Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Lovísa Arnardóttir og Telma Tómasson skrifa 15. október 2026 07:43 Á Siglufirði var verðið einna verst í gær. Landsbjörg Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir vel hafa gengið hjá björgunarsveitarfólki um land allt í gær þrátt fyrir annríki. Óveður gekk yfir landið og voru björgunarsveitir kallaðar út víða um land, til dæmis vegna gróðurhúss sem fauk á Hellu. Mesta tjónið varð þó líklega á Siglufirði þar sem hviður náðu allt að 55 metrum á sekúndu. Þök fuku af þremur húsum en engin slys urðu á fólki. „
Það var kannski mesti hvellurinn á Siglufirði en það var ansi hvasst á Húsavík líka og við sinntum þó nokkrum fokverkefnum þar,“ segir Jón Þór í samtali við fréttastofu. Jón Þór segir að á Siglufirði hafi tugir verið við störf, sveitir af Tröllaskaga og niður í Eyjafjörð. „Það var ansi bratt og tók á. Þegar heilu þökin lyftast af húsum og lenda við hliðina á þér þá gengur eitthvað á, það er alveg ljóst,“ segir hann og að það hafi skapast aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“. Björgunarsveitarfólk við störf á Siglufirði í gær. Landsbjörg Tré rifnaði upp við leikskóla Hann segir ekki jafn hvasst hafa verið á Húsavík en þar hafi tré rifnað upp við leikskólann og þurfti að tryggja nokkrar byggingar svo ekki yrði tjón. Hann segir nóttina hafa verið rólega og engin útköll í nótt. „Það var aðeins í gærkvöldi verið að tryggja bát við höfn á Skagaströnd, en annars rólegt.“ Viðvaranir enn í gildi Gular viðvaranir eru enn í gildi á Ströndum, Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra og Austurlandi. Veðurfræðingur segir veðrið að mestu leyti hafa gengið eftir en verið verra á sumum stöðum en spár gerðu ráð fyrir.
Fjallabyggð Veður Rangárþing ytra Skagafjörður Björgunarsveitir Tengdar fréttir Óveður gengur yfir landið Óveður gengur nú yfir landið og tóku veðurviðvaranir gildi í öllum landshlutum á miðvikudagsmorgun. Um sextíu ára gamalt met var slegið þar sem aldrei hefur mælst jafn lár loftþrýstingur. Fylgst var með veðrinu og áhrifum þess í fréttavakt. 14. október 2026 06:25 Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Innlent Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Óveður gengur yfir landið Innlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Fleiri fréttir Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Sjá meira
Óveður gengur yfir landið Óveður gengur nú yfir landið og tóku veðurviðvaranir gildi í öllum landshlutum á miðvikudagsmorgun. Um sextíu ára gamalt met var slegið þar sem aldrei hefur mælst jafn lár loftþrýstingur. Fylgst var með veðrinu og áhrifum þess í fréttavakt. 14. október 2026 06:25