Enski boltinn

Upp­sagnir hjá Arsenal

Valur Páll Eiríksson skrifar
Arteta fékk nýjan samning sem gerði hann að einum launahæsta ef ekki launahæsta stjóra ensku úrvalsdeildarinnar í síðustu viku.
Arteta fékk nýjan samning sem gerði hann að einum launahæsta ef ekki launahæsta stjóra ensku úrvalsdeildarinnar í síðustu viku. Getty

Arsenal hyggst segja upp 60 manns vegna niðurskurðar þrátt fyrir sigur í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og mettekjur tímabilið 2024-25.

Samkvæmt frétt The Athletic tilkynnti félagið starfsfólki þetta í dag. 60 manns verður sagt upp þvert á deildir. Arsenal sjái fram á töluverðan sparnað vegna uppsagnanna.

Þjálfarateymi karla- og kvennaliðs félagsins eru meðal sviða sem verða ekki fyrir áhrifum uppsagnanna, auk góðgerðadeildar félagsins og öryggissviðs.

Málið er enn til skoðunar hjá félaginu og gæti breyst, samkvæmt fréttinni.

Fregnirnar koma í kjölfar þess að liðið vann enska meistaratitilinn í fyrsta sinn í 22 ár undir stjórn Mikel Arteta í vor og tímabilið fyrir það, 2024-25, skilaði Arsenal mettekjum upp á 691 milljón punda.

Tölurnar fyrir síðustu leiktíð liggja ekki fyrir.

Fréttirnar koma einnig aðeins viku eftir að Mikel Arteta skrifaði undir nýjan samning til 2030. Sá samningur á að hafa hækkað hann umtalsvert í launum og gert hann að einum, ef ekki launahæsta stjóra deildarinnar.

Meðlimir þjálfarateymis Arteta hjá Arsenal framlengdu einnig samninga sína við félagið og má leiða líkur að því að laun flestra hafi einnig hækkað.

Arsenal skar síðast niður í kórónuveirufaraldrinum en þá var 55 manns sagt upp þvert á deildir og var sú ákvörðun harðlega gagnrýnd af stuðningsmönnum félagsins.

Arteta er á meðal starfsfólks sem tók á sig launalækkun á meðan faraldrinum stóð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×