Fótbolti

Glódís Perla og fé­lagar á­fram með fullt hús á toppnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Glódís Perla Viggósdóttir og félagar eru áfram á sigurbraut.
Glódís Perla Viggósdóttir og félagar eru áfram á sigurbraut. Getty/Gualter Fatia

Landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir og félagar hennar í Bayern München unnu stórsigur í þýsku deildinni í kvöld.

Bayern tók á móti Stuttgart á heimavelli sínum og vann 5-0.

Bayern hefur þar með unnið fyrstu sjö deildarleiki tímabilsins og markatalan er glæsileg eða 24-6.

Glódís Perla lék allan tímann í miðri vörn Bæjara.

Hin danska Pernille Harder skoraði tvö mörk en Linda Dallmann kom liðinu í 1-0 og Klara Buhl skoraði þriðja markið í upphafi þess seinni. Edna Imade skoraði síðan fimmta og síðasta markið undir lokin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×