Fótbolti

Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern

Sindri Sverrisson skrifar
Herman Haugen fagnar jöfnunarmarkinu gegn Bayern í kvöld.
Herman Haugen fagnar jöfnunarmarkinu gegn Bayern í kvöld. Getty/Marius Nordnes

Það voru óvænt úrslit í Meistaradeild Evrópu í kvöld þegar til að mynda Noregsmeistarar Viking náðu 3-3 jafntefli við Bayern á heimavelli og Inter tapaði 4-3 á heimavelli gegn Club Brugge.

Barcelona vann 4-1 gegn Galatasaray í Tyrklandi þrátt fyrir að hafa lent undir á 28. mínútu. Joao Cancelo jafnaði metin fyrir hlé og Fermín López, Anthony Gordon og Karim Adeyemi tryggðu sigurinn í seinni hálfleik.

Í Noregi virtust gestirnir frá Bayern ætla að vinna endurkomusigur, eftir að hafa lent 2-0 undir, því Harry Kane skoraði tvívegis í seinni hálfleik og Luis Díaz kom Bayern í 3-2 á 71. mínútu. En þegar komið var fram á 90. mínútu náði Herman Haugen að jafna metin og heimamenn freistuðu þess raunar að skora sigurmark enda manni fleiri frá því að Michael Olise var rekinn af velli á 73. mínútu.

U21-landsliðsmaðurinn Amin Cosic var í leikmannahópi Viking og fylgdist með veislunni en kom ekki inná að þessu sinni.

Lautaro Martínez skoraði tvö mörk fyrir Inter en það dugði skammt gegn Club Brugge þar sem Nicolo Tresoldi skoraði þrennu og Romeo Vermant eitt, í 4-3 sigri Belganna.

Leipzig vann PSV 1-0 og Villarreal hafði betur gegn Napoli, 3-1. Fyrr í dag vann Sabah sinn fyrsta sigur í keppninni, 2-0 gegn Slavia Prag, og Sporting Lissabon vann 2-0 útisigur gegn Lens.


Tengdar fréttir

Atlético yfir í 89 mínútur og raunir United-manna aukast

Atlético Madrid vann 2-0 sigur gegn Manchester United í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í kvöld eftir að hafa komist yfir strax á fyrstu mínútu leiksins. Rauða spjaldið fór á loft þegar korter var til leiksloka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×