Fótbolti

Mikil ó­vissa um þátt­töku Alberts í mikil­vægum lands­leikjum

Aron Guðmundsson skrifar
Albert liggur eftir á vellinum í leiknum gegn Eistlandi
Albert liggur eftir á vellinum í leiknum gegn Eistlandi Vísir/Anton Brink

Ljóst er að Albert Guðmundsson verður eitthvað lengur frá eftir að hafa meiðst í leik með íslenska landsliðinu í Þjóðadeild UEFA á dögunum. Þjálfari Alberts hjá Lazio tjáði sig um stöðuna á landsliðsmanninum.

Albert meiddist í fyrsta leik Íslands í nýafstöðnum landsleikjaglugga hér heima á Laugardalsvelli, gegn Eistlandi. Albert fór úr axlarlið og spilaði ekki næstu þrjá leiki Íslands í glugganum.

Gennaro Gattuso, þjálfari Lazio, tjáði sig um stöðuna á Alberti fyrir leik liðsins um helgina í ítölsku úrvalsdeildinni og sagði enn tíu til tólf daga í að hægt væri að taka stöðuna á Alberti.

Lazio vann 3-1 sigur gegn Monza í gær og er með jafnmörg stig og topplið Inter þegar sex umferðir hafa verið leiknar.

Hægt er að segja að mikil óvissa sé því uppi varðandi þátttöku Alberts í tveimur mikilvægum lokaleikjum Íslands í Þjóðadeildinni sem fram fara um miðjan nóvember.

Ísland vermir toppsæti síns riðils og er með tveggja stiga forskot. Liðið heimsækir Búlgaríu þann 13. nóvember næstkomandi og tekur síðan á móti Lúxemborg í lokaleik sínum þremur dögum síðar.

Með því að enda í toppsæti riðilsins færi Ísland beint upp í B-deild Þjóðadeildarinnar og gæti toppsætið reynst okkur mikilvægt fyrir mögulegt umspil fyrir EM 2028.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×