Snekkju skattsvikarans meinuð hafnarkoma á Akureyri Glæsisnekkju rússneska skattsvikarans Oleg Tinkov var meinuð hafnarkoma á Akureyri fyrr í dag á grundvelli þvingunaraðgerða varðandi Rússland sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja. Landhelgisgæslan greinir frá þessu í fréttatilkynningu. Innlent 21.3.2026 22:09
Snekkju skattsvikara siglt inn í Eyjafjörðinn Snekkja í eigu skattsvikara og fyrrverandi milljarðamærings frá Rússlandi sigldi inn Eyjafjörðinn nú í morgun. Ekki liggur fyrir hvort eigandinn sé um borð. Lífið 21.3.2026 14:16
Goðamót í uppnámi og útlit fyrir sama veður fram á nótt Um þrjátíu lið geta ekki sótt Goðamótið sem fram fer á Akureyri um helgina vegna óveðurs. Víðtækar veðurviðvaranir eru nú í gildi víðast hvar á landinu og verða til morguns og lokanir á vegum á Vesfjörðum og á Norðurlandi, veðurfræðingur segir útlit fyrir vont veður fram á nótt. Innlent 20.3.2026 12:02
Lýsir yfir stuðningi við Hafdísi Svala Björgvinsdóttir hefur stigið fram til stuðnings Hafdísi Björgu Kristjánsdóttur en báðar áttu þær í sambandi við Kristján Einar Sigurbjörnsson, betur þekktur sem Kleini. Hann er sagður hafa verið handtekinn á Akureyri grunaður um nauðgun ásamt tveimur öðrum mönnum. Lífið 10. mars 2026 18:42
Fagráðið harmar brotthvarf Hildigunnar Fagráð Sjúkrahússins á Akureyri harmar skyndilegt brotthvarf Hildigunnar Svavarsdóttur, fyrrverandi forstjóra spítalans, úr starfi. Hildigunnur sagði upp eftir að ráðherra greindi frá því að staða hennar yrði auglýst við lok fimm ára skipunartíma hennar. Innlent 10. mars 2026 18:32
Hafdís stígur fram vegna Kleina „Mér þykir ótrúlega erfitt að fylgjast með fréttum í dag og erfitt að kenna ekki sjálfri mér um að hafa ekki stigið fram og varað aðrar stelpur við ofbeldinu sem fylgir þessum manni,“ segir einkaþjálfarinn Hafdís Björg Kristjánsdóttir um fyrrverandi kærasta sinn, Kristján Einar Sigurbjörnsson, eða Kleina, sem sagður er hafa verið handtekinn á Akureyri grunaður um nauðgun ásamt tveimur öðrum mönnum. Lífið 10. mars 2026 10:21
Rannsaka kynferðisbrot á Akureyri Lögreglan á Akureyri hefur til rannsóknar kynferðisbrot sem átti sér stað í bænum aðfaranótt sunnudags. Fleiri en einn sakborningur eru grunaðir vegna málsins. Innlent 10. mars 2026 10:01
Sunna Hlín leiðir lista Framsóknar áfram Sunna Hlín Jóhannsdóttir skipar efsta sæti lista Framsóknarflokksins á Akureyri. Hún er þegar sitjandi bæjarfulltrúi fyrir hönd flokksins og sömuleiðis Gunnar Már Gunnarsson, sem skipar annað sæti listans. Innlent 8. mars 2026 13:31
Vilja lokka höfuðborgarbúa norður og lofa nóg af bílastæðum Mikil uppbygging er í vændum á Akureyri. Kennileiti munu víkja og byggðin verður þétt án þess að bæjarbúar fari á mis við bílastæði. Þetta segir forseti bæjarstjórnar Akureyrar sem kveðst vongóð um að lokka höfuðborgarbúa norður. Innlent 5. mars 2026 22:30
Eitt helsta kennileiti bæjarins rifið: „Þetta er annað heimilið mitt“ Eitt helsta kennileiti Akureyrar verður rifið á næstu mánuðum. Leigubílstjóri sem hefur starfað í húsinu í tæp 30 ár segir verulega sorglegt og erfitt að kveðja starfstöðina. Ekki er ljóst hvað verður um starfsemina enn sem komið er. Innlent 4. mars 2026 13:39
Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Hafsteinn Karlsson var á leið til Íslands frá Kaupmannahöfn með konu sinni á fimmtudaginn þegar stefnan var óvænt tekin á Akureyri vegna veðuraðstæðna á Keflavíkurflugvelli. Við tóku um átta klukkustundir af óvissu í komusalnum á Akureyrarflugvelli þar sem mörghundruð manns var gert að bíða í fleiri klukkutíma. Innlent 1. mars 2026 20:04
Hafnar átökum eða árekstrum við fyrrverandi forstjóra Torfi Fjalar Jónasson, hjartalæknir og eiginmaður Ölmu Möller heilbrigðisráðherra, segist aldrei hafa átt í neinum átökum eða árekstrum við Hildigunni Svavarsdóttur, fyrrverandi forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri. Innlent 28. febrúar 2026 20:03
Áfengissala í brekkunni hafi reynst vel Lögreglan þurfti að grípa inn í við Hlíðarfjall síðustu helgi þegar örtröð myndaðist við bílastæðið. Forstöðumaður skíðasvæðisins segir áfengissölu í brekkunni hafa reynst einkar vel og tekur fram að fjöldi erlendra ferðamanna á svæðinu hafi aukist verulega á síðustu árum. Innlent 27. febrúar 2026 23:16
Missti tökin og hengdur á loft í beinni Leikfélag Akureyrar frumsýndi í kvöld Birting, klassíska stórsýningu úr smiðju Voltaire. Níels Thibaud Girerd, aðalleikari sýningarinnar, lofaði flugeldasýningu þegar Tómas Arnar Þorláksson sótti meðlimi leikfélagsins heim fyrir frumsýninguna í kvöld, þar sem hann endaði á því að vera hengdur upp í beinni útsendingu. Lífið 26. febrúar 2026 22:36
Viðreisn býður í fyrsta skipti fram á Akureyri Lovísa Oktovía leiðir lista Viðreisnar á Akureyri en þetta er í fyrsta skipti sem flokkurinn býður fram á Akureyri. Innlent 26. febrúar 2026 11:32
Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar var samþykktur á aðalfundi fulltrúaráðs flokksins í gærkvöldi. Tillaga kjörnefndar var þar lögð fram og hún samþykkt. Innlent 25. febrúar 2026 07:31
Metfjöldi gesta tvo daga í röð Um 3.400 manns lögðu leið sína í Hlíðarfjall á Akureyri í dag og nánast jafnmargir í gær. Stjórnendur telja aðsóknina þá mestu frá upphafi talninga og reikna með að helgin verði sú stærsta í sögu skíðasvæðisins. Innlent 21. febrúar 2026 23:18
Svo margir á skíðum að lögreglan skarst í leikinn Sólin skín á snæviþakinn Eyjafjörð og sjaldan ef nokkurn tímann verið jafnmikið að gera í Hlíðarfjalli. Alla og ömmur þeirra langar að komast í brekkuna og umferðin er slík að lögreglan þurfti að skerast í leikinn. Innlent 21. febrúar 2026 12:09
Spyr hvort skoða þurfi mögulega árekstra eiginmanns ráðherra og fráfarandi forstjóra Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, segir stöðuna grafalvarlega á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Forstjórinn hefur sagt upp störfum og læknar líka eftir að samningum var sagt upp. Ingibjörg spyr hvort skoða þurfi hvort einhverjir árekstrar hafi orðið á milli eiginmanns ráðherra og fráfarandi forstjóra. Innlent 20. febrúar 2026 09:52
Þórsarar fá nýtt íþróttahús Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi í morgun samkomulag um byggingu nýs íþróttahúss á félagssvæði Þórs. Íþróttahúsinu eru áætlaðir 4.600 fermetrar og þar af verður íþróttasalur með um 2.400 fermetra gólfflöt. Gert er ráð fyrir að það muni kosta á bilinu 3 til 4,5 milljarða króna. Sport 19. febrúar 2026 21:58
Verra að vera í bíl en gangandi í svifrykinu Í mikilli svifryksmengun er betra að fara labbandi í vinnuna en keyrandi, að sögn formanns Félags lækna gegn umhverfisvá. Erlendar rannsóknir sýna að tíðni hjartaáfalla og heilablóðfalla aukist þá daga sem mengun er mikil. Innlent 16. febrúar 2026 13:10
Óðinn Svan leiðir L-listann Fréttamaðurinn Óðinn Svan Óðinsson mun leiða L-listann í komandi bæjarstjórnarkosningum á Akureyri. Innlent 13. febrúar 2026 17:40
Þorsteinn fær áheyrn Hæstaréttar Þorsteinn Hermann Þorbjörnsson, sem var sakfelldur í Landsrétti fyrir að svipta sambýliskonu sína lífi á heimili þeirra í Naustahverfi á Akureyri í apríl árið 2024, hefur fengið leyfi til að áfrýja dómi Landsréttar til Hæstaréttar. Innlent 9. febrúar 2026 10:30
„Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Þórhallur Jónsson, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, telur flokksstarfi sínu fyrir Sjálfstæðisflokkinn lokið eftir að hann laut í lægra haldi gegn Berglindi Ósk Guðmundsdóttur í oddvitaslag. Hann segir margt rotið innan flokksins á Akureyri. Innlent 7. febrúar 2026 16:53