Innlent

Logandi pottur

Bjarki Sigurðsson skrifar
Eldurinn kviknaði í potti.
Eldurinn kviknaði í potti. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu tók þátt í 109 verkefnum síðastliðinn sólarhring. Í tveimur þeirra voru kallaðir til dælubílar en rest voru boðanir á sjúkrabíla. 26 boðanir voru á forgangi. 

Þetta kemur fram á samfélagsmiðlum slökkviliðsins. Annað útkallanna á dælubílana var afturkallað þar sem búið var að leysa málið áður en slökkviliðið mætti á svæðið. 

Í hinu málinu voru allir dælubílar kallaðir út vegna elds í húsnæði í Hafnarfirði. Þegar komið var á staðinn reyndist vera eldur í potti sem reykkafarar voru fljótir að slökkva og við tók reykræsting. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×