Fótbolti

Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins

Andri Broddason skrifar
Cristiano Ronaldo er mikils metinn innan Al Nassr.
Cristiano Ronaldo er mikils metinn innan Al Nassr. Abdullah Ahmed/Getty Images

Eftir dramatík innan herbúða portúgalska landsliðsins hefur Cristiano Ronaldo snúið aftur til Sádi-Arabíu þar sem hann spilar með Al Nassr. Jorge Jesus, landsliðsþjálfari Portúgals og fyrrverandi þjálfari Al Nassr, sagði að Ronaldo væri velkominn til baka í landsliðið en hann ætlaði ekki að biðjast fyrirgefningar.

Ronaldo virðist hafa farið í fýlu eftir að hafa ekki komið við sögu í fyrsta leik Portúgals í landsleikjaglugganum þar sem liðið vann Noreg 2-1. Eftir að hafa farið á fund með Jesus, landsliðsþjálfara og forseta portúgalska knattspyrnusambandsins, yfirgaf Ronaldo æfingabúðir Portúgals daginn fyrir leik liðsins gegn Danmörku.

Ekki er vitað hvort að Ronaldo muni snúa aftur í landsliðið en næsti landsleikjagluggi verður um miðjan nóvember. Ronaldo sagðist ætla að segja frá því sem gerðist þegar tími til þess kæmi sem gefur í skyn ranglæti í hans garð.

Þrátt fyrir vesen hjá landsliðinu virðist honum líða vel hjá félagsliðinu Al Nassr þar sem félagið deildi mynd af Ronaldo undir titlinum „Besti íþróttamaðurinn.. í hjarta Najd,“ sem er landsvæði í Sádi-Arabíu.

Al Nassr er í þriðja sæti sádi-arabísku úrvaldsdeildarinnar þegar sjö umferðir eru búnar. Liðið er aðeins tveim stigum frá toppliði Al Hilal og er liðið því á góðum stað. Í fyrstu sjö leikjunum er Ronaldo búinn að skora þrjú mörk en hann er enn að ná markmiði sínu um að skora þúsund mörk á sínum meistaraflokksferli.

Hann er búinn að skora 979 mörk í heildina og þarf hann því aðeins að skora 21 mark til viðbótar til þess að ná markmiði sínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×