Skoðun

Verkin fylgja, varla fé

Magnús Magnússon skrifar

Haustþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra kom saman á Laugarbakka í Húnaþingi vestra 1. október sl. Þar samþykktu fulltrúar sveitarfélaganna í landshlutanum ályktanir um málefni sem við fyrstu sýn virðast óskyld. Þær fjalla um farsæld barna, þjónustu við fatlað fólk, vegi, fjarskipti, raforku, hafnir og gjaldtöku af akstri. Þegar betur er að gáð eiga þær sér sameiginlegan þráð. Í hverju málinu á fætur öðru eru sveitarfélögum og íbúum landsbyggðarinnar falin verkefni eða lagðar á þá byrðar, án þess að fjármagn fylgi eða tillit sé tekið til aðstæðna.

Lögbundin þjónusta án tryggrar fjármögnunar

Með lögum nr. 86/2021 um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna fengu sveitarfélög aukna og lögbundna ábyrgð á stuðningi við börn og fjölskyldur, meðal annars með tengiliðum og snemmtækri íhlutun. Sveitarfélögin á Norðurlandi vestra hafa tekið þetta hlutverk alvarlega og þegar lagt umtalsvert í uppbyggingu þjónustunnar, meðal annars með samstarfssamningi um Farsældarráð á svæðinu.

Nú stendur til, samkvæmt fjárlagafrumvarpi, að skera niður rúman milljarð króna sem sveitarfélög höfðu gert ráð fyrir frá ríkinu til stuðnings börnum með stuðningsþarfir. Á sama tíma hefur Ríkisendurskoðun gagnrýnt harðlega ófullnægjandi undirbúning og óraunhæfar væntingar við innleiðingu laganna. Lagaskyldan til að veita þjónustuna stendur óbreytt, en óvíst er hvort fjármagnið fylgir.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem slíkt gerist. Í málaflokki fatlaðs fólks hefur sama þróun átt sér stað um árabil. Á árunum 2016–2021 jókst kostnaður Skagafjarðar, leiðandi sveitarfélags í málaflokknum á Norðurlandi vestra, um 509%. Þar af jókst kostnaðurinn um 181% á einu ári, milli 2020 og 2021, meðal annars vegna styttingar vinnutíma vaktavinnufólks og áhrifa Covid-19 faraldursins á þjónustuþörf. Framlög ríkisins héldu ekki í við þessa þróun.

Í báðum tilvikum er um að ræða lögbundna velferðarþjónustu sem ríkið hefur falið sveitarfélögum að veita. Afleiðingin er sú að fámenn sveitarfélög sitja uppi með vaxandi fjárhagslega áhættu af verkefnum sem þau hafa takmörkuð áhrif á, hvort sem litið er til umfangs eða kostnaðar. Haustþingið krefst þess að félags- og húsnæðismálaráðuneytið tryggi fullnægjandi fjármagn til farsældarþjónustu og að fjármagn fylgi að fullu verkefnum í málaflokki fatlaðs fólks, á grundvelli raunhæfrar kostnaðargreiningar. Taka verður tillit til þess aukna kostnaðar sem fjarlægðir og fámenni hafa í för með sér.

Innviðir halda ekki í við þróun og notkun

Haustþingið fagnar samþykkt samgönguáætlunar fyrir árin 2026–2040 og því sem hæst ber hvað varðar okkar landshluta, annars vegar að uppbygging Vatnsnesvegar sé áætluð á næstu átta árum og hins vegar að Fljótagöng séu sett í forgang. Það breytir þó ekki því að fjármagn til viðhalds og uppbyggingar tengi- og stofnvega á Norðurlandi vestra hefur um árabil verið langt undir þörf. Landshlutinn er enn með eitt hæsta hlutfall malarvega á landinu. Vetrarþjónusta skiptir ekki minna máli en nýframkvæmdir, því greið vetrarumferð ræður úrslitum um öryggi íbúa, aðgengi að heilbrigðisþjónustu og samkeppnishæfni atvinnulífsins.

Svipaða sögu er að segja af fjarskiptum. Núna þjóna sendar færri stöðum, sem áður náðu til afskekktra svæða, eftir að slökkt var á 2G- og 3G-kerfum landsins. Uppbygging 4G- og 5G-kerfa hefur ekki fylgt sömu landfræðilegu dreifingu. Reynslan sýnir að íbúar og vegfarendur hafa á köflum orðið sambandslausir þar sem áður var samband. Það er alvarlegt öryggismál, ekki síst á fjallvegum og í dreifbýli þar sem símasamband getur ráðið úrslitum í neyðartilvikum.

Raforkukerfið er sama marki brennt. Þar ber hæst að núverandi meginflutningslínur eru fulllestaðar og hafa verið um alllanga hríð. Þessi takmarkaða flutnings- og afhendingargeta hefur um árabil hamlað atvinnuuppbyggingu, fjárfestingum og orkuskiptum á svæðinu og hafa dýrmæt tækifæri glatast af þeim sökum í landshlutanum. Haustþingið ítrekar kröfu stjórnar SSNV um að Norðurland vestra verði skilgreint sem forgangssvæði og að ráðist verði hið fyrsta í Blöndulínu 3, Holtavörðuheiðarlínu 1 og 3 og endurnýjun Sauðárkrókslínu 1. Markmið stjórnvalda um að afhendingaröryggi í landshlutakerfinu verði tryggt árið 2045 er allt of fjarlægt.

Loks mótmælir haustþingið fyrirhugaðri lækkun framlaga ríkisins til hafnarframkvæmda. Hafnir eru lífæð sjávarútvegs, ferðaþjónustu og vöruflutninga í sjávarbyggðum landshlutans. Fámenn sveitarfélög hafa takmarkað bolmagn til að mæta samdrætti í framlögum. Þegar nauðsynlegu viðhaldi er frestað hækkar kostnaðurinn til lengri tíma og áhættan eykst.

Flöt gjaldtaka lendir þyngst á dreifbýlinu

Þriðja málið snýr beint að heimilum í landshlutanum. Kílómetragjald er lagt jafnt á alla bíleigendur óháð búsetu, þó að fjarlægðir til vinnu, skóla og grunnþjónustu séu margfalt meiri í dreifbýli en í þéttbýli. Almenningssamgöngur eru takmarkaðar eða engar á svæðinu og einkabíllinn er í reynd eina raunhæfa samgöngutækið fyrir stóran hluta íbúa. Það er óásættanlegt að auka álögur á akstur á meðan margir vegir í landshlutanum eru í óviðunandi ástandi.

Um síðustu áramót voru vörugjöld og olíugjald á eldsneyti felld niður, en kolefnisgjald hækkar á sama tíma um 25% umfram almenna verðlagsþróun. Heildaráhrifin eru því hækkun á eldsneytiskostnaði. Þar að auki er eftirlit með því að olíufélög lækki verð í samræmi við niðurfellingu eldri gjalda af skornum skammti.

Í dreifbýli er akstur ekki munaður heldur nauðsyn. Haustþingið krefst þess að hækkun kílómetragjalds verði dregin til baka og fallið frá frekari hækkun eldsneytisskatta. Jafnframt verði tekið mið af sérstöðu dreifbýlis við ákvarðanir um skattlagningu aksturs, álestur og innheimta kílómetragjalds verði áreiðanleg og virkt eftirlit haft með því að afnám gjalda skili sér til neytenda.

Sama borð, sömu tækifæri

Íbúar Norðurlands vestra biðja ekki um sérmeðferð. Þeir biðja um að verkefnum sem ríkið felur sveitarfélögum fylgi fjármagn, að innviðir landshlutans fái fjármögnun í samræmi við raunverulega þörf og að skattlagning taki mið af aðstæðum fólks. Verði þessi mál áfram afgangsstærð er hætt við að landshlutinn dragist enn frekar aftur úr. Það gengur þvert á markmið um jafnræði landshluta og jákvæða byggðaþróun. Í þessu efni sem öðru er mikilvægt að meitla mál um leið og reynt er að laga málefnið, halda í gleðina á sama tíma og haldið er áfram að hola steininn með hagortum bundnum orðum ef hin óbundnu skyldu renna í gegn.

Mikilvægt er meðan lifir

málin bæta og kæta geð.

Flæða verk að fullu yfir

fylgja greiðslur sjaldan með.

Ályktanir haustþingsins hafa verið sendar viðkomandi ráðuneytum og fjárlaganefnd Alþingis. Sveitarfélögin á Norðurlandi vestra vænta þess að á þær verði hlustað.

Höfundur er formaður Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.




Skoðun

Skoðun

7 er ekki lengur 7

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar

Sjá meira


×