Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Áróra L Davíðsdóttir skrifar 14. september 2026 23:10 Snæbjörn Ragnarsson, hugmynda- og textasmiður á auglýsingastofunni Pipar TBWA, var til viðtals í Reykjavík síðdegis og ræddi meðal annars notkun gervigreindar við hönnunarvinnu. Bylgjan Snæbjörn Ragnarsson, tónlistarmaður og sköpunarstjóri á auglýsingastofunni Pipar TBWA, segir gervigreind vera gagnlegt tól í hönnunarvinnu en hún eigi ekki að koma að lokaafurð hönnunarinnar. Umræðan sé strembin en enn eigi almenningur eftir að átta sig á því hvað gervigreind raunverulega sé. „
Það er náttúrulega á okkar ábyrgð að við eigum ekkert að sýna börnunum eitthvað sem er ekki í lagi. Þú getur ekki rétt börnum eitthvað fjöldaframleitt þar sem orðið lögreglan er ekki rétt stafsett. Þá ertu bara að segja þeim að svona lagað sé í lagi,“ sagði Snæbjörn hann var til viðtals í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Í gær vakti Facebook-færsla Braga Valdimars Skúlasonar mikla umræðu þar sem hann birti mynd af límmiða sem dreift var til grunnskólabarna frá lögreglunni. Hins vegar stóð ekki „lögregla“ á vestum lögregluþjónanna á límmiðanum heldur „lógregla.“ Margir vörpuðu þeirri spurningu fram hvort gervigreind hafi verið nýtt við verkið. Snæbjörn segir að augljóslega hafi enginn verið fenginn til þess að lesa yfir lokaafurðina. „Að lögreglan hafi ekki vit á því að senda eitthvað frá sér sem í fyrsta lagi lítur svona út, vitandi hvernig umræðan hefur verið, sem kannski endurspeglast í því að þau láta eitthvað frá sér sem er ekki stafsett rétt.“ Málið snúist miklu frekar um dómgreind en gervigreindina sjálfa. „Ég held þetta snúist miklu meira um dómgreind í hvert skipti heldur en nákvæmlega gervigreindina,“ sagði Snæbjörn. Bragi Valdimar sagði í færslu sinni að „flennifyrirtæki hafi í leyfis- og umboðsleysi skrapað upp alla mögulega teikni-, tón- og myndstíla sem hæfileikafólk hefur þróað og fullkomnað — til þess að við getum auðveldlega útbúið til að mynda límmiða fyrir börn án þess að splæsa í óþarfa milliliði, á borð við teiknara og hönnuði. Eða yfirlesara,“ skrifaði hann. Aðspurður segir Snæbjörn störf prófarkalesara, hönnuða og þýðenda ekki farin að hverfa á auglýsingastofunni. „Ég get náttúrulega ekki svarað fyrir alheiminn. En ekki okkar megin. Ég hef ekki fundið fyrir því.“ Gervigreindin hafi þó mikil áhrif og nýtist vel í ýmislegt í hönnunarstarfi og sjálfur noti hann hana daglega. Hún nýtist hins vegar ekki í lokaafurð hönnunarstarfs. „Við notum gervigreindina til að hjálpa okkur en ekkert sem þú sérð í lokaafurðinni er gervigreind “ Eigum eftir að komast að því hvað gervigreind sé Umræðan um gervigreind geti reynst afar strembin þar sem hún sé ný af nálinni fyrirbæri. Enn eigi almenningur eftir að sammælast um hvað gervigreind í rauninni sé. „Við erum alltaf að rífa allt niður um leið og það kemur. Ég held að það sem við eigum eftir að gera með gervigreindina sé að komast að því hvað hún er. Þetta er svo nýtt enn þá að við erum að nota hana sem eitthvað sem ég held að hún endi ekkert með að verða.“
Gervigreind Börn og uppeldi Auglýsinga- og markaðsmál Tíska og hönnun Reykjavík síðdegis Bylgjan Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira