Enski boltinn

Meiddist í Portúgal

Valur Páll Eiríksson skrifar
Haaland bað um skiptingu seint í leik gærkvöldsins.
Haaland bað um skiptingu seint í leik gærkvöldsins. Getty/Diogo Cardoso

Erling Haaland olli áhyggjum þegar hann haltraði af velli í 2-1 tapi Noregs gegn Portúgal í Þjóðadeildinni í gærkvöld.

Framherji Manchester City kallaði á bekkinn til að biðja um skiptingu á 67. mínútu í tapi gærkvöldsins hjá norska liðinu.

Félagið bíður frekari frétta en hann hefur skorað sjö mörk á tímabilinu til þessa í öllum keppnum, þar af fimm mörk í fimm leikjum í ensku úrvalsdeildinni. Næsti leikur liðsins er á sunnudaginn gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni.

Það verður fyrsti leikur City síðan liðið var fundið sekt um öll ákæruatriði sem tengjast brotum á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar. City hefur áfrýjað dómnum.

Haaland og Noregur töpuðu þriðja leik sínum í röð í Þjóðadeildinni í gærkvöld þegar Goncalo Ramos skoraði sigurmark Portúgals seint í leiknum og tryggði liðinu sæti í átta liða úrslitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×