Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar 20. október 2026 07:31 Orkumarkaðir í Evrópu virðast ætla að verða heimilum og fyrirtækjum til trafala, í annað skiptið á fimm árum. Í orkukreppunni 2021–2023 gripu aðildarríki ESB til yfir 400 neyðarráðstafana til að verja heimili og fyrirtæki fyrir háu orkuverði. Samkvæmt mati ACER, samstarfsstofnunar evrópskra orkueftirlita, kostuðu þær aðgerðir á bilinu 305 til 646 milljarða evra eða um 40 til 80 þúsund milljarða króna Nú er útlit fyrir annan erfiðan vetur. Stríðið í Mið-Austurlöndum hefur þrýst verði á jarðgasi upp og gasbirgðir í ESB stóðu í 72% í byrjun október, minni en nokkurt haust frá því mælingar hófust 2011. Orkuverð hefur verið einn helsti drifkraftur verðbólgu í Evrópu. Haustið 2022 skýrði orkuverð um 40% verðbólgunnar á evrusvæðinu og nú er það talið að baki nærri helmingi hennar. Til að verja heimilin fyrir háu og sveiflukenndu raforkuverði tók norska ríkið upp svokallað Norgespris haustið 2025: fast verð á raforku til heimila og ríkissjóður greiðir mismuninn þegar markaðsverð fer upp fyrir það. Í fjárlagafrumvarpi norsku ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir tæpum 16,4 milljörðum norskra króna, eða um 210 milljörðum íslenskra króna, í niðurgreiðslur á raforku til heimila á næsta ári. Frá 1. maí til 1. október hækkaði framvirkt verð á norrænum raforkumarkaði fyrir komandi vetur, október til mars, um rúm 50%. Það stefnir því í flókna stöðu í Evrópu í vetur. Á Íslandi þekkjum við margvíslegar efnahagslegar áskoranir. Verðbólga mældist 5,9% í september og nú sjáum við samstillt átak atvinnurekenda, stjórnvalda, sveitarfélaga og aðila vinnumarkaðarins til að halda aftur af verðhækkunum, lækka verðbólguvæntingar og lægja þann ólgusjó sem verið hefur. Við megum þó vera þakklát fyrir að þurfa ekki að heyja sams konar baráttu á orkumarkaði og margar nágrannaþjóðir okkar. Raforka hér ekki verðbólguvaldur Ástæðan er fyrst og fremst sú að íslenska raforkukerfið er knúið endurnýjanlegri orku. Raforkuverð hér ræðst af innlendum aðstæðum en ekki gasverði líkt og á meginlandinu, og sveiflur á evrópskum orkumörkuðum berast því ekki hingað með sama hætti. Þá byggir stór hluti raforkuviðskipta hér á landi á samningum til lengri tíma, meira en tíðkast víða í Evrópu, sem tryggir aukinn fyrirsjáanleika. Raforka hefur því ekki verið sá verðbólguvaldur hér sem hún hefur verið á meginlandinu, heldur ýtir hún undir stöðugleika þegar hans er mest þörf. Verðmyndun á íslenskum heildsölumarkaði raforku er orðin gagnsærri en fyrir nokkrum misserum. Á viðskiptavettvöngum Elmu og Vonarskarðs eru niðurstöður viðskipta birtar opinberlega, bæði fyrir næsta dag og nokkur ár fram í tímann, og þar getur hver sem er kynnt sér þróunina. Þróun á íslenskum raforkumarkaði er í samræmi við stefnu stjórnvalda og verð er stöðugt og lágt á alþjóðlegan mælikvarða. Þetta skín í gegn þegar horft er til heimilanna. Árið 2023 dugðu meðalráðstöfunarlaun hérlendis fyrir um 3,5 sinnum fleiri kílóvattstundum en að meðaltali í ESB, og leiðrétt fyrir verðlagi var raforkuverð til heimila hér það lægsta af 35 Evrópulöndum á fyrri helmingi 2025. Í báðum tilvikum er miðað við heildarverð til heimila, að meðtöldum flutningi, dreifingu og sköttum. Það sem meira er, orkukerfið, sem Íslendingar geta verið stoltir af, skilar efnahagslegum ávinningi umfram það að stuðla að verðstöðugleika. Það er grundvöllur hagvaxtar og bættra lífskjara til framtíðar. Milljarða fjárfestingar tengdar raforkunni Fjárfesting í orku og orkutengdum atvinnugreinum hefur verið gríðarmikil. Á síðasta ári rann um fjórðungur allrar fjárfestingar í landinu í orku- og veitustarfsemi, gagnaver og upplýsingatækni og málmiðnað. Á föstu verðlagi hefur ekki verið fjárfest meira í þessum greinum síðan á hátindi framkvæmda við Fljótsdalsstöð og Fjarðaál árin 2005 og 2006. Mest munar um gagnaver og upplýsingatækni, þar sem fjárfestingin var meiri árið 2025 en fjárfesting í álverum náði hæst árið 2006, þegar Fjarðaál var byggt. Fjárfesting í orku- og veitukerfinu sjálfu hefur ekki verið meiri síðan 2008 og fer vaxandi næstu ár með þeim framkvæmdum sem nú eru hafnar. Þá er ótalin uppbygging í landeldi sem byggir á aðgengi að endurnýjanlegri raforku. Fjárfesting af þessu tagi leggur grunn að verðmætasköpun og störfum til langs tíma, svo fremi sem hún skili eðlilegri ávöxtun. Áhrifin eru þegar farin að birtast víða um land. Uppbygging gagnavera og landeldis á Akureyri, Reykjanesi, Blönduósi, í Þorlákshöfn og Vestmannaeyjum skapar störf og aukin umsvif í nærsamfélögum, langt út fyrir veggi fyrirtækjanna sjálfra. Þor til að sækja ný tækifæri Landsvirkjun mun ekki láta sitt eftir liggja. Fyrirtækið er nú á einu mesta framkvæmdaskeiði í sögu sinni. Fyrstu vindmyllurnar í Vaðölduveri eru farnar að skila orku inn á kerfið og verður þetta fyrsta vindorkuver landsins fullbyggt næsta haust, það er nýbúið að bjóða út byggingu Hvammsvirkjunar, framkvæmdir eru hafnar við stækkun Sigölduvirkjunar, og undirbúningur er hafinn að stækkun Þeistareykjastöðvar. Fjárfesting fyrirtækisins nam um 17 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins. Markmiðið er tvíþætt: að tryggja áframhaldandi stöðugleika fyrir íslensk heimili og að ný tækifæri renni okkur ekki úr greipum, heldur stuðli að áframhaldandi bættum lífsgæðum á Íslandi. Við njótum þeirrar gæfu að búa við gott orkukerfi, en það er ekki sjálfsagður hlutur. Það er afleiðing ákvarðana fyrri kynslóða – bæði um að grípa þau tækifæri sem gáfust og um að byggja upp umgjörð orkumála sem stuðlar að stöðugleika og öryggi fyrir heimili og fyrirtæki. Leyfisveitingar og framkvæmdir taka mörg ár og því þarf að taka ákvarðanir í dag sem mæta þörfum næsta áratugar. Ekkert tryggir að við búum áfram við svo góða stöðu nema áframhaldandi góðar ákvarðanir og þor til að sækja ný tækifæri. Höfundur er framkvæmdastjóri Sölu og viðskiptaþróunar hjá Landsvirkjun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tinna Traustadóttir Orkumál Landsvirkjun Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun