Skoðun

Þegar netöryggi verður sam­félagsöryggi

Margrét V. Helgadóttir skrifar

Hvað gerist ef við getum ekki greitt fyrir vörur, nálgast mikilvægar upplýsingar eða haft samband við þau sem við þurfum að ná í? Við leiðum sjaldan hugann að þessum spurningum þegar allt virkar með eðlilegum hætti.

Daglegt líf okkar byggir þó í síauknum mæli á því að stafræn þjónusta sé aðgengileg, upplýsingar séu varðar og við getum treyst þeim kerfum sem við notum. Þess vegna kemur netöryggi okkur öllum við.

Þegar allt virkar getur öryggið gleymst

Október er alþjóðlegur netöryggismánuður og gefur okkur tilefni til að vekja athygli á mikilvægi netöryggis, efla þekkingu og hvetja til aðgerða. Það er mikilvægt að nýta tækifærið til að minna á að öruggt stafrænt samfélag verður ekki til af sjálfu sér. Það byggir á samvinnu, skýrri ábyrgð og árvekni.

Það er ástæða fyrir því að sérstakur mánuður er helgaður þessari umræðu. Netöryggi getur auðveldlega fallið í skuggann af öðrum verkefnum, sérstaklega þegar ekkert virðist vera að. Þá frestast uppfærslur, fræðsla situr á hakanum og viðbragðsáætlanir eru látnar bíða. Netöryggismánuðurinn gefur okkur tækifæri til að staldra við, skoða stöðuna og ákveða hvað þarf að bæta.

Afleiðingarnar ná langt út fyrir tölvukerfin

Afleiðingar netöryggisatvika geta náð langt út fyrir þau kerfi þar sem þau hefjast. Þjónusta getur stöðvast, upplýsingar glatast eða komist í rangar hendur og traust beðið hnekki. Fyrir einstakling getur þetta þýtt fjárhagslegt tjón, mögulegt sálrænt tjón og óöryggi. Fyrir fyrirtæki eða stofnun getur það þýtt rekstrarstöðvun og erfiðleika við að sinna viðskiptavinum eða almenningi. Fyrir samfélagið í heild geta beinar og óbeinar afleiðingar jafnframt leitt til almannavarnaástands. Þegar mikilvægir innviðir verða fyrir truflunum eða árásum geta áhrifin þannig náð til samfélagsins alls.

Þess vegna þurfum við að líta á netöryggi sem meira en afmarkað tæknilegt viðfangsefni. Það er hluti af samfélagsöryggi okkar.

Við þurfum að ræða netöryggi þannig að fólk sjái tenginguna við eigið líf og starf. Það snýst um að geta treyst þjónustunni sem við reiðum okkur á, að viðkvæmar upplýsingar séu öruggar og að viðbrögð séu skipulögð þegar eitthvað fer úrskeiðis. Fræðslan þarf jafnframt að vera skiljanleg og aðgengileg og gefa fólki færi á að spyrja spurninga.

Seigla samfélagsins skiptir máli

Í tilefni netöryggismánaðarins heldur Fjarskiptastofa árlega netöryggisráðstefnu sína þann 27. október. Í ár verður áherslan á netöryggi og seiglu samfélagsins, enda hefur sjaldan verið jafn brýnt að líta á netöryggi sem órjúfanlegan þátt í samfélagsöryggi. Seigla felst í því að geta staðist áföll, viðhaldið mikilvægri þjónustu og náð aftur eðlilegri starfsemi eftir truflanir. Á ráðstefnunni verður skapaður vettvangur fyrir þekkingarmiðlun og samtal um hvernig við getum styrkt þessa getu á Íslandi.

Slíkt samtal skiptir máli en það má ekki einskorðast við einn dag eða einn vettvang. Gildi þekkingarmiðlunar felst meðal annars í því að við lærum hvert af öðru, reynslan sem einn aðili öðlast getur hjálpað öðrum að greina áhættu og bæta viðbúnað. Samtal þvert á fyrirtæki, stofnanir og starfsgreinar getur þannig leitt til betri ákvarðana og markvissari aðgerða. Þekkingin þarf síðan að skila sér inn í daglegt starf.

Netöryggi er verkefni allt árið

Stjórnendur geta til dæmis nýtt október til að yfirfara netöryggi hjá sér og ræða þessi mál við starfsfólk. Mikilvægt er að fara reglulega yfir grunnatriðin og tryggja að allir viti hvað mikilvægast er að verja og hver kjarnakerfi starfseminnar eru. Starfsfólk þarf jafnframt að þekkja hlutverk sitt og vita hvernig bregðast á við ef vinnustaðurinn verður fyrir áfalli eða árás.

Netöryggismánuðurinn stendur í einn mánuð en verkefnið er viðvarandi. Nýtum athyglina nú til að efla þekkingu, styrkja samstarf og fylgja góðum áformum eftir með aðgerðum allt árið. Þannig eflum við saman seiglu samfélagsins.

Höfundur er sérfræðingur í net- og upplýsingaöryggi hjá netöryggissviði Fjarskiptastofu.




Skoðun

Sjá meira


×