Skoðun

Er náttúrupassinn á­hættunnar virði?

Valdís María Smáradóttir skrifar

Það er athyglisverð þversögn að ríkisstjórn sem leggur ríka áherslu á mikilvægi þess að standa vörð um EES samninginn og bókun 35 skuli nú leggja á ferðamenn innviðaskatt í formi náttúrupassa. Sérstök gjaldtaka á að vera á þrjá fjölsóttustu ferðamannastaði Íslands, sem allir eru í Bláskógabyggð. Þar með er einu sveitarfélagi gert að bera hitann og þungann af þessari nýju gjaldtöku.

Ætlar ríkisstjórnin að standa vörð um EES samninginn í heild sinni eða aðeins þegar það hentar pólitískt?

Ein af grundvallarreglum EES réttar er bann við mismunun á grundvelli ríkisfangs á þeim sviðum sem samningurinn tekur til. Það bann getur einnig náð til óbeinnar mismununar, þegar reglur koma verr niður á ríkisborgurum annara EES ríkja. Ríkisstjórnin hefur sett gjaldtökuna í þann búning að undanþiggja þá galdtöku sem hafa skattalega heimilisfesti á Íslandi. Þannig myndu flestir Íslendingar sleppa við að greiða náttúrupassann á meðan erlendir ferðamenn þyrftu að greiða fyrir hann.

Ég verð að varpa fram þeirri spurningu til ríkisstjórnarinnar, hvort raunverulegur munur sé á því að undanþiggja Íslendinga gjaldinu og að undanþiggja þá sem hafa skattalega heimilisfesti hér á landi? Ef undanþágan leiðir til óbeinnar mismununar þarf að sýna fram á að hún eigi sér málefnalega réttlætingu og gangi ekki lengra en nauðsynlegt er. Ég verð að leyfa mér að efast um að svo sé. Er í alvöru nóg að breyta orðalaginu ef áhrif gjaldtökunnar verða í reynd þau sömu?

Hvers vegna aðeins í Bláskógabyggð?

Önnur grundvallarspurning snýr að jafnræði milli landshluta. Einungis þrír ferðamannastaðir, allir innan Bláskógabyggðar, falla undir náttúrupassann. Á sama tíma hefur ekki verið framkvæmd greining af hálfu ríkisstjórnar á því hvort gjaldtakan geti haft áhrif á samkeppnisstöðu ferðaþjónustufyrirtækja í Bláskógabyggð gagnvart fyrirtækjum á öðrum ferðamannastöðum sem gjaldtakan nær ekki til.

Ferðaþjónustan ein mikilvægasta atvinnugrein landsins

Ferðaþjónustan ætti ekki að þurfa að bera afleiðingar illa undirbúinnar gjaldtöku, án þess að sýnt hafi verið fram á með fullnægjandi hætti að samræmist alþjóðlegum skuldbindingum Íslands. Við getum öll verið sammála um að verndun náttúrunnar og uppbygging innviða sé mikilvæg og krefjist aukins fjármagns. Það réttlætir hins vegar ekki það að stjórnvöld taki hér óþarfa lagalega áhættu og sparki í einstaka atvinnugrein í einstaka sveitarfélagi.

Þar að auki er það óábyrgt að ætla að keyra slíka gjaldtöku í gegn og hefja innheimtu með litlum sem engum fyrirvara, án þess að það liggi fyrir niðurstaða um samræmi hennar við EES rétt. Ef það kæmi í ljós að gjaldtakan standist ekki ákvæði EES samningsins gæti íslenska ríkið staðið frammi fyrir endurgreiðslukröfum og jafnvel skaðabótaskyldu. Er það í alvörunni áhætta sem ríkisstjórnin er tilbúin að taka? Ríkisstjórnin getur ekki annars vegar gert virðingu fyrir EES samningnum og bókun 35 að einu af sínu helsta baráttumáli og hins vegar ætlast til þess að alvarlegum spurningum um samræmi eigin lagasetningar við sama samning sé ýtt til hliðar. Það hlýtur að vera lágmarkskrafa að ríkisstjórnin sýni fram á að fyrirhugaður náttúrupassi standist EES rétt áður en Alþingi samþykkir frumvarpið.

Höfundur er sveitarstjórnarfulltrúi í Bláskógabyggð.




Skoðun

Sjá meira


×