Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar 16. október 2026 12:45 Alþjóðlegi endurlífgunardagurinn er í dag, 16. október. Sá dagur minnir okkur á þær aðstæður sem upp geta komið hvenær sem er og gera ekki boð á undan sér – og um nauðsyn þess að kunna að bregðast við, þar sem hver mínúta skiptir máli. Rauði krossinn á Íslandi (RKÍ) veitir ár hvert viðurkenningu til einstaklings eða einstaklinga sem hafa veitt skyndihjálp á eftirtektarverðan hátt og bjargað lífi. Markmiðið er að vekja athygli almennings á mikilvægi skyndihjálpar og hvetja sem flesta til að vera undir það búnir að veita hjálp á vettvangi vegna slysa og veikinda. Við þekkjum flest sögur úr raunveruleikanum þar sem skjót viðbrögð einstaklinga við bráðar aðstæður hafa bjargað mannslífum. Oftast er það fólk sem hefur sótt námskeið í fyrstu hjálp þar sem m.a. eru kennd viðbrögð við hjartastoppi, s.s. hjartahnoð, blástur og notkun sjálfvirks hjartastuðtækis, - við slysum og áverkum og bráðum veikindum, s.s. brjóstverk, heilablóðfalli og bráðaofnæmi o.fl. RKÍ býður slík námskeið reglulega og ég hvet alla til að læra skyndihjálp. Því hver mínúta getur skipt máli. Hvar er næsta hjartastuðtæki þegar á reynir? Hjartastuðtæki er að finna víða um land, meðal annars á vinnustöðum, í íþróttamannvirkjum, skólum og öðrum opinberum byggingum. Þegar hjartastopp verður skiptir máli að vita hvar næsta hjartastuðtæki er að finna. Heilbrigðisráðuneytið í samstarfi við fjölda aðila hefur sett á fót kortasjá hjartastuðtækja. Markmiðið er að gera almenningi og Neyðarlínunni kleift að finna með hraði næsta tiltæka hjartastuðtæki þegar á reynir. Nú stendur yfir skráning tækja í kortasjána og unnið er að því að ná inn sem flestum skráningum áður en kortasjáin verður formlega opnuð. Með verkefninu verður til heildstæð kortasjá yfir hjartastuðtæki á Íslandi þar sem upplýsingar um staðsetningu og aðgengi að tækjunum verða aðgengilegar þegar á reynir. Verkefnið hefur notið styrks af byggðaáætlun stjórnvalda. Skráning hjartastuðtækja í kortasjá Það er einfalt að skrá hjartastuðtæki í nýju kortasjána og tekur aðeins nokkrar mínútur. Eigendur og umsjónaraðilar hjartastuðtækja geta jafnframt valið hvort upplýsingar um staðsetningu tækisins verði sýnilegar almenningi eða eingöngu aðgengilegar Neyðarlínunni. Hjartastuðtæki geta bjargað lífum, en aðeins ef þau finnast þegar á reynir. Þess vegna skiptir máli að sem flest tæki verði skráð í kortasjána. Ég hvet því alla eigendur og umsjónaraðila hjartastuðtækja til að taka nokkrar mínútur frá og skrá tækin sín. Sú skráning getur skipt sköpum. Skráning tækja: Kortlagning sjálfvirkra hjartastuðtækja Höfundur er heilbrigðisráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Alma D. Möller Mest lesið Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller Skoðun Skoðun Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé skrifar Skoðun Í Singapúr dugði eitt orð Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Drónar: vinur eða óvinur? Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Sjá meira
Alþjóðlegi endurlífgunardagurinn er í dag, 16. október. Sá dagur minnir okkur á þær aðstæður sem upp geta komið hvenær sem er og gera ekki boð á undan sér – og um nauðsyn þess að kunna að bregðast við, þar sem hver mínúta skiptir máli. Rauði krossinn á Íslandi (RKÍ) veitir ár hvert viðurkenningu til einstaklings eða einstaklinga sem hafa veitt skyndihjálp á eftirtektarverðan hátt og bjargað lífi. Markmiðið er að vekja athygli almennings á mikilvægi skyndihjálpar og hvetja sem flesta til að vera undir það búnir að veita hjálp á vettvangi vegna slysa og veikinda. Við þekkjum flest sögur úr raunveruleikanum þar sem skjót viðbrögð einstaklinga við bráðar aðstæður hafa bjargað mannslífum. Oftast er það fólk sem hefur sótt námskeið í fyrstu hjálp þar sem m.a. eru kennd viðbrögð við hjartastoppi, s.s. hjartahnoð, blástur og notkun sjálfvirks hjartastuðtækis, - við slysum og áverkum og bráðum veikindum, s.s. brjóstverk, heilablóðfalli og bráðaofnæmi o.fl. RKÍ býður slík námskeið reglulega og ég hvet alla til að læra skyndihjálp. Því hver mínúta getur skipt máli. Hvar er næsta hjartastuðtæki þegar á reynir? Hjartastuðtæki er að finna víða um land, meðal annars á vinnustöðum, í íþróttamannvirkjum, skólum og öðrum opinberum byggingum. Þegar hjartastopp verður skiptir máli að vita hvar næsta hjartastuðtæki er að finna. Heilbrigðisráðuneytið í samstarfi við fjölda aðila hefur sett á fót kortasjá hjartastuðtækja. Markmiðið er að gera almenningi og Neyðarlínunni kleift að finna með hraði næsta tiltæka hjartastuðtæki þegar á reynir. Nú stendur yfir skráning tækja í kortasjána og unnið er að því að ná inn sem flestum skráningum áður en kortasjáin verður formlega opnuð. Með verkefninu verður til heildstæð kortasjá yfir hjartastuðtæki á Íslandi þar sem upplýsingar um staðsetningu og aðgengi að tækjunum verða aðgengilegar þegar á reynir. Verkefnið hefur notið styrks af byggðaáætlun stjórnvalda. Skráning hjartastuðtækja í kortasjá Það er einfalt að skrá hjartastuðtæki í nýju kortasjána og tekur aðeins nokkrar mínútur. Eigendur og umsjónaraðilar hjartastuðtækja geta jafnframt valið hvort upplýsingar um staðsetningu tækisins verði sýnilegar almenningi eða eingöngu aðgengilegar Neyðarlínunni. Hjartastuðtæki geta bjargað lífum, en aðeins ef þau finnast þegar á reynir. Þess vegna skiptir máli að sem flest tæki verði skráð í kortasjána. Ég hvet því alla eigendur og umsjónaraðila hjartastuðtækja til að taka nokkrar mínútur frá og skrá tækin sín. Sú skráning getur skipt sköpum. Skráning tækja: Kortlagning sjálfvirkra hjartastuðtækja Höfundur er heilbrigðisráðherra.
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun
Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun
Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun