Handbolti

Markmenn beggja liða áttu stór­leik í sigri Fram

Andri Broddason skrifar
Ethel Gyða Bjarnesen var með 41 prósent markvörslu í kvöld.
Ethel Gyða Bjarnesen var með 41 prósent markvörslu í kvöld. Fram/Vísir

Fram tók á móti Selfossi í Olís-deild kvenna í kvöld þar sem Fram náði að vinna 21-17 sigur. Leikurinn var gríðarlega jafn framan af en lið Fram náði að vera skrefi á undan.

Bæði lið áttu erfitt með að skora en þegar fimm mínútur voru liðnar var staðan í leiknum 2-2. Eftir það liðu meira en fjórar mínútur frá því að Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir kom Fram í forystuna og náði Fram að halda henni í hálfleik.

Staðan var 11-9 í hálfleik og voru liðin að skiptast á að skora mörk. Lið Fram kom þó betur stefn í seinni hálfleikinn og náði að stækka forskot liðsins en gestirnir voru langt því frá að gefast upp.

Undir lok leiks var mikil pressa á Fram-liðinu og var Selfoss byrjað að nálgast Fram undir lok leiks. Það gerðist því miður aðeins of seint og náði Fram að sigla fram naumum sigri 21-17.

Katrín Anna Ásmundsdóttir leikmaður Fram var markahæsti leikmaður leiksins en stjörnur leiksins voru markmenn liðanna. Selma Þóra Jóhannsdóttir markmaður Selfoss varði 14 skot og varði því 40 prósent allra skota sem hún fékk á sig. Ethel Gyða Bjarnasen markmaður Fram átti einnig góðan leik þar sem hún varði 12 skot og var með 41 prósent vörslu.

Upplýsingar um leikinn voru fengnar af HBStatz.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×