Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar 22. október 2026 13:30 Þegar maður horfir á barnasjónvarpið snemma um helgar úir og grúir af skemmtilegum karakterum úr dýraríkinu. Börn okkar lifa við þá notalegu hugmynd að þarna úti sé fullt af fallegum skepnum sælum og glöðum af ólíkum stærðum og gerðum í öllum regnbogans litum. Þó þarf ekki nema smá gúggl til að sjá að veruleiki dýralífsins er misjafn og ýmsu háður. Sebrahestar losa t.d. rétt hálfa milljón og lifandi gíraffar úti í náttúrunni eru nú um 140 þúsund. Gömul mynd af dökkum ungum karlmönnum í árásarham dúkkaði upp í samfélagsumræðunni nú um daginn í tengslum við mótmælin í Frakklandi. Myndbirtingin var á ábyrgð Elliða Vignissonar bæjarstjóra í Ölfusi. Það er með svona myndir eins og dýrin í barnasjónvarpinu; fólki fer að líða eins og heimurinn sé fullur af reiðum, ungum, dökkum karlmönnum. Jafn vel þótt umrædd ljósmynd væri tekin í öðru landi fyrir mörgum árum og kæmi mótmælum í Frakklandi ekkert við þá blússar gírafaheilkennið upp þvert flokka. Allt í einu verða göturnar í netheimum stappfullar af reiðum múslimakörlum með hníf í vasa og til alls vísir. Góðvild sem grundvöllur ábyrgðar Það gladdi mig því einlæglega að lesa grein Elliða Vignissonar sem hann birti hér á Vísi nú í morgun. Nú þekki ég manninn. Góðvild er ekki stefna segir hann og færir vönduð tölfræðileg jafnt sem félagsleg rök fyrir máli sínu. Við yfirskrift Elliða vil ég bæta: Góðvild er grundvöllur, en stefuna þarf sannarlega að móta með köldu höfði og heitu hjarta sem einmitt skín svo vel í gegn í grein Elliða þegar hann segir: „Ríkið og sveitarfélögin bera ábyrgð á að gera fólki kleift að taka þátt í samfélaginu.“ og bendir á að „félagsleg úrræði [eigi] að styðja fólk út í þátttöku, ekki festa það til langframa utan hennar.“ Ég gæti ekki verið meira sammála. Þegar upp er staðið snýst gott mannlíf um þátttöku þar sem fólk fær sanngjörn tækifæri til að láta um sig muna. Sanngrini felst m.a. í því að við höldum hvert öðru ábyrgu, gerum kröfur, deilum byrðum, spyrjum spurninga og krefjumst svara. Tölfræði Samkvæmt tölum Hagstofunnar eru innfyltjendur á Íslandi rúmlega 77 þúsund og atvinnuþátttaka þeirra mælist rúmlega 94% sem er talsvert hærra hlutfall en meðal innfæddra Íslendinga. Hugsið ykkur ef haldinn yrði útlendingafrídagur líkt og kvennafrídagurinn á öldinni sem leið. Hvað yrði um sjúkrahúsin, strætó, hafnirnar, matsölustaði, stórverslanir og dvalarheimili að ógleymdum öllum óhreinindunum sem safnast myndu upp á opinberum stöðum?! Gíraffaheilkennið þvert á flokka, sem Elliði einarðlega er að vinda ofan af með sinni nýju grein, elur að vísu alveg sérstaklega á ótta við múslima frá Miðausturlöndum og Norður-Afríku. Þá er gott að hafa Hagstofu sem mælir tölur í raunheimum. Þar má sjá að af þessum 77.000 útlendingum sem hér búa eru 3.531 innflytjandi fæddur í Miðausturlöndum eða Norður-Afríku. Það jafngildir 4,6 prósent allra innflytjenda og 0,9 prósent landsmanna. Hinn sanngjarni sjens Þegar myndum af reiðum ungum múslimunum er haldið á lofti er verið að nota aðferð sem virkar líkt og gott barnasjónvarp. Það má nefnilega alltaf ganga að frumstæðum hvötum og viðbrögðum mannsheilans vísum og niðurstaðan er fyrirsjáanleg; Ótti skapar reiði sem veldur hatri sem leiðir til ofbeldis. Mín gagnrýni og margra annara við myndbirtingu Elliða snérist um þetta. Við höfnum því að stjórnmálafólk ýfi gíraffaheilkennið. Af svörum Elliða er ljóst að hann sér að sér. Þannig gerir alvöru fólk. Um þessa þrjúþúsund fimmhundruðþrjátíu og einu sál segir hann: „Ég er ekki að halda því fram að allir sem koma frá þessum heimshlutum fremji afbrot, séu atvinnulausir eða vilji ekki aðlagast. Meiningin er ekki að leggja trú einstaklings til grundvallar mati á honum. Orð mín sem féllu í þá átt hef ég leiðrétt. Og ég er ekki að segja að uppruni sé örlög. Slíkar fullyrðingar væru rangar og óréttlátar.“ Amen. Svo skulum við öll halda áfram tala saman. Einu gildir hvaðan fólk er komið, hvernig það trúir eða hvaða litarhaft það hefur. Við erum öll að leita að öryggi og heilsu. Við óttumst um börnin okkar og erum reiðubúin að gera hvað sem er til að koma þeim á legg. Góð stjórnmál snúast um sanngjarnan sjens fyrir alla. Höfundur er prestur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bjarni Karlsson Innflytjendamál Mest lesið Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Skoðun Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar