Innlent

Kraumar enn í Wolt-sendlum

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Sendlar hjá Wolt funduðu á skrifstofu Eflingar í dag.
Sendlar hjá Wolt funduðu á skrifstofu Eflingar í dag. mynd/Sólveig Anna

Tugir sendla hjá fyrirtækinu Wolt komu saman á skrifstofu Eflingar í dag. Þeir fara fram á að lágmarksgreiðslur verði hækkaðar og skipuleggja aðgerðir.

Fyrir rúmum mánuði lögðu sendlar hjá Wolt tímabundið niður störf, mótmæltu við skrifstofur fyrirtækisins og vísuðu til þess að laun þeirra hefðu verið lækkuð um fjörutíu prósent á einu ári. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu nam lágmarksgreiðslan áður um eitt þúsund krónum en hljóðar nú upp á sex hundruð krónur fyrir hverja sendingu.

Verkalýðsfélög á Íslandi hafa lýst yfir stuðningi við kjarabaráttu og aðgerðir sendlanna. Í ályktun miðstjórnar Alþýðusambands Íslands er skorað á fyritæki að skrá starfsmenn sem launafólk og fylgja kjarasamninum. Efling hefur þá boðið sendlunum aðstoð og veitt þeim aðgang að starfsfólki og húsakynnum félagsins þrátt fyrir að þeir tilheyri því ekki. 

„Við viljum sýna þeim samstöðu og lítum svo á að framkoma fyrirtækisins sé aðför að hagsmunum alls verkafólks. Við metum það sem svo að það sé skylda okkar að gera það sem við getum,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður félagsins. 

Samkvæmt upplýsingum fréttastofu lögðu sendlanir meðal annars fram kröfu um að lágmarksgreiðslur yrðu hækkaðar á ný upp í eitt þúsund krónur og eru stjórnendur Wolt sagðir hafa farið fram á fjögurra til sex vikna frest til þess að meta kröfuna.

Fréttastofa ræddi við sendil hjá Wolt sem segir fólk orðið óþreyjufullt enda fresturinn að líða. Sendlar séu nú að skipuleggja sig og hugi að frekari aðgerðum.

Sendlum hjá Wolt var boðið að nýta skrifstofur Eflingar.Vísir/Arnar

Í ályktun sem miðstjórn ASÍ sendi frá sér vegna aðgerðanna segir að uppgangur hark-hagkerfisins er alþjóðlegt vandamál og að víða sé sótt að kjörum og réttindum launafólks. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×