Enski boltinn

Snýr Trent aftur til Liverpool?

Valur Páll Eiríksson skrifar
Trent Alexander-Arnold hefur ekki átt sjö dagana sæla í Madríd.
Trent Alexander-Arnold hefur ekki átt sjö dagana sæla í Madríd. Getty

Framtíð Trent Alexander-Arnold hjá Real Madrid er sögð í lausu lofti og hann óánægður með stöðu mála. Hann fær lítið að spila undir stjórn José Mourinho í spænsku höfuðborginni.

Alexander-Arnold spilaði ekki sekúndu í 4-1 sigri Real Madrid á Sevilla um helgina og ekki heldur í 4-3 sigri liðsins á Roma í Meistaradeildinni í síðustu viku. Hann hefur aðeins spilað tvo af síðustu sex leikjum liðsins.

Denzel Dumfries spilaði fram yfir Alexander-Arnold í upphafi móts og um helgina ákvað Mourinho að stilla miðjumanninum Federico Valverde frekar upp í bakvarðarstöðunni og lék Trent sitja allan leikinn á bekknum.

Alexander-Arnold er sagður farinn að endurskoða verulega framtíð sína í Madrídarborg og er orðaður við uppeldisfélag sitt Liverpool. Þónokkur lið eru sögð hafa áhuga á enska landsliðsmanninum sem fór til Real Madrid þarsíðasta sumar þegar samningur hans við Liverpool rann út.

Alexander-Arnold tókst ekki að heilla fyrstu leiktíð sína í hvítu og meðal fyrstu verka Mourinho í sumar var að festa kaup á Denzel Dumfries sem hann kýs frekar að hafa í hægri bakvarðarstöðunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×