„Það er smá töffari í mér“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 7. október 2026 20:02 Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins hf., ræddi við blaðamann um tískuna og persónulegan stíl. Aðsend „Fötin mín, alveg eins og orðin sem ég nota, verkefnin sem ég vinn og fólkið sem ég hef í kringum mig, endurspegla viðhorf mitt til lífsins,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins hf. og tískuáhugakona. Sigríður Margrét er alltaf smart í klæðaburði og ræðir hér við blaðamann um eftirminnilegar flíkur, fataskápinn, persónulegan stíl og hvernig starfið óhjákvæmilega hefur mótað stíl hennar.
Sigríður Margrét er fimmtíu ára gömul og sækir tískuinnblásturinn meðal annars til kvenna í kringum sig. Sömuleiðis er hún dugleg að lesa tískutímaritið Vogue og taka púlsinn á stefnum og straumum í tískunni. Hún var dugleg að prófa sig áfram með hinar ýmsu tískutilraunir á yngri árum en hefur í dag algjörlega fundið sinn stíl og er alltaf samkvæm sjálfri sér í klæðaburði. Sigríður Margrét er stílhreinn töffari.Aðsend Hvað finnst þér skemmtilegast við tískuna? Hún gerir lífið fallegra, hún byggir á hönnun og ég hef mjög gaman af því hvernig fólk notar hönnun til þess að tjá sig í víðasta skilningi. Góð hönnun gerir lífið fallegra að sögn Sigríðar Margrétar. Hér er hún einmitt með erindi á HönnunarMars.Aðsend Hver er uppáhalds flíkin þín og af hverju? Pels sem ég erfði eftir ömmu mína og nöfnu en hann hefur tilfinningalegt gildi. Ég var mjög ung þegar ég var farin að máta skóna hennar og man mjög vel eftir þessum pels í fataskápnum. Hún notaði hann sjaldan en passaði vel upp á hann. Góð hönnun gerir lífið fallegra að sögn Sigríðar Margrétar. Hér er hún einmitt með erindi á HönnunarMars.Aðsend Eyðirðu miklum tíma í að velja föt hverju sinni? Nei, ekki almennt en ég á það til að gefa mér góðan tíma þegar ég fæ frí til þess að máta mismunandi samsetningar í fataskápnum mínum. Sigríður Margrét er almennt fljót að velja föt fyrir daginn en hefur gaman að því þegar hún fær tíma til að prófa mismunandi samsetningar.Aðsend Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum? Stílhreinn, ég vel að vera virðuleg starfsins vegna en það er líka smá töffari í mér, ég hef mjög gaman af því sem er aðeins öðruvísi. Sigríður Margrét sækir í stílhrein föt en hefur gaman að því sem er smá öðruvísi.Aðsend Hefur stíllinn þinn breyst mikið í gegnum tíðina og hvernig þá? Eftir því sem lífsreynslan verður meiri þá eykst samhliða áherslan á gæði og vandaða hönnun, en það er líka gott að muna að gæði og verð fara ekki alltaf saman. Gæði eru mikilvæg fyrir Sigríði Margréti sem segir þó gott að hafa í huga að gæði og verð fari ekki alltaf saman.Aðsend Hvaða flíkur myndirðu segja að einkenni stílinn þinn þessa dagana? Ég byrjaði að vinna hjá Bláa Lóninu á þessu ári og það er mjög skemmtilegt að uppgötva að litapallettan í fataskápnum mínum passar mjög vel við einkennisliti félagsins. Um þessar mundir er ég að blanda saman fötum sem henta á skrifstofuna og í ferðalög á þá einstöku áfangastaði sem eru innan Bláa Lóns samstæðunnar. Ég er því búin að vera góður viðskiptavinur hjá 66°Norður að undanförnu. Sigríður Margrét segir litapallettuna oft tala skemmtilega saman við Bláa lónið. Samhliða verkefnum í starfi hefur hún verið dugleg að versla við 66 Norður.Aðsend Nýturðu þess að klæða þig upp? Já, það er fátt skemmtilegra en að klæðast fallegum kjól í fyrsta sinn. Hvað skiptir þig mestu máli í klæðaburði? Fötin mín, alveg eins og orðin sem ég nota, verkefnin sem ég vinn og fólkið sem ég hef í kringum mig, endurspegla viðhorf mitt til lífsins. Ég vil nýta lífið til þess að eiga góð viðskipti, góð samskipti og ég hef virkilega gaman af því sem er fallegt. Sigríður Margrét segir að fötin endurspegli viðhorf hennar til lífsins. Hér er hún á árshátíð Bláa Lónsins.Aðsend Hvaðan sækirðu innblástur í tískunni? Það eru tvö tímarit sem ég kaupi, Vogue og Harvard Business Review, það jafnast ekkert á við það að fletta septemberútgáfunni af Vogue árlega. Ég fylgist líka með tísku á íslensku miðlunum og á samfélagsmiðlum en svo hef ég líka mjög gaman af því að fylgjast með öðru fólki. Ég á yndislegar systur, mágkonur, frænkur, tengdadóttur og viðskiptafélaga sem veita mér innblástur í hvert sinn sem ég sé þær. Sigríður Margrét er umkrind skemmtilegum konum sem veita henni innblástur.Aðsend Ertu með einhver boð og bönn þegar það kemur að klæðaburði? Nei, mér finnst skipta mestu máli að klæða mig eftir aðstæðum, það er mjög misjafnt hvað er viðeigandi. Á Íslandi verðum við líka að klæða okkur á þann hátt að við getum notið þeirrar einstöku náttúru sem landið okkar hefur að bjóða. Sigríður Margrét með góðum hópi á Hoffelli. Hún segir mikilvægt að geta klætt sig þannig að hægt sé að njóta fallegu náttúrunnar hérlendis.Aðsend Áttu eitthvað eftirminnilegt tískuslys og hvernig var það? Ekki svo ég muni. Þegar ég var ung og nýkominn út á vinnumarkaðinn að námi loknu þá var mér kurteislega bent á að það væri ekki viðeigandi að vera í opnum skóm, ég þyrfti að leggja áherslu á að klæða mig á þann hátt að ég virkaði eldri ef ég vildi að fólk hlustaði á mig. Ég hlýddi þessum ráðum. Spilar álit annarra eitthvað hlutverk í þínu fatavali? Já, ég vinn við að eiga samskipti við annað fólk og er mjög meðvituð um að samskipti snúast ekki bara um það sem er sagt, heldur líka um það hvernig fólk kemur fram og hverju það klæðist. Að öðru leyti er ég lítið upptekin af því hvað öðrum en þeim sem mér þykir vænt um finnst um minn fatastíl. Ég var mjög dugleg að gera tískutilraunir þegar ég var ung en það fer minna fyrir þeim núna. Sigríður Margrét klæðir sig að eigin sögn í takt við starfið.Aðsend Hver er eftirminnilegasta flík sem þú hefur klæðst og af hverju? Nýverið fór ég í árgangagöngu með æskuvinkonum mínum á Ljósanótt í Reykjanesbæ og þar var ég með derhúfu merkta 1976 og í neongrænum bol sem á stóð „Eru ekki allir 76ý?“ Þetta var bæði eftirminnilegt og skemmtilegt. Allir '76ý hér.Aðsend Hvað finnst þér heitast í tískunni fyrir haustið? Það er alveg ljóst að brúnleitir og vínrauðir tónar, rúskinn og kögur eru allsráðandi þessa dagana. Haustinu fylgja alltaf fallegar hlýjar peysur og leðurbuxur, á Íslandi eru góðar leðurbuxur nauðsyn. Ég lét loksins verða af því um daginn að kaupa mér skó frá KALDA og ég er yfir mig hrifin, ekki bara vegna þess hversu fallegir þeir eru heldur líka vegna þess hversu gott er að ganga í þeim. Svo er ég ánægð með að heilbrigði og vellíðan sé í tísku, hvort sem við erum að tala um líkamann, fjárhaginn, samskipti, eða umhverfið. Hlýjar peysur og leðurbuxur eru möst á veturna hérlendis að sögn Sigríðar Margrétar.Aðsend Býrðu yfir einhverju góðu ráði þegar það kemur að tísku? Vertu þú sjálf og mundu að heilsa og vellíðan er nýi lúxusinn, það er ekkert mikilvægara en heilbrigði og það er töff.
Tíska og hönnun Tískutal Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun Fleiri fréttir „Það er smá töffari í mér“ Barnaspítalabindi Billy stal senunni Gellustælar og íslenskar listagyðjur í París Kristrún valdi Victoriu Beckham Fundu hvora aðra í prjónaskapnum Fékk innblástur fyrir Bleiku slaufunni í eigin meðferð Staðráðnar í að koma sterkari til baka Minningar um mömmu það allra verðmætasta Sól sló í gegn á tískuviku í London Fjögurra ára fyrirsætusonur stal senunni Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tískan við þingsetningu: Sólgleraugu, haustlitir og Sigmundur Ernir stal senunni Lúpína verði fyrsta stopp fyrir veisluna eða afmælið Allir og amma þeirra mættu í þjóðbúningi Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Sjá meira