Rekinn frá Tyrkjum Valur Páll Eiríksson skrifar 7. október 2026 12:45 Montella kom Tyrkjum á HM í sumar en hefur nú verið látinn taka poka sinn eftir fjögur töp í fjórum leikjum í A-deild Þjóðadeildarinnar. Getty Vincenzo Montella hefur verið sagt upp störfum sem landsliðsþjálfari Tyrklands eftir rúm þrjú ár í starfi. Tyrkjum gekk ekki vel í nýliðnum landsliðsglugga.
Montella stýrði síðasta leik sínum með liðið í heimalandinu Ítalíu þar sem Tyrkir töpuðu 3-1 fyrir Ítölum í Þjóðadeildinni á mánudagskvöldið var. Um var að ræða fjórða tap Tyrkja í nýliðnum fjögurra leikja glugga. Tyrkir töpuðu 1-0 fyrir Frökkum og 4-1 fyrir Ítölum á heimavelli og í kjölfarið 3-0 fyrir Belgum og 3-1 fyrir Ítölum á útivelli. Montella tók við Tyrkjum í september árið 2023 en hefur nú verið sagt upp störfum. Tyrkir voru í 42. sæti heimslistans þegar hann tók við en hann skilur við liðið í 27. sæti. Montella stýrði Tyrkjum tvisvar gegn íslenska landsliðinu haustið 2024 í Þjóðadeildinni, þegar Ísland var undir stjórn Age Hareide. Tyrkir unnu báða leiki, 3-1 í Tyrklandi og 4-2 á Laugardalsvelli. Um var að ræða fyrsta landsliðsstarf Montella en hann hafði áður stýrt Roma, Catania, Fiorentina, Sampdoria, AC Milan og Fiorentina í heimalandinu auk Sevilla á Spáni og Adana Demirspor í Tyrklandi. Hann var áður lipur framherji sem leikmaður og skoraði 83 mörk í 192 deildarleikjum fyrir Roma. Hann varð ítalskur meistari með liðinu árið 2001.
Tyrkneski boltinn Ítalski boltinn Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti Fleiri fréttir Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Býst við dæmigerðum leik upp á Skaga í Tallinn Kokhraustir Eistar þegar búnir að toppa sig Sjá meira