Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar 14. október 2026 14:01 Í íslenskum grunnskólum stendur enn ein innleiðingin yfir. Nú á að taka upp tölueinkunnir í stað bókstafa og er breytingin kynnt sem aukið gagnsæi og samræming. Slík orð hljóma alltaf vel í fréttatilkynningum. Þegar nánar er að gáð er þó óljóst hvað tölurnar eiga að merkja, hvernig þær verða sambærilegar milli skóla og eftir hvaða sameiginlegu viðmiðum þær verða ákvarðaðar. Allt í einu verður gagnsæið dálítið móðukennt, svona eins og gleraugu með plús sjö styrk. Breyttar umbúðir en innihaldið ófrágengið Samkvæmt fyrirliggjandi drögum eiga nemendur í 10. bekk að útskrifast vorið 2027 með einkunnir frá 4 til 10. Lokaeinkunn í námsgrein á að vera vegið meðaltal einkunnaflokka samkvæmt útfærslu hvers skóla. Skólarnir þurfa því sjálfir að túlka og forgangsraða hæfniviðmiðum, flokka námsþætti og ákveða vægi þeirra. Ef hver skóli ákveður hvað vegur þungt er erfitt að sjá hvernig einkunnir verða sjálfkrafa sambærilegar. Tvær sjöur geta þá táknað sinn hvorn veruleikann. Hjálmar Hafliðason hefur bent á að breytt framsetning sé ekki sjálfkrafa umbót. Guðjóna E. Friðriksdóttir hefur spurt hvaða vandamál eigi að leysa og hvernig breytingin eigi að bæta nám. Kristín Björnsdóttir hefur gagnrýnt skort á undirbúningi og samráði og Sædís Ósk Harðardóttir bent á óvissuna sem blasir við kennurum og nemendum, ekki síst þeim sem fylgja einstaklingsnámskrá. Ég er sammála þeirra skrifum. Þetta eru ekki raddir fólks sem óttast breytingar heldur faglegar spurningar frá fólki sem þarf að láta þær ganga upp í raunverulegum skólastofum. Fyrst skal stökkva síðan smíða fallhlífina Ákvörðunin var kynnt 7. ágúst 2026, örfáum dögum áður en skólastarf hófst. Drög að bráðabirgðaákvæði aðalnámskrár voru ekki sett í Samráðsgátt fyrr en 8. október, þegar kennarar voru þegar komnir af stað í innleiðingarvinnu og flestir skólar búnir að skrifa skólanámskrár sínar. Stuðningsefni og tillögur að vægi hafa síðan verið að birtast og breytast. Leiðbeinandi vægi fyrir 10. bekk var uppfært 7. október og efni um einstaklingsnámskrár enn merkt sem væntanlegt. Fyrst var því tilkynnt að farið skyldi af stað, síðan hófst vinna við að ákveða hvert ætti að fara og loks var leitað samráðs um ferðalagið. Þetta er óneitanlega nýstárleg verkefnastjórnun. Sjö menntamálaráðherrar á þrettán árum Frá árinu 2013 hafa sjö einstaklingar gegnt embætti menntamálaráðherra eða sambærilegu embætti. Frá 2017 hafa þeir verið sex: Kristján Þór Júlíusson, Lilja Alfreðsdóttir, Ásmundur Einar Daðason, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Guðmundur Ingi Kristinsson og nú Inga Sæland. Frá því Flokkur fólksins tók við málaflokknum í desember 2024 hafa þrír ráðherrar flokksins farið með embættið. Þrír ráðherrar á rúmu ári gefa takmarkað svigrúm fyrir þá festu og framtíðarsýn sem skólakerfið þarf. Ráðherrastóllinn er orðinn eins og rússnesk rúlletta. Við vitum hvorki hver sest næst í hann né í hvaða átt viðkomandi stýrir skólakerfinu. Stefnan virðist stundum ráðast fremur af dagsformi eða fæðingardegi ráðherrans en fagmennsku. Ásthildur Lóa sat aðeins í tæpa þrjá mánuði og vék vegna máls úr fortíð sinni, ekki vegna starfa sinna í ráðuneytinu. Þar vék jafnframt sá ráðherra síðustu ára sem hafði mesta beina reynslu af grunnskólastarfi. Hún er kennaramenntuð, kenndi í fjölmörgum skólum í rúma tvo áratugi og sat í stjórn og samninganefnd Félags grunnskólakennara. Það er umhugsunarvert að ráðherrann með mestu kennslureynsluna hafi setið skemmst, en ráðherrar með litla eða enga beina reynslu af kennslu fái svigrúm til að setja umfangsmiklar breytingar af stað með örskömmum fyrirvara. Skólar þurfa langtímastefnu sem stendur af sér ráðherraskipti og kjörtímabil, ekki nýtt gæluverkefni í hvert sinn sem nýr lykill gengur að ráðherraskrifstofunni. Námskrá, námsmat og námsefnisgerð eiga að byggjast á faglegri og þverpólitískri stefnu, ekki geðþótta þess sem sest hverju sinni í stólinn. Verkefnið endar á borði kennarans Ráðuneytið segir skólunum að „útfæra“ breytinguna. Á góðri íslensku merkir það að kennarar hvers skóla þurfa að vinna verkið, hver á sinn hátt. Þeir þurfa að túlka hæfniviðmið, ákveða vægi, endurskrifa kennsluáætlanir, endurgera verkefni, hanna matsramma, aðlaga skráningarkerfi og útskýra breytingarnar fyrir nemendum og foreldrum. Á sama tíma sinna þeir kennslu, undirbúningi, yfirferð, stuðningi við nemendur, foreldrasamskiptum, farsældarstarfi, teymisvinnu og sívaxandi stjórnsýslu. Þar að auki útbúa kennarar stóran hluta þess námsefnis sem notað er vegna skorts á nýju efni. Takk, gervigreind. Innleiðingin kemur sérstaklega illa niður á litlum skólum. Þar getur einn kennari borið ábyrgð á heilu greinasviði. Þar er ekki hægt að boða tíu manna fagdeild á fund og skipta verkefninu niður. Tími sem fer í að smíða matskerfi sem átti að vera tilbúið áður en innleiðing hófst er tekinn frá kennslu, undirbúningi og endurgjöf. Sólarhringurinn hér á jörðinni er enn aðeins 24 klukkustundir. Kannski ættum við að flytja skólana til Merkúríusar, þar sem einn sólardagur varir rúmlega 4.200 klukkustundir. Þar kynni loksins að gefast tími fyrir allar innleiðingarnar. Tvöföld vinna í boði menntamálaráðherra Samhliða þessu hefur verið boðuð endurskoðun greinasviða aðalnámskrár, meðal annars í íslensku, stærðfræði og náttúrugreinum. Kennarar eiga því fyrst að endurhanna námsmat samkvæmt núverandi námskrá og síðan hugsanlega að endurtaka vinnuna þegar henni verður breytt á næsta ári. Þetta væri kallað sóun á öðrum vinnustöðum, sér í lagi í einkageiranum. Í skólastarfi heitir það innleiðing. Ég á erfitt með að trúa því að sveitarfélögin sætti sig við að tími stærsta einstaka hóps starfsmanna þeirra sé nýttur með þessum hætti Ef endurskoðun námskrár er fram undan hlýtur að vera sjálfsagt að vinna námskrá, hæfniviðmið og námsmat sem eina heild og gefa því tíma. Allt annað er tvíverknaður sem greiddur er með tíma kennara og kemur að lokum niður á gæðum kennslunnar. Hvar er nýja námsefnið? Á meðan mikil orka fer í að breyta táknum, litum og tölum á vitnisburðarblöðum búa kennarar við skort á nýju og vönduðu námsefni á íslensku. Nær væri að stjórnvöld spýttu í lófana og stórefldu útgáfu kennslubóka, rafbóka, myndefnis, gagnvirks efnis, tilraunalýsinga og stuðningsefnis fyrir fjölbreyttan nemendahóp. Þar væri hægt að ráðast í umbætur sem nemendur og kennarar fyndu raunverulega fyrir. Einnig þarf að styðja myndarlega við íslenska höfunda sem skrifa fyrir börn og ungmenni. Við bætum ekki læsi eingöngu með mælingum, skimunum og nýjum einkunnakvörðum. Börn þurfa bækur sem þau langar að lesa. Við getum mælt lestrarfærni eins oft og okkur sýnist. Ef börn fá ekki bækur og efni við hæfi kemur mælistikan ein og sér seint til bjargar, sama þótt við breytum kvarðanum. Gagnsæi verður ekki til með því að skipta um leturgerð Tala er ekki sjálfkrafa skýrari en bókstafur. Hún verður aðeins gagnsæ ef sameiginlegur skilningur er á því hvað hún merkir. Áður en nýtt námsmat verður skyldubundið þurfa að liggja fyrir samræmd matsviðmið, skýr dæmi um frammistöðu, fullbúin útfærsla fyrir nemendur með einstaklingsnámskrá og skýrar reglur um hvernig framhaldsskólar nota einkunnirnar við inntöku. Einnig þarf að meta vinnuálag, áhrif á litla skóla og hættuna á auknu ósamræmi. Skólum þarf að tryggja tíma og fjármagn til vinnunnar. Nemendur eiga ekki að vera tilraunahópur og kennarar ekki ólaunað þróunarteymi stjórnvalda. Ég segi því: „Stop nu.“ Gagnrýnin beinist ekki að þeim sem hafa verið fengnir til að smíða fallhlífina á leiðinni niður. Hún beinist að þeim sem ákváðu að stökkva áður en hún var tilbúin. Ég er ekki tilbúin að stökkva. Höfundur er deildarstjóri unglingastigs og kennari við Reykholtsskóla. Upplýsingar eru meðal annars sóttar í neðangreint efni Guðjóna Eygló Friðriksdóttir – Til hvers erum við að breyta námsmatinu? – 13. ágúst 2026. Hjálmar Bogi Hafliðason – Mikið uppnám fyrir lítið innihald – 3. október 2026. Hjálmar Bogi Hafliðason – Þegar framsetning verður að umbótum – 17. ágúst 2026. Kristín Björnsdóttir – Geðþóttaákvörðun barna- og menntamálaráðherra? – 13. ágúst 2026. Mál S-193/2026 í Samráðsgátt stjórnvalda. Sædís Ósk Harðardóttir – Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum – 24. september 2026. Skjöl og sniðmát vegna námsmats – Aðalnámskrá grunnskóla. Tölustafir innleiddir í stað bókstafa – Stjórnarráðið – 7. ágúst 2026 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson Skoðun Spilin sem enginn vill fá Sigríður Eva Þorsteinsdóttir Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson Skoðun Tilvistarkreppa borðstofunnar Gunnar Salvarsson Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir Skoðun Er mikið umframboð á fasteignamarkaði? Ólafur Margeirsson Skoðun Skoðun Skoðun Er mikið umframboð á fasteignamarkaði? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Spilin sem enginn vill fá Sigríður Eva Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Vöruverðið á vegum úti Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Lífið í Grindavík í dag – þakklæti, óvissa og trú á framtíðina Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hugsum fram í tímann Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun er besta byggðastefnan Lilja Björg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað kemur ESB málinu við? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar Skoðun Flokkur fólksins klippir á bremsur unga fólksins Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Tilvistarkreppa borðstofunnar Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Af hverju ekki hún? Thelma Kristín Kvaran skrifar Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Hvers vegna eru niðurstöður PISA leyndarmál? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um tillögurnar? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Spyrjið okkur hvað við sjáum á TikTok Lena Amirsdóttir Mulamuhic skrifar Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvæg niðurstaða fyrir launafólk Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Vextir og vöxtur nýsköpunar Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir skrifar Sjá meira
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun
Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson Skoðun
Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar
Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar
Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar
Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun
Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson Skoðun