Lífið

Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þórhallur Sigurðsson og Randver Þorláksson í hlutverkum Singh og Jóns Óttars Ragnarssonar.
Þórhallur Sigurðsson og Randver Þorláksson í hlutverkum Singh og Jóns Óttars Ragnarssonar.

„Þetta var erilsamur, spennandi og ógleymanlegur dagur,“ segir Gurmel Singh, tæknistjóri frá Sony, sem öll spjót beindust að á Krókhálsi í október 1986 þegar fyrsta einkarekna sjónvarpsstöðin átti að fara í loftið á Íslandi. Pressan var mikil enda beindist kastljós heimsins að Íslandi vegna leiðtogafundarins í Höfða.

Einkarekið sjónvarp á Íslandi fagnar fjörutíu ára afmæli sínu í dag undir merkjum Sýnar en fjörutíu ár eru síðan Stöð 2 fór í loftið. Reykjavík var á öðrum endanum, sjálfur leiðtogi hins frjálsa heims á leið til landsins og á Krókhálsi lék Stöð 2 á reiðiskjálfi og við lá að út breiddist stórstyrjöld á Krókhálsinum þegar sjónvarpsstjórinn mætti til vinnu um morguninn og sá kapladræsur og ótengd tæki í kössum um öll gólf.


Í tilefni dagsins verður sérstakur afmælisþáttur sýndur á Sýn og Vísi þar sem lykilfólk á stöðinni í gegnum árin kemur saman og óhætt að segja að stuðið sé mikið. Þátturinn hefst klukkan 19:20 í opinni dagskrá.


Upphafsárin mögnuðu voru til umfjöllunar í þáttunum Ljósvakavíkingar sem Lóa Pind Aldísardóttir gerði á 25 ára afmæli stöðvarinnar árið 2011. Þar eru upphafsárin, gleðistundirnar og hið ýmsa bras tekin fyrir.

Fólkið sem var á staðnum sparar ekki lýsingarnar. Fólk hafi siglt í gegnum ástandið hálfmeðvitundarlaust og Páll Magnússon, fyrsti fréttastjóri Stöðvar 2, rifjar upp að menn hafi staðið uppi með fleiri þúsund snúrur og enginn vitað hvernig ætti að koma þeim saman.

Fólk var á fullu fram á síðustu stundu og fréttamenn RÚV mættir til að fylgjast með, sem minnkaði ekki pressuna.

„Þetta er sá dagur sem mun aldrei úr minni líða. Þetta var stórkostlegasti dagur lífs míns,“ sagði Jón Óttar Ragnarsson, fyrsti sjónvarpsstjóri Stöðvar 2, og fór í loftið með opnunarávarpið sem eins og flestir vita var hljóðlaust. En fall er fararheill.

Eiginkonan róaði Singh

Indverjinn Gurmel Singh var ein af hetjum dagsins í kapphlaupi við tímann svo allt færi í loftið. Hann var svo staddur í Færeyjum ári síðar þegar honum barst óvænt spóla frá móttökustjóra á hótelinu sem hann gisti á. Þar mátti sjá atriði úr áramótaskaupinu þar sem gert var grín að öllu saman og Laddi lék í fullum skrúða. Eitthvað sem væri í það minnsta á gráu svæði í dag. Í það minnsta hafði Singh lítinn húmor fyrir gríninu. 

Singh var ekki skemmt en konan hans sagði honum að slaka á og útskýrði að þetta væri bara grín.

„Konan mín sagði mér að slaka á. Þetta væri bara grín.“

Singh veit enn þann dag í dag ekki hver sendi honum spóluna.

Hann fer á kostum í þáttunum og rifjar upp þegar Páll Magnússon sagði honum óvænt að það yrðu fréttir í sjónvarpi um kvöldið. Singh, þreyttur og sveittur eftir öll átökin við að koma stöðinni í loftið, svaraði honum.

„Ég sagði honum að það væri ekki góð hugmynd.“

Þættirnir Ljósvakavíkingar voru fimm talsins og rekja 25 ára sögu Stöðvar 2, og síðar Sýnar, með mjög áhugaverðum og skemmtilegum hætti. Dramatíkina við upphafið má sjá í lok fyrsta og byrjun annars þáttar en óhætt er að mæla með áhorfi.

Fyrstu tvo þættina má sjá að ofan og hina þrjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.