Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Birgir Olgeirsson skrifar 19. október 2026 16:02 Inga Sæland segir stöðuna í öryggismálum skóla grafalvarlega. Snorri Másson spurði ráðherra út í ótta kennara við árásir og tengdi vandann við innflytjendastefnu stjórnvalda. Staðan í öryggismálum skóla er grafalvarleg að mati Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra. Hún segir unnið að viðbrögðum eftir fréttir af því að kennarar óttist árásir nemenda og utanaðkomandi fólks.
Þetta kom fram í svari ráðherra við fyrirspurn Snorra Mássonar, þingmanns Miðflokksins, á Alþingi í dag. Snorri vísaði til fréttaflutnings síðustu viku af öryggisleysi í skólum Reykjavíkur og spurði hvernig ráðherra hygðist bregðast við. Vísir greindi frá því á miðvikudag að einstaklingar eða hópar hefðu komið inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki. Kristín Björnsdóttir, formaður Kennarafélags Reykjavíkur, sagði kennara óttast um öryggi sitt og hafa heyrt af skólum þar sem kennslustofum væri læst meðan kennt væri. Unnið að viðbrögðum með öðrum ráðherrum Í svari sínu sagði Inga málið tekið mjög alvarlega og unnið að því á grundvelli nýrra upplýsinga. „Jú, ég lít málið mjög alvarlegum augum og það liggur náttúrulega algjörlega fyrir að það er verið að vinna að þessu samkvæmt þeim nýju upplýsingum sem við höfum verið að fá.“ Hún sagði alvarlegt að kennarar væru óöruggir í eigin skóla og óttuðust jafnvel árásir nemenda eða utanaðkomandi aðila sem ryddust inn í skólana. Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra segir grafalvarlegt að kennarar óttist árásir í skólum og unnið sé að viðbrögðum. Bregðast þyrfti við í samráði við fleiri, meðal annars dómsmálaráðherra. Inga sagði alvarleg atvik áður hafa komið upp í einstökum skólum og kvaðst vona að vandinn væri enn bundinn við einstaka skóla. „En þetta er virkilega snúið og við höfum líka séð það áður að það hafa komið upp alvarleg atvik í skólum og það hefur þá verið frekar svona einskorðað við einstaka skóla.“ Tengir vandann við innflytjendastefnu Snorri tengdi öryggisleysið við innflytjendastefnu stjórnvalda. Hann sagði hluta vandans tengjast því sem hann kallaði ósjálfbæra innflytjendastefnu og hópum sem hefðu aðlagast samfélaginu illa. Hann sagði gjarnan talað undir rós um þessar breytingar með því að segja að samfélagið hefði breyst. Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, tengir öryggisleysi í skólum við innflytjendastefnu stjórnvalda og segir auknar öryggisráðstafanir ekki leysa vandann til lengri tíma.Vísir/Anton Brink Ótti kennara við árásir væri mikil áskorun fyrir menntakerfið og yki álagið á það. Snorri spurði hvort kjarni vandans væri ekki innflytjendastefnan frekar en að grípa til „sífellt fleiri plástra og frekari öryggisráðstafana“. Hlið og aðrar kostnaðarsamar ráðstafanir leystu að hans mati ekki vandann til lengri tíma. Skólastjórar vilja takmarka aðgang Vísir hefur einnig fjallað um kröfur skólastjóra í Hafnarfirði um aukið öryggi. Þar leiddi úttekt öryggisfræðings í ljós þörf á úrbótum á fjölmörgum sviðum. Skólastjórarnir vilja meðal annars fækka ólæstum inngöngum meðan kennsla stendur yfir, auka aðgangsstýringu og setja upp dyrasíma með myndavélum. Þeir hafa óskað eftir sérstakri fjárveitingu og tímasettri framkvæmdaáætlun. Fræðsluráð vísaði erindinu til fjárhagsáætlunarvinnu fyrir árið 2027.
Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ Sjá meira