Innlent

Kallað eftir rann­sóknum vegna geðrofslyfs og á­skorun til ráð­herra

Smári Jökull Jónsson skrifar
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf.
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf. Vísir

Yfirmaður öldrunarlækninga á Landspítalanum kallar eftir frekari rannsóknum á geðrofslyfi sem næstum tvöfalt fleiri nota nú en fyrir tíu árum síðan. Sterkar vísbendingar eru um að hluti lyfjanotkunar vegna svefnvanda sé að færast á aðra lyfjaflokka.

Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar þar sem verður rætt við Önnu Birnu Jónsdóttur, yfirlækni öldrunarlækninga á Landspítalnum.

Lögmaður segir að nýlegur dómur hæstaréttar feli í sér áskorun til dómsmálaráðherra hvað varðar skaðabótalög. Löngu tímabært sé að bregðast við það sé Hæstiréttur að benda stjórnvöldum á.

Nóttin var rólegri í Frakklandi en síðustu nætur en umfangsmikil mótmæli í Evrópu hafa teygt anga sína víða um heimsálfuna.

Nýr Íslandsmeistari var krýndur í bakgarðshlaupi í morgun og nýtt Íslandsmet slegið. Við heyrum hvað meistarinn nýi hafði að segja strax að hlaupinu loknu.

Í íþróttum verður fjallað um Íslandsmeistaratitil Breiðabliks í knattspyrnu kvenna sem og 32-liða úrslitin í bikarkeppninni í körfubolta sem lauk í gærkvöldi.

Allt þetta og meira til í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu tólf.

Klippa: Hádegisfréttir Bylgjunnar 20. október 2026



Fleiri fréttir

Sjá meira


×