Íslenski boltinn

Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Ian Jeffs klárar kennslu áður en hann hugar um of að úrslitaleik dagsins.
Ian Jeffs klárar kennslu áður en hann hugar um of að úrslitaleik dagsins. Vilhelm Gunnarsson

Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, segir markmiðið skýrt fyrir leik liðsins við Stjörnuna í Bestu deild kvenna í fótbolta í dag. Blikakonur geta orðið Íslandsmeistarar þriðja árið í röð nái þær í stig í Garðabænum í dag gegn Stjörnuliði sem hefur unnið Breiðablik tvisvar í sumar.

„Mér líður bara vel. Ég er ekki búinn að hafa mikinn tíma til að hugsa um leikinn. Ég er alltaf bara í kennarastarfinu og þá fer bara að mæta í vinnu og sinna það en ég er bara að reyna að setja fókus á það, klára vinnudaginn og svo bara pæli ég kannski aðeins meira í leiknum á eftir,“ sagði Jeffs léttur við Vísi er hann var á leið til kennslu í Skarðshlíðarskóla í Hafnafirði í morgun.

Stórtap FH, 4-0 fyrir Þrótti, í deildinni í gær gerir að verkum að Blikakonur eru með kyndilinn í höndunum og geta tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn þriðja árið í röð er þær sækja Stjörnuna heim í Garðabæ seinni partinn í dag.

En kom á óvart að FH skildi hafa tapað svo stórt í gær?

„Já og nei. Ég vissi alveg að það var erfiður leikur fyrir FH að þær voru að spila á móti mjög góðu Þróttarliði. Við erum með reynslu af því að Þróttur var náttúrulega bara að fara illa með okkur þarna í fyrri hálfleik á móti okkur og við náðum bara einhvern veginn að snúa því við,“

„En þetta er alveg hörkulið og ég bjóst við góðum leik í gær þar sem tvö sterk lið voru að mætast. En ég bjóst kannski ekki við 4-0 lokatölum.“

En hvernig nálgast Blikakonur stórleik dagsins þar sem svo mikið er undir?

„Við erum búin að reyna að halda okkar fókus, pæla í okkur og því sem við erum að gera og ekki hugsa of mikið út í það sem FH er að gera. Ég veit alveg stöðuna en við tókum það bara fram í gær á æfingu að bara fókusinn er á okkur og reyna bara að klára okkar leiki,“

Og það er væntanlega lykilatriði í dag einmitt að stilla spennustigið rétt?

„Jú, ég myndi segja það að bara stilla spennustigið rétt. Við erum að spila á móti mjög góðu liði og liði sem hefur farið illa með okkur tvisvar í sumar. Við erum náttúrulega búin að spila tvisvar á móti Stjörnunni og tapa báðum leikjunum. Við þurfum að spila mjög góðan leik og eins og þú sagðir, bara hafa spennustigið rétt stillt fyrir leikinn í kvöld.“

Leikur Stjörnunnar og Breiðabliks hefst klukkan 17:00 í dag og verður í beinni á Sýn Sport Ísland 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×