu ekki réttar miðað við framsetningu tilboðsblaðs og leiðbeiningar um útfyllingu á því, verði leiðrétt opnunarskýrsla birt eins fljótt og unnt er. Brúin yfir Djúpafjörð verður ein svipmesta brú landsins en jafnframt lokaáfanginn í einhverri umdeildustu vegagerð á Íslandi, sem snerist um Teigsskóg. Fjallað var um verkefnið og brúargerðina í þessari sjónvarpsfrétt Sýnar fyrir sex mánuðum:
Vegagerð Teigsskógur Samgöngumál Samgönguáætlun Reykhólahreppur Tengdar fréttir Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Vegagerðin hefur boðið út nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 4,6 kílómetra kafla yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. Bygging 210 metra langrar bogabrúar yfir Djúpafjörð er innifalin í verkinu. Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2028. 11. júní 2026 11:36 Vegfarendur verða að þola Ódrjúgshálsinn enn lengur Opnun nýs Vestfjarðavegar um Gufudalssveit seinkar enn og tilkynnti Vegagerðin í dag að brýrnar yfir Djúpafjörð og Gufufjörð, sem leysa eiga af Ódrjúgsháls, yrðu ekki tilbúnar fyrr en í árslok 2028. 12. maí 2026 20:31 Umferð hleypt á nýja veginn um Teigsskóg Stór stund rennur upp í vegamálum Vestfirðinga á morgun þegar vegurinn umdeildi um Teigsskóg verður opnaður umferð. Í dag var jafnframt skrifað undir verksamning um næsta verkáfanga; gerð vegfyllinga yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. 30. nóvember 2023 21:00 Yndislegt að búið sé að opna Þorskafjarðarbrú Gleði ríkti í Þorskafirði í dag þar sem fagnað var opnun nýrrar brúar yfir fjörðinn, átta mánuðum á undan áætlun. Brúin styttir Vestfjarðaveg um tíu kílómetra. 25. október 2023 22:22 Mest lesið Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að vitnisburði sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Sjá meira
Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Vegagerðin hefur boðið út nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 4,6 kílómetra kafla yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. Bygging 210 metra langrar bogabrúar yfir Djúpafjörð er innifalin í verkinu. Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2028. 11. júní 2026 11:36
Vegfarendur verða að þola Ódrjúgshálsinn enn lengur Opnun nýs Vestfjarðavegar um Gufudalssveit seinkar enn og tilkynnti Vegagerðin í dag að brýrnar yfir Djúpafjörð og Gufufjörð, sem leysa eiga af Ódrjúgsháls, yrðu ekki tilbúnar fyrr en í árslok 2028. 12. maí 2026 20:31
Umferð hleypt á nýja veginn um Teigsskóg Stór stund rennur upp í vegamálum Vestfirðinga á morgun þegar vegurinn umdeildi um Teigsskóg verður opnaður umferð. Í dag var jafnframt skrifað undir verksamning um næsta verkáfanga; gerð vegfyllinga yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. 30. nóvember 2023 21:00
Yndislegt að búið sé að opna Þorskafjarðarbrú Gleði ríkti í Þorskafirði í dag þar sem fagnað var opnun nýrrar brúar yfir fjörðinn, átta mánuðum á undan áætlun. Brúin styttir Vestfjarðaveg um tíu kílómetra. 25. október 2023 22:22