Fótbolti

Bour­nemouth nýtur lífsins á nýjum slóðum en Willum spilaði lítið

Sindri Sverrisson skrifar
Evanilson var á skotskónum í kvöld.
Evanilson var á skotskónum í kvöld. Getty/Robin Jones

Bournemouth er í fyrsta sinn í Evrópukeppni og hefur byrjað frábærlega í Evrópudeildinni. Liðið vann Sturm Graz 3-0 í kvöld. Tíu leikjum var að ljúka.

Evanilson kom Bournemouth yfir undir lok fyrri hálfleiks og Rayan bætti við marki á 76. mínútu. Álvaro Rodriguez gerði svo þriðja og síðasta markið úr vítaspyrnu í uppbótartíma fyrir Bournemouth sem unnið hefur tvo fyrstu leiki sína.

Juventus vann 2-1 útisigur gegn Celta Vigo á Spáni með dramatískum hætti en Randal Kolo Muani gerði sigurmarkið í uppbótartíma, eftir að Nick Woltemade hafði jafnað metin á 58. mínútu. Hugo Álvarez kom heimamönnum yfir í fyrri hálfleik.

Í Hollandi kom Willum Þór Willumsson inná fyrir meiddan Dusan Tadic á 84. mínútu, gegn Levski Sofia. Staðan var þá þegar orðin 1-1 og það urðu lokatölurnar.

Benfica vann Celtic 4-1, Ferencváros vann Viktoria Plzen 2-1, Jagiellonia vann Ararat 3-1, Olympiacos vann Marseille 1-0 á útivelli, Rennes vann OFI 2-1 og Besiktas vann Hoffenheim 3-2 á útivelli. Dinamo Zagreb vann svo dramatískan 1-0 sigur gegn Anderlecht með marki úr vítaspyrnu á sjöttu mínútu uppbótartíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×