Afmælisbomba í Beautybox og verk Sögu Sig í pottinum „Við höldum afmælisvikuna alltaf heilaga og reynum að gera eitthvað extra skemmtilegt. Við erum ekki oft með afslátt af öllu í versluninni en þessa viku er 20% afsláttur af öllu og sérfræðingar frá vörumerkjunum til taks í búðinni. Þetta er stór vika hjá okkur og hægt að gera virkilega góð kaup,“ segir Íris Björk Reynisdóttir, eigandi Beautybox en verslunin fagnar nú níu ára afmæli. Lífið samstarf 12.8.2026 09:10
Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár „Ég þvoði hárið í gær -hvernig getur það verið orðið feitt í dag? “ Lífið samstarf 12.8.2026 08:17
María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu Hin 24 ára gamla María Hrund naut sín í botn á tískuviku í Kaupmannahöfn full af innblæstri á meðan hún veitti tískuinnendum sjálf mikinn innblástur með frumlegum og skemmtilegum klæðaburði. María starfar sem verslunarstjóri Andrá Reykjavíkur og lifir og hrærist í heimi tískunnar. Tíska og hönnun 11.8.2026 13:28
„Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ „Nú getum við horft til baka með ótrúlega dýrmætar minningar og verið endalaust þakklát fyrir þennan dag,“ segir Sædís Lea Lúðvíksdóttir sem giftist ástinni sinni Henriki Bjarnasyni við draumkennda athöfn í kastala í Frakklandi á dögunum. Hjónin eru sammála um að þetta hafi án alls efa verið skemmtilegasta upplifun lífs þeirra. Lífið 30. júlí 2026 07:00
„Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ „Fyrir þremur árum var ég í Kvennaathvarfinu. Ég gat alls ekki séð fyrir mér að ég myndi upplifa þessa ást einhvern tíma og hvað þá að upplifa jafn fallegan dag og brúðkaupsdagurinn minn var,“ segir Guðný Maja Riba sem gifti sig á dögunum og hefur aldrei verið hamingjusamari. Hún á að baki sér mikla áfallasögu en fyrir tæpum þremur árum umturnaðist líf hennar, til hins betra. Lífið 28. júlí 2026 07:00
„Betra að vera sein og sæt en fljót og ljót“ „Ég hef gaman af því þegar eitthvað sérstakt eða umdeilt kemur í tísku og setur Internetið alveg á hliðina,“ segir hin 21 árs gamla Snædís Baldursdóttir sem elskar tísku og hlakkar alltaf til að klæða sig upp. Hún starfar á leikskóla og sem stuðningsfulltrúi í grunnskóla samhliða því að sinna fyrirsætustörfum í frítíma sínum. Í haust stefnir hún á lögfræðinám við Háskóla Íslands. Tíska og hönnun 27. júlí 2026 20:01
Optical Studio með vinsælan Pop Up markað með allt að 70% afslætti Optical Studio hefur opnað sumar Pop Up markað í Hæðasmára 4 þar sem boðið er upp á mikið úrval af vönduðum sólgleraugum og gleraugnaumgjörðum með allt að 70% afslætti. Lífið samstarf 27. júlí 2026 08:30
Í festival gír með Icewear Stærsta ferða- og festivalhelgi ársins er á næsta leiti og undirbúningur landsmanna í hámarki. Hjá Icewear fæst allt sem þarf fyrir festivalið en réttur fatnaður skiptir sköpum þegar kemur að því að njóta upplifunarinnar til fulls, óháð veðri. Lífið samstarf 24. júlí 2026 11:50
Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri „Augustin hafði beðið afa sinn og ömmu um leyfi hálfu ári áður en hann bað mín. Við vorum öll saman úti að borða og þau töluðu saman á frönsku, þannig að ég hafði enga hugmynd um hvað væri í gangi,“ segir hin nýgifta Margrét Björk Ólafsdóttir sem giftist sínum heittelskaða Augustin Eude við gullfallega athöfn í frönsku sveitinni. Lífið 17. júlí 2026 07:02
Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn „Okkur fannst mikilvægast að brúðkaupið væri í okkar anda og að gestum liði eins og þau væru hluti af veislunni. Þegar fólk var komið upp á borð að dansa áður en eftirrétturinn var borinn fram vissum við að markmiðinu hafði verið náð,“ segja hjónin Lára Hrafnsdóttir og Ásbjörn Daníel Ásbjörnsson sem giftu sig með miklum stæl fyrr í sumar. Lífið 15. júlí 2026 07:01
„Drullið ykkur í burtu“ Kanadíska stórstjarnan Hudson Williams var að þrotum kominn í París á dögunum eftir að hafa verið eltur á röndum af mönnum sem vinna við það að selja eiginhandaráritanir. Einn mannanna tók Williams upp á myndband sem hefur farið sem eldur um sinu á Internetinu. Lífið 14. júlí 2026 16:03
Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum „Ég fór frá því að hafa búið í sama húsinu alla ævi yfir í að flytja til Mílanó án þess að þekkja nokkurn, en borgin varð furðufljótt kunnugleg,“ segir hin 23 ára gamla Fanney Birna fatahönnunarnemi í Mílanó sem var að fá spennandi atvinnutækifæri í Madríd. Blaðamaður ræddi við hana um lífið erlendis, ævintýrin, hversdagsleikann og fleira. Lífið 14. júlí 2026 07:00
Hitavörn, blástursvörn eða UV-vörn? Hvað þarf hárið þitt í raun og veru? Flest okkar munum eftir sólarvörn fyrir húðina en gleymum oft að hárið og hársvörðurinn verða einnig fyrir miklu álagi á hverjum degi. Hitatæki, hárblásarar, UV-geislar, vindur, sjór og klór geta smám saman haft áhrif á styrk, glans og áferð hársins. Lífið samstarf 13. júlí 2026 13:10
Heitast að vera aðeins of fín, alltaf „Ég trúi ekki á tískubönn. Þú getur púllað nánast hvað sem er ef þú berð það með sjálfstrausti,“ segir 23 ára gamli fatahönnuðurinn Stella Michiko. Stella lýsir sér sem eilífum safnara og starfar sömuleiðis hjá tískuversluninni Aftur sem hún elskar. Hún útskrifaðist úr fatahönnun frá LHÍ í vor og tískan er órjúfanlegur hluti af hennar tilveru. Tíska og hönnun 12. júlí 2026 20:00
Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu „Við vildum halda stressi og tímapressu í kringum daginn í algjöru lágmarki svo við ákváðum að splitta þessu í tvennt, giftingin sjálf 17. júní og veislan var svo 20 júní. Með því náðum við lengja gleðina og stuðið í kringum það að giftast hvort öðru,“ segja hin nýgiftu Berglind Ósk Hlynsdóttir og Árni Kristinn Skúlason. Þau héldu sögulega veislu í Viðey fyrir nokkrum vikum og ástin sveif yfir eyjunni. Lífið 8. júlí 2026 07:02
Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Mér finnst tíska ekki eiga að snúast um reglur heldur um forvitni og leikgleði,“ segir hin 25 ára gamla Sigurbjörg Birta Pétursdóttir. Hún er verslunarstjóri í nytja-tískuversluninni Spúútnik í Kringlunni og segist elska að vera umkringd fjársjóðum annarra alla daga. Lífið 7. júlí 2026 20:00
Stórbrotinn stíll Zendayu Það er of vægt til orða tekið að segja að leikkonan Zendaya beri af í klæðaburði. Engin önnur stjarna kemst með tærnar þar sem hún hefur hælana og undanfarið hefur henni tekist að toppa sjálfa sig algjörlega. Tíska og hönnun 7. júlí 2026 14:00
Geirvörtur og latex vekja athygli í París Tískuhúsið Schiaparelli er eitt það heitasta í dag og vekur alltaf hvað mesta athygli á tískuvikum víða um heim. Daniel Roseberry er listrænn stjórnandi merkisins og einkennist hönnun hans af gríðarlegri sköpunargleði og frumlegheitum sem hafa aldrei sést fyrr. Tíska og hönnun 6. júlí 2026 15:54
Listabarn á leiðinni Listamennirnir Viktor Weisshappel og Ylfa Eysteinsdóttir eiga von á barni. Þetta er fyrsta barn parsins en Viktor og Ylfa hafa verið par í þónokkur ár. Lífið 6. júlí 2026 13:52
Sassy fagnar 5 ára afmæli og stórum kaflaskiptum Það er engu líkara en það hafi gerst í gær að verslunin Sassy opnaði dyrnar í fyrsta sinn. Þriðjudaginn 7. júlí fagnar þessi ástsæla verslun fimm ára afmæli Vegferðin hefur verið ævintýri líkust. Sassy hefur vaxið úr því að vera lítill draumur yfir í að verða ein vinsælasta net- og sérverslun landsins á sviði vandaðra undirfata. En afmælið er ekki eina tilefnið til að fagna, því framundan eru stórar breytingar hjá Sassy. Lífið samstarf 6. júlí 2026 10:05
Osaka best klædd á Wimbledon Tennisdrottningin Naomi Osaka fer alltaf eigin leiðir í tískunni og ber af hvert sem hún fer, þá sérstaklega þegar hún hitar upp fyrir tennisleiki. Þessi tískubrautryðjandi er þekkt fyrir tískuáhættu og klæðin hennar segja alltaf skemmtilega sögu. Tíska og hönnun 2. júlí 2026 07:03
Mango opnar í Kringlunni Verslun spænska tískuvörumerkisins Mango var opnuð á laugardaginn í Kringlunni. Viðskipti innlent 1. júlí 2026 11:20
Krýndur tískukóngur fótboltans Norska fótboltastjarnan Erling Haaland hefur spilað sig inn í hjörtu margra fótboltaunnenda og eru fáir leikmenn sem hafa vakið jafn mikla athygli á HM í ár, sérstaklega ef marka má samfélagsmiðilinn TikTok. Hann er ekki bara stjarna í fótboltanum því hann virðist vera einn sá vinsælasti hjá tískuheiminum líka. Tíska og hönnun 1. júlí 2026 11:01
Grætti nánast alla í athöfninni „Þetta var ástarpartý aldarinnar í okkar huga,“ segja hin nýgiftu Unnur Elísabet Gunnarsdóttir og Þorgils Helgason sem buðu nánustu vinum og fjölskyldu í glæsilegt brúðkaupi í Sitges á dögunum. Hjúin hafa verið par í tíu ár og áttu mjög erfitt með að halda aftur tárunum á stóra deginum, sem og allir aðrir gestir. Lífið 1. júlí 2026 07:01