Skoðun

Sama krónu­tölu­hækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjör­ó­líkt högg fyrir heimili

Þorvaldur Daníelsson skrifar

Eitt það áhugaverðasta sem kemur í ljós þegar áhrif fjárlagafrumvarpsins á einstök heimili eru skoðuð er hversu mismunandi áhrif krónutölur einar og sér geta verið.

Tökum dæmi af tveimur heimilum. Áætluð viðbótarbyrði fjárlagafrumvarpsins árið 2027 er nánast sú sama í krónum. Hjá tekjulægra heimilinu nemur hún 343,5 þúsund krónum en hjá því tekjuhærra 353,4 þúsund krónum. Við fyrstu sýn mætti því halda að áhrifin væru nánast þau sömu. En þar með er aðeins hálf sagan sögð. Hjá tekjulægra heimilinu jafngildir þessi byrði um 26% af einum mánaðarlaunum fyrir skatt. Hjá tekjuhærra heimilinu er hlutfallið aðeins 11%.

Þessi munur skiptir miklu máli. Gjald sem er það sama í krónum leggst nefnilega ekki jafnt á alla. Fimm eða tíu þúsund króna hækkun getur verið tiltölulega lítil í heimilisbókhaldi þar sem mikið svigrúm er til staðar, en haft allt önnur áhrif þar sem stór hluti teknanna fer þegar í húsnæði, mat, samgöngur og aðrar nauðsynjar.

Þegar lítið svigrúm er fyrir skiptir hver króna máli.

Þetta er ein ástæða þess að ekki nægir að meta einstakar ráðstafanir fjárlaga út frá því hversu miklum tekjum þær skila ríkissjóði. Það þarf einnig að spyrja hver greiðir, hversu mikið og miðað við hvaða greiðslugetu. Sama gildir um breytingar á barnabótum, vaxtabótum, skattaviðmiðum og annarri opinberri gjaldtöku. Einstök breyting kann að virðast lítil þegar hún er skoðuð ein og sér. En heimilin upplifa allar breytingarnar samtímis og áhrifin leggjast saman í sama heimilisbókhaldið. Þess vegna skiptir máli að horfa á samanlögð dreifingaráhrif fjárlaga.

Við í Framsókn teljum að það eigi að verða sjálfsagður hluti af fjárlagagerð að birta greiningu á áhrifum stærri breytinga eftir tekjuhópum, fjölskyldugerðum og eftir atvikum skuldastöðu. Það myndi auka gagnsæi og gera bæði Alþingi og almenningi kleift að meta betur hver raunverulega ber kostnaðinn af einstökum ákvörðunum.

Slík greining er ekki aukaatriði. Hún snýst um sanngirni í hagstjórn.

Tvö heimili geta fengið nánast sama reikninginn í krónum en fundið gjörólíkt fyrir honum.

Þess vegna á spurningin við gerð fjárlaga ekki aðeins að vera hversu mikið ríkið innheimtir. Við verðum líka að spyrja hversu þungt reikningurinn leggst á þann sem greiðir hann.

Það er munurinn á því að skoða aðeins tölurnar í ríkissjóði og að sjá raunveruleg áhrif fjárlaganna á líf fólks. Ég hvet ríkisstjórnina til að lækka álögur á heimilin í landinu.

Höfundur er varaborgarfulltrúi Framsóknar.




Skoðun

Sjá meira


×