Innlent

Val­gerður réttir fram sátta­hönd

Eiður Þór Árnason skrifar
Valgerður Rúnarsdóttir hætti nýverið störfum sem framkvæmdastjóri lækninga.
Valgerður Rúnarsdóttir hætti nýverið störfum sem framkvæmdastjóri lækninga. Vísir/Arnar

Valgerður Rúnarsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ, mun snúa aftur til starfa um óákveðinn tíma. Um tímabundna ráðstöfun sé að ræða til að tryggja vinnufrið við endurskoðun samnings SÁÁ við Sjúkratryggingar sem Valgerður bindur miklar vonir við.

Hún fer ekki fram á afsögn formanns og framkvæmdastjórnar SÁÁ líkt og margir starfsmenn hafa krafist en vill sjá skýrari línur dregnar milli stjórna SÁÁ og heilbrigðisþjónustunnar. 

Valgerður sagði nýverið starfi sínu lausu eftir brotthvarf þáverandi forstjóra SÁÁ sem Valgerður sakar framkvæmdastjórn um að hafa bolað úr starfi. Þá hefur hún sakað sömu stjórn um óeðlileg afskipti af faglegri heilbrigðisstarfsemi SÁÁ. RÚV greindi fyrst frá endurkomu Valgerðar.

Jón Áki Jensson tók við af Valgerði sem framkvæmdastjóri lækninga en hann sagði upp störfum um tveimur vikum eftir að hann var ráðinn til SÁÁ. Heilbrigðisstofnanir samtakanna hafa glímt við alvarlegan mönnunarvanda og hafa læknar á Vogi verið í leyfi frá störfum.

Valgerður segist hafa boðið fram aðstoð sína í gær og hægt sé að líta á hana sem útrétta sáttahönd en harðvítugar deilur hafa átt sér stað innan SÁÁ síðustu vikur milli stjórnenda og starfsfólks meðferðarsviðs annars vegar og formanns, framkvæmdastjórnar og aðalstjórnar SÁA hins vegar. Meðal annars er deilt um það hvaða afskipti stjórnir SÁÁ megi hafa af faglegu starfi sem fjármagnað er af Sjúkratryggingum.

Valgerður snýr aftur til vinnu á föstudag og þurfti að stytta dvöl sína í Rotterdam. Hún kveðst vera spennt fyrir því að snúa aftur til starfa og hitta samstarfsfólk sitt.

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×