Sport

Lætur Ingu Sæ­land heyra það: „Óboð­legt og frekar hroka­fullt“

Aron Guðmundsson skrifar
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra og formaður Flokks fólksins.
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra og formaður Flokks fólksins. Vísir/Viktor Freyr

Einn af atvinnumönnum okkar Íslendinga í hnefaleikum er allt annað en sáttur með afstöðu Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra er snýr að atvinnumannahnefaleikum hér á landi. 

Líkt og greint var frá á Vísi í gær er Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, á þeirri skoðun að atvinnumannahnefaleikar eigi áfram að vera bannaðir samkvæmt lögum hér á landi.

Ætlar hún ekki að beita sér fyrir laga­breytingum og vísar í svari sínu, við fyrir­spurn á þingi, til saman­tektar­rannsókna sem benda til meiri meiðslatíðni í at­vinnu­manna­hnefa­leikum en í áhuga­manna­hnefa­leikum og öðrum bar­dagaíþróttum.

Algjörlega óboðlegt

Þessi afstaða ráðherra fer illa í Emin Kadri, einn af atvinnumönnum okkar Íslendinga í hnefaleikum. Emin Kadri er ósigraður á sínum atvinnumannaferli og tjáði sig um málið í myndbandi á Instagram.

„Mér finnst algjörlega óboðlegt og jafnvel frekar hrokafullt að hæstvirtur ráðherra okkar Íslendinga telji sig vita betur um hvers konar lög ætti að setja, um hvað fólk má og má ekki gera, heldur en allur heimurinn. Jafnvel hvert einasta Norðurland í okkar nágrenni, sem er löngu búið að leyfa þetta.“

Emin bendir á mál sem ratað hafa í fjölmiðla tengd afsögn Guðmundar Inga Kristinssonar sem ráðherra og segir Ingu ekki færa til að gæta að heilsu almennings.

„Ef ég vissi ekki betur myndi ég nú segja við hæstvirtan ráðherra að hún þyrfti nú aðeins að stíga í sinn eigin skítapott og hræra aðeins í honum en ég hyggst ekki leggja mig á sama lága plan og hún. Ég er orðinn alveg dauðþreyttur á þessu. Að þurfa endalaust að berjast fyrir hlutum sem eru bara sjálfsagðir (e. basic)  og eru það út um allan heim en einhvern veginn ekki á Íslandi. Hvenær ætla einhverjar raunverulegar breytingar að eiga sér stað? Af því ég er nánast alveg búinn á því.“

Áhugamannahnefaleikar hafa verið heimilir hér á landi frá 2002 samkvæmt reglum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Bannið við atvinnumannahnefaleikum stendur hins vegar enn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×