Tónlist

Guð­mundur Péturs­son hlaut Gullnöglina

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Guðmundur Pétursson, handhafi Gullnaglarinnar í ár, með Jakobi Bjarnari og Bjössa Thor.
Guðmundur Pétursson, handhafi Gullnaglarinnar í ár, með Jakobi Bjarnari og Bjössa Thor.

Gítarleikarinn og tónskáldið Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina í ár. Viðurkenningin er veitt einstaklingi sem hefur haft markverð og varanleg áhrif á íslenskan gítarleik í gegnum árin.

Afhending verðlaunanna fór fram í salnum Ægi 220 í Hafnarfirði við hátíðlega athöfn á laugardag en Jakob Bjarnar Grétarsson, blaðamaður, gítarleikari Kátra pilta og Hafnfirðingur með stóru Hái, veitti Guðmundi gullnöglina.

„Það var einróma niðurstaða dómnefndar að Guðmundur hefði með einstakri spilamennsku sýnt og sannað að hann er gítarleikari á heimsmælikvarða,“ segir gítarleikarinn Björn Thoroddsen, betur þekktur sem Bjössi Thor, og upphafsmaður Gítarveislunnar, árlegrar gítarhátíðar. 

Guðmundur plokkar á gítarinn.

Í rökstuðningi dómnefndar segir að Guðmundur hafi um árabil verið í hópi fremstu tónlistarmanna þjóðarinnar. Hann hafi ekki aðeins sett mark sitt á íslenska gítarsögu sem einstakur einleikari og tónskáld, heldur einnig sem afar eftirsóttur stúdíógítarleikari. Ferill hans spannar allt frá því að semja verk fyrir sinfóníuhljómsveit yfir í að spila með heimsþekktum stjörnum á borð við Patti Smith og Pinetop Perkins.

„Guðmundur býr yfir fágætri tónlistarnæmni og tækni sem nær út fyrir alla ramma. Hann hefur verið innblástur fyrir kynslóðir íslenskra gítarleikara og það var einróma niðurstaða okkar að enginn væri velkomnari að hljóta Gullnöglina í ár,“ segir Bjössi Thor.

Guðmundur Pétursson hefur hlotið fjölda viðurkenninga á ferli sínum, þar á meðal Íslensku tónlistarverðlaunin, en nýjasta plata hans, Wandering Beings, var valin plata ársins í sínum flokki árið 2024. 

Gítarnöglinn hefur verið veitt árlega um árabil en meðal fyrri verðlaunahafa eru Kristján Eldjárn yngri, Björgvini Gíslason, Ólafur Gakur og Bubba Morthens.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.