Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 20. október 2026 20:49 Axel Máni er að drepast í höndunum að eigin sögn. Ungur maður fer nú skríðandi til Bessastaða en hann hélt af stað frá Njarðvík í gærkvöldi. Hann segir tilganginn vera þann að sanka að sér fleiri fylgjendum á samfélagsmiðlum. „
Ég er að skríða frá Njarðvík til Bessastaða með umslag til Höllu,“ segir Axel Máni í samtali við Vísi en tekur fram að hann vilji ekki gefa upp innihald bréfsins fyrr en hann er kominn með fimm þúsund fylgjendur. Hann streymir öllu á samfélagsmiðlinum Tik-Tok en þetta er ekki fyrsta uppátæki Axels á miðlunum, hann komst síðast í fréttir í maí þegar hann gróf sig undir sand í Nauthólsvík í sólarhring. Af hverju í ósköpunum ertu að þessu? „Ég er með samfélagsmiðlaaðgang þar sem ég er búinn að vera að gera allskonar áskoranir og þetta endaði á að vera ein þeirra. Síðast var ég í 24 klukkustundir á hlaupabretti og núna langaði mig að gera eitthvað erfiðara.“ Axel segist hafa verið að horfa á kvikmynd með vinum sínum upp í bústað þegar hugmyndin að athæfinu kviknaði. Í myndinni var einhver að skríða. Axel Máni hélt af stað frá bensínstöð Orkunnar við Fitjar í Njarðvík í gærkvöldi og segist hafa farið bakveg hjá HS Veitum. @seliking Halla eg er að koma!!🇮🇸 ♬ original sound - Seliking Og af hverju að skríða til Bessastaða? „Það kemur í ljós þegar ég er kominn með fimm þúsund fylgjendur,“ segir Axel sem gefur ekkert upp þó þjarmað sé að honum. Hann segir hálft ár síðan hann hafi byrjað á allskyns skringilegum uppátækjum á samfélagsmiðlum. „Einu sinni læsti ég mig inni á baðherbergi í tvo sólarhringa. Síðan var ég einu sinni blindur í viku. Bundið fyrir augun mín í 160 klukkutíma. Svo gróf ég mig í sand í sólarhring. Allt í beinni.“ @seliking Við hölfum áfram🇮🇸 ♬ original sound - Seliking Þú vilt ekkert segja mér hvað er í bréfinu? „Ég get það ekki. Ég er í beinni!“ Hvernig er líkamlega ástandið, ég heyrði þig ræða það áðan á Tik-Tok að þú værir bólginn á höndunum? „Hnéin á mér eru ágæt en hnúarnir eru í alvöru hakki. Ég hugsa að það sé ekkert langt í álagsbrot þar,“ segir Axel Máni. Hann ætlar þó ekki að skríða í alla nótt, um miðnætti ætlar hann að taka sér pásu. „Þá fer ég inn í bíl og sef þar. Svo legg ég aftur af stað í fyrramálið. Ég lagði af stað í gærkvöldi um níuleytið og hætti klukkan hálf tvö. Svo byrjaði ég aftur eitt í dag, er búinn með tíu kílómetra og á 36 kílómetra aftur.“ En að leggja þetta á sig fyrir fylgjendur á samfélagsmiðlum, sumir myndu segja að þetta væri hálfklikkað? „Skilaboðin eru þau að það er sama hversu fáránlega hluti þig langar að gera, prófaðu það bara. Það er enginn að pæla í þér.“
Samfélagsmiðlar Mest lesið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Fleiri fréttir Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Sjá meira