Skoðun

Þrjú lög­reglu­em­bætti – á hvaða for­sendum?

Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar

Áform dómsmálaráðherra um að fækka lögregluembættum landsins úr níu í þrjú vekja spurningar um framtíð löggæslu, þjónustu við íbúa og öryggi samfélaga um land allt. Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur mótmælt þessum áformum harðlega og skorar á ráðherra að falla frá þeim í núverandi mynd.

Það er ekki sjálfgefið að stærri stjórnsýslueiningar skili betri þjónustu. Þvert á móti getur aukin miðstýring veikt staðbundna þekkingu, fjarlægt ákvarðanatöku frá vettvangi og dregið úr mikilvægum tengslum lögreglu við sveitarfélög, íbúa og aðra viðbragðsaðila.

Sérstaka furðu vekur sú hugmynd að sameina Vesturland og Norðausturland í eitt víðfeðmt lögregluumdæmi. Hvaða faglegu forsendur liggja að baki þeirri ákvörðun? Hvers vegna er talið rétt að fækka embættunum í þrjú fremur en að velja aðra umdæmaskipan? Og umfram allt: Hvernig verður tryggt að breytingarnar leiði til betri löggæslu og aukins öryggis íbúa?

Í Hvalfjarðarsveit eru aðstæður sem gera kröfur til löggæslu og viðbragðsgetu. Þar má nefna umfangsmikla iðnaðarstarfsemi á Grundartanga, eina af stærri inn- og útflutningshöfnum landsins, Hvalfjarðargöng, þjóðveg 1 og víðfeðm dreifbýlissvæði. Horfur á aukinni skipaumferð um Grundartangahöf og nærsvæði undirstrika enn frekar mikilvægi öflugrar löggæslu, tollgæslu og samhæfðs viðbúnaðar.

Stjórnvöld hafa verkfærin – eru þau nýtt?

Það sem vekur ekki síður athygli en breytingarnar sjálfar er að ekki liggja fyrir fullnægjandi upplýsingar um greiningar á áhrifum þeirra á þjónustu, mönnun, viðbragðsgetu og öryggi íbúa.

Stjórnvöld hafa sjálf sett fram leiðbeiningar um vandaðan undirbúning lagasetningar, þar sem meðal annars er lögð áhersla á skýra greiningu viðfangsefna, mat á mismunandi valkostum og áhrifum fyrirhugaðra breytinga.

Þá hefur nýverið verið kynnt sérstakt greiningarverkfæri, Byggðalinsan, sem ætlað er að meta áhrif lagasetningar á byggðarlög og búsetufrelsi. Verkfærið var þróað af Byggðastofnun í samstarfi við ráðuneyti, þar á meðal dómsmálaráðuneytið sjálft.

Hér er einmitt um að ræða breytingar þar sem beiting slíks verkfæris ætti að vera sjálfsagður hluti undirbúningsins.

Hefur Byggðalinsunni verið beitt við undirbúning þessara áforma? Ef svo er, hvar er þá að finna niðurstöður þeirrar greiningar? Ef ekki, hvers vegna er ráðist í svo umfangsmiklar breytingar án þess að nýta þau verkfæri sem stjórnvöld hafa sjálf þróað til að stuðla að vandaðri ákvarðanatöku?

Þessar spurningar snúast ekki um andstöðu við breytingar breytinganna vegna. Þær snúast um faglega stjórnsýslu, gagnsæi og þá grundvallarkröfu að ákvarðanir um mikilvæga grunnþjónustu ríkisins byggist á traustum forsendum.

Öryggi íbúa á að ráða för

Verði niðurstaðan engu að síður sú að fækka lögregluembættum í þrjú er nauðsynlegt að endurskoða fyrirhuguð umdæmamörk. Þar hlýtur meðal annars að koma til skoðunar hvort Hvalfjarðarsveit og önnur sveitarfélög á sunnanverðu Vesturlandi eigi betur heima innan umdæmis höfuðborgarsvæðisins, með hliðsjón af landfræðilegri nálægð, samgöngum og þjónustusókn.

En sú umræða má ekki skyggja á grundvallaratriðið.

Skipulag löggæslu á Íslandi á að taka mið af þörfum samfélagsins, öryggi íbúa og faglegum forsendum – ekki fyrirfram ákveðnum fjölda stjórnsýslueininga.

Áður en ráðist er í jafn umfangsmikla uppstokkun á einni mikilvægustu grunnþjónustu ríkisins verður að liggja fyrir vandað mat á afleiðingunum og raunverulegt samráð.

Stjórnvöld hafa verkfærin til þess. Nú þarf að sýna að þau séu tilbúin að nota þau.

Höfundur er sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar.




Skoðun

Skoðun

7 er ekki lengur 7

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar

Sjá meira


×