Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni Lovísa Arnardóttir skrifar 28. september 2026 07:17 Taylor Swift hefur hlotið flest VMA verðlaun af öllum. Vísir/EPA Madonna og Taylor Swift fóru með sigur af hólmi á MTV Video Music-verðlaunahátíðinni 2026, VMA. Madonna hlaut þrenn verðlaun en Swift fékk verðlaun fyrir besta myndbandið, The Fate of Ophelia, og varð um leið sú tónlistarkona sem hefur hlotið flest verðlaun í sögu hátíðarinnar.
Swift tileinkaði hinni látnu Dolly Parton verðlaunin og kallaði hana „hina fullkomnu showgirl“. Swift hlaut einnig ný verðlaun sem voru veitt í fyrsta sinn í ár, Artist Director Honors. Fyrir gærkvöldið hafði Swift fengið jafn mörg verðlaun og Beyoncé, 30 hvor, en Swift tók fram úr henni í gær. Í frétt AP segir um nýju verðlaunin að þeim sé ætlað að heiðra listamenn „sem með störfum sínum á bak við myndavélina hafa víkkað út möguleika tónlistarmyndbandsins og þróað listina að segja sögur með myndmáli“. „Ég byrjaði að gera tónlistarmyndbönd og taka þátt í gerð tónlistarmyndbanda fyrir 20 árum,“ sagði Swift í þakkarræðu sinni. Hún bætti við að hún hefði komið að gerð um 60 tónlistarmyndbanda, þar af hefði hún skrifað og leikstýrt 18. „Þið, aðdáendurnir, gerið þetta svo skemmtilegt,“ sagði hún. Swift frumsýndi einnig tónlistarmyndband við nýtt lag sitt, Patient Zero, á verðlaunahátíðinni. Hún leikstýrði myndbandinu, þar sem Colin Farrell og Dakota Johnson fara með hlutverk. Johnson og Swift leika spegilmyndir hvor af annarri. Madonna var tilnefnd í flestum flokkum, alls 13, en hlaut sjö verðlaun, þar af þrjú sem voru afhent í beinni útsendingu: fyrir besta samstarfið, ásamt Sabrinu Carpenter, bestu dansframkomuna og listamann ársins. „Flest ykkar voru líklega ekki fædd þegar ég kom fram á allra fyrstu VMA-hátíðinni fyrir 43 árum,“ sagði hin 68 ára Madonna þegar hún tók við verðlaununum sem listamaður ársins. Hún hafði betur gegn Swift, Carpenter, Ariönu Grande, Bruno Mars og Morgan Wallen. Fann sjálfa sig Madonna rifjaði upp í ræðu sinni þegar hún datt á sviðinu og afhjúpaði óvart rassinn á sér og hvernig það ógnaði ferli hennar en lauk ræðu sinni á alvarlegri nótum. „Ég hef eytt síðasta einu og hálfu árinu í að finna sjálfa mig, trúa á sjálfa mig og búa í raun til þá tónlist sem ég vildi búa til,“ sagði hún. „Von mín fyrir ykkur öll hér í kvöld er að þið ... gerið það sama. Finnið ykkur sjálf og trúið á sjálf ykkur.“ Tveggja klukkustunda hátíðin var sýnd í beinni útsendingu á CBS frá Peacock-leikhúsinu í Los Angeles. Dolly Parton var heiðruð á hátíðinni. Kacey Musgraves flutti I Will Always Love You eftir Parton. Parton lést úr krabbameini í Nashville í ágúst, 80 ára að aldri. Fjöldi listamanna kom fram á hátíðinni. Raye flutti syrpu af tónlist sinni, þar á meðal lögin I Will Overcome og Where Is My Husband! Raye söng nokkur lög á hátíðinni. Vísir/EPA Bruno Mars hægði á tempóinu með Dance With Me. Shaboozey flutti saloon-lagið sitt Cowgirl áður en Gunna slóst í hópinn og saman fluttu þeir blöndu af kántrí og rappi í laginu High Noon. Sienna Spiro söng af miklum krafti lag sitt Great Expectation og hlaut skömmu síðar verðlaunin sem besti nýliðinn. Nirvana heiðruð Orville Peck kynnti heiðursatriði til George Michael, sem lést fyrir tíu árum, á jóladag. Hann var 53 ára. Eftirlifandi meðlimir Nirvana, Krist Novoselic, Dave Grohl og Pat Smear, tóku við heiðursverðlaunum hátíðarinnar. Forsöngvari sveitarinnar, Kurt Cobain, lést árið 1994. Dave Grohl, Krist Novoselic and Pat Smear, meðlimir Nirvana, á hátíðinni. Vísir/EPA „Kurt var einstakur,“ sagði Novoselic í þakkarræðu sveitarinnar og bætti við að þau hefðu aldrei ímyndað sér að hljómur og útlit sveitarinnar myndi ná til svo margra. Hann sagði tónlist sveitarinnar enn lifa góðu lífi vegna þess að fólk væri enn að leita að „einhverju raunverulegu, einhverju ósviknu“ og skilaboðunum um að „það sé bara í lagi að vera maður sjálfur“. Fleiri verðlaun Í flokkum sem ekki voru sýndir í sjónvarpsútsendingunni hlaut k-pop-sveitin BTS verðlaunin fyrir bestu sveitina, besta k-pop-lagið og lag ársins fyrir smellinn „Swim“. Bruno Mars hlaut verðlaunin fyrir besta R&B-lagið fyrir I Just Might. Cardi B og Kehlani unnu í hip-hop-flokknum fyrir Safe. Bad Bunny hlaut verðlaunin fyrir besta latínólagið fyrir NUEVAYoL. Olivia Rodrigo hlaut verðlaunin fyrir besta alternativ-lagið fyrir The Cure og Ella Langley hlaut verðlaunin fyrir besta kántrílagið fyrir metlagið sitt Choosin’ Texas.
Tónlist Bandaríkin Mest lesið Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Lífið Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Lífið Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Lífið Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Tónlist Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Lífið Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Lífið Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Bíó og sjónvarp 50+: Ertu að verða (eða orðin/n) eins og pabbi þinn eða mamma? Áskorun Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni Tónlist Fleiri fréttir Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ Sheeran bað aðdáendur afsökunar „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð „Ég ætlaði í lögfræði en tónlistin tók völdin“ „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Lifa í draumi og heiðra Eyfa Laufey djammaði með Robyn og Troy Sivan HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Miley losar sig við eftirnafnið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Highway 61 Revisited fagnar 61 árs afmæli Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Sísí Ey snýr aftur eftir tíu ára fjarveru Myndaveisla: Leynigestir og innlifun á stórafmælistónleikunum Lag sem enginn söng á toppnum í Ástralíu Versace-ást Villa Vill kveikjan að lagi og skúlptúr Fór á fimm tónleika Ariönu Grande á viku Sjá meira