Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Guðmundsdóttir skrifar 20. október 2026 18:31 Á aukaaðalfundi Norðurorku sem fram fór í dag var stigið mikilvægt skref í því hvernig Akureyrarbær hyggst sinna hlutverki sínu sem stærsti hluthafi fyrirtækisins. Í fyrsta sinn voru óháðir stjórnarmenn tilnefndir til setu í stjórn félagsins. Þetta er breyting sem ég tel bæði tímabæra og mikilvæga. Hún er hluti af þeirri vegferð að styrkja stjórnarhætti félaga í eigu Akureyrarbæjar, gera þá faglegri og skýra betur hlutverk okkar sem eiganda. Fagleg stjórn og skýr eigandastefna Akureyrarbær er ekki eingöngu hluthafi í Norðurorku. Fyrirtækið veitir grunnþjónustu sem hefur bein áhrif á heimili og atvinnulíf á Akureyri og á starfssvæði fyrirtækisins. Eignarhaldinu fylgir því rík samfélagsleg ábyrgð. Eigandastefnu Akureyrarbæjar er ætlað að endurspegla þá ábyrgð og þær væntingar sem við höfum til þeirra félaga sem eru í eigu sveitarfélagsins. Þar þurfa faglegir stjórnarhættir, fjárhagsleg sjálfbærni, langtímahugsun og hagsmunir samfélagsins að fara saman. Val óháðra stjórnarmanna er liður í þessari nálgun. Með því er verið að leggja meiri áherslu á að stjórn Norðurorku búi yfir þeirri þekkingu, reynslu og faglegu breidd sem nauðsynleg er fyrir fyrirtæki af þessari stærð. Við höfum jafnframt verið að skoða fyrirkomulag við tilnefningu og val stjórnarmanna sem hluta af þessari vinnu. Um það hefur meðal annars verið fjallað innan Akureyrarbæjar. Við vinnu tilnefningarnefndar Akureyrarbæjar um val á óháðum stjórnarmönnum Norðurorku var auglýst eftir áhugasömum aðilum og bárust nefndinni 59 umsóknir um tvö stjórnarsæti. Sá mikli áhugi lýsir vel sterkri stöðu fyrirtækisins innan samfélagsins. Eigandinn þarf að vera virkur Þessi breytta nálgun snýst þó um meira en breytingu á skipan stjórnar. Hún snýst líka um það hvernig Akureyrarbær beitir sér sem meirihlutaeigandi. Við sem sveitarfélag höfum sett okkur það markmið frá upphafi vinnu í sumar við gerð fjárhagsáætlunar að hækkanir á gjaldskrám Akureyrarbæjar verði ekki meiri en 2,5% og að gjaldskrár er snúa að þjónustu við barnafjölskyldur haldist að mestu óbreyttar. Er það í samræmi við ályktun Landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga og sameiginlega yfirlýsingu stjórnvalda og aðila á vinnumarkaði í haust. Ef það markmið á að vera trúverðugt tel ég eðlilegt að sama aðhaldssjónarmið komi fram í afstöðu okkar sem hluthafi í fyrirtæki sem veita íbúum grunnþjónustu. Þess vegna eigum við ekki að standa hjá þegar kemur að þróun gjaldskráa Norðurorku. Í þeim anda lagði Akureyrarbær til á aukaaðalfundi félagsins að hækkanir á gjaldskrám þess takmarkist við 2,5% um áramót. Var þetta einróma ákvörðun allra eigenda á fundinum. Þetta þýðir ekki að hluthafar taki yfir rekstur fyrirtækisins eða ákvarðanir stjórnar. Það þýðir hins vegar að við sem eigendur setjum fram skýrar væntingar og köllum eftir því að allar raunhæfar leiðir til hagræðingar og aðhalds séu skoðaðar áður en aukinn kostnaður er færður yfir á heimili og fyrirtæki. 2,5% markmiðið þarf að hafa raunverulega merkingu Norðurorka þarf að sjálfsögðu að standa fjárhagslega traustum fótum, sinna nauðsynlegum fjárfestingum og tryggja örugga þjónustu til framtíðar. Þær skyldur hverfa ekki. En þegar kostnaður hækkar á fyrsta spurningin ekki sjálfkrafa að vera: Hversu mikið þurfum við að hækka gjaldskrána? Hún þarf líka að vera: Hvað getum við gert öðruvísi? Með óháðum stjórnarmönnum, skýrri eigandastefnu og virkari afstöðu til fjárfestinga- og fjárhagsáætlana er Akureyrarbær að taka skref í átt að faglegri og markvissari meðferð eignarhalds síns. Við ætlum að vera ábyrgur og virkur eigandi. Eigandi sem treystir stjórn fyrirtækisins til að sinna sínu hlutverki, en er jafnframt skýr um væntingar sínar og gleymir ekki að á endanum snýst eignarhald sveitarfélagsins líka um hagsmuni samfélagsins og íbúanna. Höfundur er bæjarstjóri á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Berglind Ósk Guðmundsdóttir Akureyri Orkumál Mest lesið Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun