Innlent

Birtingar­myndir kyn­ferðis­of­beldis gegn ungum konum að breytast

Telma Tómasson skrifar
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf.
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf. Vísir

Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum virðast vera að breytast. Mun algengara er til að mynda að yngri konur en eldri séu beittar kyrkingartaki í kynlífi án samþykkis og kennari segir sláandi hversu útbreidd sú skoðun sé orðin að ofbeldi sé eðlilegur fylgifiskur kynlífs. Nauðsynlegt sé að bregðast við með fræðslu. Nánar er fjallað um málið í hádegisfréttum á Bylgjunni.

Í fréttatímanum er einnig greint frá því að hálka hafi verið á vegum á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og víða á Vesturlandi í morgun eftir kólnandi veður í nótt. Margir þurftu að grípa til sköffunnar áður en haldið var út í daginn í morgun. Vegagerðin hvetur ökumenn til varkárni. Að sögn yfirlögregluþjóns var þó lítið um umferðaróhöpp í morgun en nóg var hins vegar að gera á dekkjaverkstæðum.

- Vísir

Við höldum áfram að fjalla um svefnlyfja notkun Íslendinga. Lyfjafræðingur segir stóraukna notkun geðrofslyfs við svefnleysi óheillaþróun. Lyfið geti valdið alvarlegum aukaverkunum, jafnvel í litlum skömmtum eins og hækkun á blóðfitu og blóðsykri. Hann telur að fólk geti orðið háð lyfinu og hvetur lækna til að hætta að ávísa því við svefnleysi.

Boðuð einföldun á jafnlaunareglum hefur snúist upp í meiri vinnu og kostnað fyrir fyrirtæki, að mati Samtaka atvinnulífsins. Aðstoðarframkvæmdastjóri samtakanna segir fyrri vinnu þeirra ekki nýtast í nýju kerfi Jafnréttisstofu og vill að dómsmálaráðherra setji framkvæmdina á bið.

Þessi mál og fleiri í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu tólf, og auk þess þéttur sportpakki. Umsjónarmaður og þulur er Telma L. Tómasson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×