Skoðun

Styrk­leikar barna og ung­menna – grunnur að betri líðan og náms­árangri

Steinn Jóhannsson skrifar

Umræða um stöðu barna og ungmenna beinist oft að áskorunum, en jafn mikilvægt er að draga fram það sem vel gengur og byggja á styrkleikum. Niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar fyrir Reykjavík 2026 varpa ljósi á líðan, heilsu, skólagöngu, félagsleg tengsl og þátttöku. Um 92% nemenda í 6.–10. bekk telja mikilvægt að leggja sig fram í námi, 87% líkar vel í skólanum og 90% líður vel í kennslustundum. Börnin og ungmennin okkar búa yfir áhuga, eru sterk félagslega og búa yfir tengslum sem geta stutt við nám og farsæld.

Félagsleg tengsl eru einn helsti styrkurinn. Um 98–99% barna og ungmenna eiga einn eða fleiri góða vini og mörg taka þátt í íþróttum, listnámi, félagsmiðstöðvastarfi eða ráðum innan skóla. Slík þátttaka eflir sjálfstraust, samvinnu, ábyrgð og þrautseigju. Samkvæmt PISA 2025 felast styrkleikar íslenskra nemenda í þrautseigju, seiglu og félagslegum tengslum í skóla, þótt námsárangur sé undir meðaltali OECD. Tækifærið felst í að virkja þessa eiginleika með skýrum markmiðum, krefjandi en viðráðanlegum verkefnum og reglulegri endurgjöf. Um 90% nemenda í 6.–10. bekk upplifa stuðning fjölskyldu og 84% eiga auðvelt með að ræða vandamál við að minnsta kosti annað foreldri. Þessi tengsl eru mikilvægur verndandi þáttur og skapa góð skilyrði fyrir nám.

Til að nýta styrkleikana betur þarf skóla- og frístundastarf að tengjast áhuga nemenda. Verkefni um íþróttir, tómstundir, listir, tækni, vísindi, samfélag eða umhverfi geta gert námið merkingarbærara. Samvinna, hópverkefni og stuðningur jafningja geta aukið virkni og skilning. Einnig má byggja sterkari brú milli náms, frístundastarfs og tómstunda og nýta skýr markmið, reglulega þjálfun, uppbyggilega endurgjöf og sterka liðsheild. Börn og ungmenni þurfa raunveruleg tækifæri til að hafa áhrif á eigið nám og skólasamfélag. Þegar hlustað er á hugmyndir þeirra og þeim falin ábyrgð eykst tilfinning fyrir tilgangi og eigin getu. Reykjavíkurráð ungmenna og þátttaka þess í skóla- og frístundaráði Reykjavíkurborgar er dæmi um slíkt. Jákvæð heildarmynd má þó ekki fela áskoranir einstakra hópa. Gögn sýna þreytu, álag, vanlíðan og ólíka stöðu eftir kyni og uppruna. Því þarf að styrkja tengsl milli fjölskyldna, skóla og skipulagðs frístundastarfs til að greina vanda snemma og koma inn með stuðning. Öflugar forvarnir byggjast á því að efla verndandi þætti, fylgjast með líðan barna og bregðast við áður en vandi festist í sessi. Samvinna heimila, skóla, frístundastarfs og velferðar- og heilbrigðisþjónustu getur komið í veg fyrir að vandi vaxi og skapað aðstæður þar sem fleiri börn tilheyra, ná árangri og nýta styrkleika sína.

Höfundur er sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar.




Skoðun

Sjá meira


×